Fréttablaðið - 01.02.2023, Blaðsíða 18
Aukinn hjart-
sláttur vegna
hitans veldur því að
æðarnar víkka og blóð-
streymi eykst, á svipaðan
hátt og þegar stunduð er
létt til miðlungserfið
hreyfing.
Helgi Guðmundsson húsa-
smiður byrjaði að taka inn
D-vítamín orkublöndu með
burnirót frá ICEHERBS fyrir
nokkrum árum. Hann segir
blönduna gefa sér orku og
hafa góð áhrif á sig almennt.
„Ég byrjaði fyrst að taka þetta
inn til að halda sjóninni við, en
ég er fæddur og uppalinn í sveit
og vandist við að borða mikið af
krækiberjum sem ég held að hafi
stuðlað að því að ég hef alltaf verið
með góða sjón. En ég er viss um að
D-vítamín orkublandan hafi líka
sitt að segja við að styrkja sjónina
enda er ég orðinn 82 ára gamall og
ekki enn farinn að nota gleraugu,“
segir Helgi.
Bætt orka bætir liðina
Helgi er menntaður húsasmiður
og starfaði lengi sem slíkur. „Ég
var orðinn nokkuð slæmur í
hnjánum á tíma enda var ég starf-
andi smiður, lá mikið á hnjánum í
vinnunni og bólgnaði upp í þeim.
Fyrir nokkrum árum kynntist ég
bætiefnunum frá ICEHERBS og
fannst spennandi að prófa þau.
Enda er ég vanur fjallagrösum, blá-
berjum og krækiberjum frá jurta-
ríkinu úr sveitinni fyrir vestan og
trúi því að það sé rétt að treysta á
náttúruna. Þegar ég byrjaði að taka
inn D-vítamín blönduna frá ICE-
HERBS fannst mér hún gera mér
gott að ýmsu leyti.
Ég er núna hættur að vinna en
það er þó ekki langt síðan ég var
að fikta í þessu að gamni. Það eru
kannski um fjögur eða fimm ár
síðan ég var að leggja parket, þó
þetta gamall. Ég tel mig nú nokkuð
góðan og er viss um að D-vítamín
orkublandan hafi haft góð áhrif á
liðina en líka orkuna. Meiri orka
gerir mér kleift að hreyfa mig
reglulega, eða um 3-4 sinnum í
viku. Þá fer ég 2-3 í viku í ræktina
og geng 1-2 í viku. Það hefur
hjálpað til við að minnka bólgurn-
ar í hnjánum og bæta líðanina.
Ég finn að ég er orkumeiri
almennt og þetta hefur áhrif á
hvort annað, orkan og líðanin.
Eftir því sem maður hreyfir sig
meira þá eykst orkan. Ég hef líka
haldið sjóninni, eða hún hefur alla
vega ekki versnað í þessu tíu ár,“
segir Helgi.
Fann fyrir mun
„Ég tek D-vítamín orkublönduna
allt árið um kring en inntakan er
ekki svo stíf að ég taki þetta með
mér í hverja helgarferð. En svona
flesta daga. Ég fann þó mun á mér,
eftir að hafa farið í mánaðarferð
norður í land án þess að taka bæti-
efnið með mér. Ég er ekki frá því
að ég hafi verið stirðari eftir á, en
það batnaði fljótt aftur eftir að ég
byrjaði að taka þetta inn aftur.“
Við fáum einfaldlega ekki nóg
D-vítamín er eitt mikilvægasta
vítamínið sem líkaminn þarfnast.
Það hjálpar okkur að vinna kalk
úr fæðunni til þess að fyrirbyggja
kalkskort og hefur jákvæð áhrif á
sjónheilsu á ýmsan hátt. Skortur á
því getur valdið ýmsum kvillum
eins og sársauka í liðum og í verstu
tilfellum alvarlegum heilsufars-
vandamálum. Í mörgum tilfellum
þegar liðvandamál orsakast af D-
vítamínskorti má snúa vandanum
við með inntöku á D-vítamín
bætiefni.
