Fréttablaðið - 01.02.2023, Síða 11
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja.
• Verðmat
• Ráðgjöf og undirbúningur
fyrir sölumeðferðir
• Milliganga um
fjármögnun
• Samningagerð
kontakt@kontakt.is | 414 1200 |Ránargata 18, 101 Reykjavík
www.kontakt.is
Við kaupum gjald-
eyrinn á ákveðnu
gengi og við seljum
hann svo til viðskipta-
vina okkar á nákvæm-
lega sama gengi.
Haukur Skúlason,
einn stofnenda indó
Nýr íslenskur sparisjóður sem
rekinn er samkvæmt hag-
kvæmri áætlun býður við-
skiptavinum upp á ódýrari
bankaþjónustu. Einn af stofn-
endum sjóðsins segist von-
ast til að aðrir hefðbundnir
bankar fari að bjóða sínum
viðskiptavinum sambærileg
kjör.
helgisteinar@frettabladid.is
Íslenski sparisjóðurinn indó var
opnaður formlega í vikunni og er
nú þegar kominn með rúmlega
átta þúsund viðskiptavini. Indó var
stofnaður af Hauki Skúlasyni og
Tryggva Birni Davíðssyni með þann
tilgang að bjóða fólki upp á öðruvísi
bankastarfsemi á Íslandi.
Samkvæmt tilkynningu sem
sparisjóðurinn sendi frá sér í vik-
unni mun indó bjóða upp á debet-
kortareikninga til að byrja með en
aukin þjónusta mun svo bætast við í
náinni framtíð. Viðskiptavinir indó
geta þar með stundað öll helstu
bankaviðskipti líkt og hjá öðrum
bönkum um leið og reikningur
þeirra er tilbúinn.
„Við erum bara öll pínu auðmjúk
yfir því hversu vel þetta hefur geng-
ið. Við erum búin að afnema bið-
listann og nú geta allir náð í indó-
appið og stofnað reikning á einni
mínútu,“ segir Haukur Skúlason,
einn af stofnendum indó.
Haukur segist finna fyrir vilja
innan samfélagsins til að breyta
íslenskri bankastarfsemi. „Hlutirnir
breytast ekkert af sjálfu sér þannig
að við ákváðum bara að bretta upp
ermarnar og breyttum þessu sjálf.“
Einn helsti munur á indó og
öðrum bönkum er sá að viðskipta-
vinir indó sleppa til dæmis við öll
færslugjöld á debetkortafærslum
sínum. Að sama skapi er ekkert
gjaldeyrisálag eða önnur falin gjöld
en allar innistæður viðskiptavina
eru samt sem áður tryggðar upp
að 100 þúsund evrum líkt og hjá
öðrum bönkum á Íslandi.
„Það er ekkert gjaldeyrisálag sem
er oft laumað inn og smurt ofan
á þegar þú ert til dæmis að kaupa
þér ís úti á Tenerife. Við kaupum
gjaldeyrinn á ákveðnu gengi og við
seljum hann svo til viðskiptavina
okkar á nákvæmlega sama gengi,“
segir Haukur.
Spurður um það hvernig slík
bankastarfsemi geti skilað hagn-
aði útskýrir Haukur að líta þurfi til
tveggja meginþátta.
„Í fyrsta lagi eru hefðbundnir
bankar með alls konar gjöld, en þeir
eru líka með rosalega háan kostnað.
Þetta eru fjölmennir vinnustaðir
og það erum við ekki. Við erum 15
starfsmenn, ekki 1.500. Við þurfum
ekki að flytja stuðlaberg yfir landið
til að geta sett utan um húsið okkar.
Við erum bara í leiguhúsnæði í Lág-
múlanum og þannig náum við að
halda þessum kostnaði niðri.“
Haukur bætir við að sem útgef-
andi Visa-korta sé indó aðili að Visa
International og fái þannig tekjur í
gegnum veltu á hverri færslu.
