Fréttablaðið - 01.02.2023, Side 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 1. febrúar 2023
Ný vítamín framleidd með hinni
byltingarkenndu liposomal-tækni
Cure Support hefur í tvo áratugi verið að þróa hin öflugustu bætiefni sem völ er á með
liposomal-tækni sem tryggir hámarks nýtingu og upptöku næringarefna í líkamanum. 2
Ásdís Birta er með BS-gráðu í næringarfræði og hefur mikinn áhuga á heilbrigðum lífsstíl en hún mælir hiklaust með vörulínunni frá Cure Support fyrir alla
sem vilja tryggja hámarksupptöku og nýtingu næringarefnanna í líkamanum. MYND/AÐSEND
Roger Daltrey er söngvari The Who.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
starri@frettabladid.is
Gömlu rokkhundarnir í The Who
tilkynntu fyrr í vikunni að sveitin
færi í tónleikaferðlag á Bretlands
eyjum í júlí en þetta er fyrsta tón
leikaferðalag þeirra í sex ár. Með
þeim á sviði verður strengjasveit
auk þess sem gömlu brýnin í UB40
koma fram flestum tónleikanna.
Forsprakkar sveitarinnar eru
engin unglömb enda var hún
stofnuð í London árið 1964. Þann
ig verður Roger Daltrey söngvari
sveitarinnar 79 ára í mars og Peter
Townshend gítarleikari verður 78
ára í maí.
Lög af vinsælustu plötum
sveitarinnar, Tommy og Quadro
phenia, verða fyrirferðarmikil auk
þess sem þeir ætla að leika nokkur
lög af nýjustu plötu sinni, WHO,
sem kom út árið 2019 en hún var
fyrsta plata þeirra í þrettán ár.
Þeir fyrstu í 40 ár
Tónleikarnir verða bæði innan
dyra og utanhúss. Tónleikarnir
í Edinborg verða þeir fyrstu sem
Who heldur í rúmlega 40 ár og
sveitin kemur fram í Derby í fyrsta
sinn síðan árið 1966.
Fyrstu tónleikarnir verða í Hull
6. júlí og lokatónleikarnir verða í
Brighton 23. júlí.
Miðasala hefst næsta föstudag,
3. febrúar, ef áhugasamir lesendur
vilja skella sér í veisluna.
Nánari upplýsingar má finna á
thewho.com. n
Gamla rokkið lifir