D-vítamín fáum við úr fæðu og
úr sólarljósinu en fjöldi rannsókna
sýnir fram á að nútímamaðurinn
fær ekki nóg af D-vítamíni úr fæð-
unni. Við sem búum á norðlægum
slóðum erum enn verr sett því við
fáum líka of lítið af sólarljósi, hvað
þá í svartasta skammdeginu. Því er
lykilatriði að taka inn D-vítamín
sem bætiefni til þess að tryggja
nægilegt magn.
Einstök orkublanda
Orkublandan frá ICEHERBS
inniheldur 2.000 einingar af
D-vítamíni og hreina íslenska
burnirót. Orkublandan er sniðin
fyrir þá sem glíma við skamm-
degisslen. ICEHERBS fær mikið af
góðum viðbrögðum frá
neytendum um hvað
varan gerir þeim gott.
Flestallir finna mun
á sér eftir að hafa
tekið Orkublönduna
daglega í 5-10 daga,
og fólk vaknar mun
hressara.
Hið norræna ginseng
Burnirótin er ein
magnaðasta lækn-
ingajurt sem vex á
Íslandi og eitt best
geymda leyndarmál
jurtaríkisins. Jurtin er
oft kölluð hið norræna ginseng en
hún er þekkt fyrir einstök áhrif
sín á aukna orku, einbeitingu og
úthald. Áður fyrr var hún meira
að segja notuð til að auka frammi-
stöðu hermanna. Klínískar rann-
sóknir sýna einnig fram á að hún
hjálpar fólki að vinna gegn stressi
og álagi. Burnirótin er oft notuð til
að vinna gegn orkuleysi, sleni og
depurð og þannig vinnur hún vel
með D-vítamíninu.
Innihaldsefni sem Orkubland-
an frá ICEHERBS samanstendur
af eru algert dúndur fyrir aukna
orku, snerpu og úthald. Í hverju
hylki eru 2.000 einingar af D-víta-
míni sem er viðmiðunargildi fyrir
efri mörk daglegrar meðalneyslu
á D-vítamíni. Burnirótin í Orku-
blöndunni er handtínd á Íslandi,
þurrkuð, verkuð og mulin. Öll
bætiefni ICEHERBS eru framleidd
á Blönduósi. n
ICEHERBS fæst í öllum betri
matvöruverslunum, apótekum,
heilsuvöruverslunum og í glæsi-
legri vefverslun iceherbs.is.
Áttræður og orkumikill af D-vítamínblöndunni
Helgi Guðmundsson hefur tekið D-vítamín orkublöndu frá ICEHERBS um
árabil og segir áhrifin ekki hafa látið á sér standa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mannfólkið hefur stundað
gufuböð í þúsundir ára.
Gufubað getur hjálpað fólki
að slaka á eftir erfiðan dag
en það er líka talið geta haft
fleiri heilsubætandi áhrif.
sandragudrun@frettabladid.is
Að fá fólk til að svitna hefur lengi
verið notað sem meðferðarúrræði.
Maya-frumbyggjar notuðu svitahof
fyrir 3.000 árum og í Finnlandi hafa
gufuböð verið stunduð í þúsundir
ára og þau eru enn mjög vinsæl þar
í landi.
Hitastigið í gufuböðum er
yfirleitt á bilinu 70–100 gráður. Í
hefðbundnu finnsku gufubaði er
oft notuð þurrhitun, þar sem raka-
stigið í gufubaðinu er oft á bilinu
10–20%. Í öðrum tegundum gufu-
baða er rakastigið oftast hærra, til
dæmis í tyrknesku gufubaði.
Heilsubætandi áhrif
Þau heilsubætandi áhrif sem oftast
eru nefnd í samhengi við gufuböð
eru slökun og hjartaheilsa. En þó
að gufuböð séu talin geta haft
heilsubætandi áhrif henta þau ekki
endilega öllum.
Gufubað hækkar hitastig húðar-
innar sem gerir það að verkum að
við svitnum. Hjartsláttur eykst
einnig samhliða því að við reynum
að kæla niður líkamann. Óháð
hvaða tegund gufubaða er stunduð,
hvort það er eimbað með miklum
raka, infrarauð gufa eða þurrari
viðargufuböð, þá eru áhrifin á
líkamann svipuð.
Aukinn hjartsláttur vegna hitans
veldur því að æðarnar víkka og
blóðstreymi eykst, á svipaðan hátt
og þegar stunduð er létt til miðl-
ungserfið hreyfing, en þetta veltur
auðvitað á þeim tíma sem varið er
í gufubaðinu. Aukið blóðstreymi
ýtir undir slökun sem hjálpar
við streitulosun og minni streita
minnkar líkurnar á hjarta- og æða-
sjúkdómum. Gufuböð geta einnig
linað verki í mjöðmum og liðum og
þar af leiðandi verið hjálpleg fyrir
gigtarsjúklinga.
Finnsk rannsókn
Í rannsókn sem gerð var í Finnlandi
var fylgst með 2.315 karlmönnum á
aldrinum 42–60 ára á tímabili sem
spannaði 20 ár. Niðurstöður rann-
sóknarinnar gáfu til kynna að fólk
sem stundaði gufuböð var í minni
hættu á að deyja úr hjartasjúk-
dómum. 878 þátttakendanna dóu
úr hjartasjúkdómum. Þátttakend-
urnir voru flokkaðir í hópa út frá
því hversu oft þeir fóru í gufubað.
Einu sinni í viku, tvisvar til þrisvar í
viku og fjórum til sjö sinnum í viku.
Eftir að hafa útilokað áhættu-
þætti hjarta- og æðasjúkdóma var
hægt að tengja aukna gufubaðs-
notkun minni hættu á banvænum
hjarta- og æðasjúkdómum. Þátt-
takendur sem fóru í gufubað tvisvar
til þrisvar sinnum í viku voru
22 prósentum ólíklegri til deyja
skyndilega vegna hjartabilunar en
þeir sem fóru aðeins einu sinni í
viku í gufubað. Þeir sem stunduðu
gufuböð fjórum til sjö sinnum
í viku voru 63 prósentum ólík-
legri til að deyja skyndilega vegna
hjartabilunar og 50 prósentum
ólíklegri til að deyja úr hjarta- og
æðasjúkdómum almennt en þeir
sem stunduðu gufuböð aðeins einu
sinni í viku.
Frekari rannsókna er þörf til að
komast að því fyrir víst hvort raun-
veruleg tengsl eru á milli notkunar
gufubaðs og fækkunar dauðsfalla
vegna hjartasjúkdóma. Enn sem
komið er eru fleiri rannsóknir
sem sýna tengsl milli líkamlegrar
áreynslu og hjartaheilsu svo fólk
ætti ekki að skipta út líkamsrækt
fyrir gufuböð.
Áhrif á Alzheimer
Í sömu rannsókn fundu finnsku
vísindamennirnir tengsl milli
gufubaðsnotkunar og vitglapa
og Alzheimer. Þeir sem stunduðu
gufuböð tvisvar til þrisvar sinnum
í viku voru 22 prósentum ólíklegri
til að fá vitglöp og 20 prósentum
ólíklegri til að fá Alzheimer en þeir
sem stunduðu ekki gufuböð. Þeir
sem stunduðu gufuböð fjórum til
sjö sinnum í viku voru 66 pró-
sentum ólíklegri til að fá vitglöp og
65 prósent minni líkur á að fá Alz-
heimer en þeir sem fóru í gufubað
einu sinni í viku. Frekari rannsókna
er þó þörf til að staðfesta þessar
niðurstöður.
Þó að gufubaðsnotkun í hófi
virðist örugg fyrir flest fólk eru
samt sumir sem þurfa að fara með
gát. Sérstaklega fólk með hjarta-
sjúkdóma og blóðþrýstingsvanda-
mál. Ekki er ráðlegt að vera í gufu-
baði í meira en 20 mínútur í einu og
óvant fólk ætti ekki að vera lengur
inni í klefanum en í 5–10 mínútur.
Einnig er mikilvægt að drekka nóg
af vatni eftir að komið er út úr gufu-
baðinu. n
HEIMILD: MEDICALNEWSTODAY
Gufubað eða líkamsrækt
Margir Finnar stunda reglulega gufuböð. Rannsóknir sýna að þau gætu verið heilsubætandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
4 kynningarblað A L LT 1. febrúar 2023 MIÐVIKUDAGUR