„Þegar þú ferð út í búð og kaupir
þér eitthvað þá fáum við tekjur
af þeirri þóknun sem söluaðilinn
greiðir til Visa. Það gerir það að
verkum að okkar viðskiptavinir
greiða ekki neitt til okkar, en við
fáum samt sem áður tekjur af velt-
unni í gegnum Visa.“
Indó segist vona að með þessum
breytingum á markaðnum muni
samkeppnisaðilar bregðast við
með því að bjóða sambærileg kjör
og fella niður færslugjöld. Haukur
segir þessi gjöld fyrst og fremst
vera ósanngjörn og að hans sögn
er stefna indó sú að fólk eigi ekki
að þurfa að borga fyrir það að nota
launin sín. n
Átta þúsund viðskiptavinir
nú þegar komnir til indó
Tryggvi Björn Davíðsson og Haukur Skúlason, stofnendur indó. MYND/AÐSEND
helgisteinar@frettabladid.is
Dýragarðar í Bretlandi vara við því
að Brexit muni hafa áhrif á æxlunar-
tímabíl vísunda, nashyrninga, apa
og annarra dýra.
Fyrir útgöngu Bretlands úr Evr-
ópusambandinu voru rúmlega
1.400 dýr reglulega f lutt á milli
breskra dýragarða og evrópskra.
Eftir Brexit hefur f lókin pappírs-
vinna hins vegar orðið til þess að sá
fjöldi dýra er núna kominn niður í
200.
Yfir 75 dýraverndunarhópar í
Bretlandi hafa skrifað opið bréf til
forsætisráðherra landsins og skorað
á hann að finna lausn á vandamál-
inu. n
Brexit hamlar flutningi á dýrum
Breskir nashyrningar verða einmana á komandi Valentínusardegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
helgisteinar@frettabladid.is
Bandaríska ríkisstjórnin hefur
ákveðið að hætta að veita banda-
rískum fyrirtækjum leyfi til að
flytja út vörur sem ætlaðar eru kín-
verska fyrirtækinu Huawei.
Kínverski tæknirisinn hefur
undanfarin ár glímt við útflutnings-
bönn í tengslum við 5G-tækni og
aðrar hátæknivörur, en sum banda-
rísk fyrirtæki hafa hingað til fengið
undanþágur til að selja fyrirtækinu
hluti eins og 4G-snjallsímakubba.
Mao Ning, talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, segir Kín-
verja mótfallna því að Bandaríkja-
menn misnoti víðtækt hugtak þjóð-
aröryggis til að halda kínverskum
fyrirtækjum í skefjum. Hann segir
þessa ákvörðun bandarískra yfir-
valda fara gegn meginreglum mark-
aðskerfisins og brjóti gegn reglum
um alþjóðaviðskipti.
Bandarískir embættismenn settu
Huawei á svartan lista árið 2019
og þurftu þá f lest bandarísk fyrir-
tæki að fá sérstakt leyfi til að geta
selt vörur til Huawei. Sérfræðingar
segja að ákvörðun Bidens endur-
spegli herta stefnu ríkisstjórnar-
innar gagnvart Huawei og nálgun
kínverskra fyrirtækja að erlendri
tækni. n
Biden lokar á Huawei
Huawei hefur verið á svörtum lista í
Bandaríkjunum síðan 2019.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Kaup, sala og
samruni fyrirtækja.
• Verðmat
• Ráðgjöf og undirbúningur
fyrir sölumeðferðir
• Milliganga um
fjármögnun
• Samningagerð
kontakt@kontakt.is | 414 1200 |Ránargata 18, 101 Reykjavík
www.kontakt.is
, s l
s r i f rirt j .
• Verð at
• áðgjöf og undirbúningur
fyrir sölu eðferðir
• illiganga u
fjár ögnun
• Sa ningagerð
kontakt@kontakt.is | 414 1200 |Ránargata 18, 101 Reykjavík
www.kontakt.is
FRÉTTABLAÐIÐ MARKAÐURINN 111. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR