Fréttablaðið - 01.02.2023, Qupperneq 20
Gunnhildur Yrsa,
Dagný og Andrea
Rán Snæfeld Hauks-
dóttir hafa áður leikið í
NWSL-deildinni.
Barcelona keypti
knattspyrnukonuna
Keiru Walsh á metfé
frá Manchester City á
síðasta ári.
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Í gær, á lokadegi félags-
skiptagluggans í helstu knatt-
spyrnudeildum Evrópu, mátti sjá
fréttir af félagsskiptum leikmanna
og mögulegum félagsskiptum.
Þessum fréttum fylgdu oftar en ekki
upplýsingar um háar fjárhæðir sem
knattspyrnufélög væru að borga
fyrir eða bjóða í leikmenn.
Gott dæmi um það var tilboð
enska úrvalsdeildarfélagsins Chel-
sea í miðjumann Benfica, Enzo
Fernandez, sem varð heimsmeistari
með Argentínu undir lok síðasta árs.
Tilboð Chelsea hljóðaði upp á 105
milljónir punda, því sem jafngildir
rúmum 18 milljörðum íslenskra
króna.
Það tilboð er hvergi nærri settu
heimsmeti í karlaboltanum hvað
kaupverð á leikmanni varðar, það
met stendur í 198 milljónum punda,
sem nemur rúmum 34,5 milljörðum
íslenskra króna, þegar að Neymar
var keyptur til Paris Saint-Germain
frá Barcelona árið 2017.
Í k vennaboltanum stendur
heimsmetið er varðar kaupverð á
leikmanni í 400 þúsund pundum,
rétt tæpum 70 milljónum íslenskra
króna og var sett á síðasta ári með
félagsskiptum Keira Walsh til Barce-
lona frá Manchester City.
Á lokadegi félagsskiptagluggans
hverju sinni eru margar upplýsingar
og fréttir í gangi hverju sinni og nær
ómögulegt að fylgjast með öllu því
sem á sér stað á leikmannamark-
aðnum.
Það er ein frétt sem flaug nokkuð
undir radarinn í gær og varðaði til-
boð Arsenal í leikmann kvennaliðs
Manchester United, Alessia Russo.
Tilboð Arsenal hljóðaði upp á rúma
hálfa milljón punda og hefði orðið
að nýju heimsmeti í kvennabolt-
anum ef það hefði verið samþykkt.
Tilboðinu í Russo, sem á aðeins
sex mánuði eftir af samningi sínum
við Manchester United, var hins
vegar hafnað. Viðræður hennar
við Manchester United um nýjan
samning hafa ekki borið árangur
hingað til. n
Sögulegu tilboði Arsenal var hafnað á gluggadeginum
Arsenal vildi fá Alessiu Russo í sínar raðir frá Manchester United.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Svava Rós Guðmundsdóttir,
sóknarmaður íslenska
landsliðsins, gekk í raðir
NJ/NY Gotham í Banda-
ríkjunum á dögunum. Hún
var búin að afþakka tilboð
frá Bandaríkjunum fyrr á
ferlinum en var ákveðin í að
stökkva á tækifærið ef það
byðist í þetta skiptið.
FÓTBOLTI Landsliðskonan Svava Rós
Guðmundsdóttir skrifaði um helg-
ina undir samning við NY/NJ Goth-
am sem leikur í NWSL-deildinni í
Bandaríkjunum. Með því verður
Svava fjórði Íslendingurinn til að
leika í NWSL-deildinni og sér til þess
að Ísland á áfram fulltrúa í deildinni
eftir að Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
yfirgaf Orlando Pride á dögunum.
„Þau hafa fyrst samband fyrir jól
og sögðust hafa mikinn áhuga á mér,
en þau vildu bíða með þetta fram
yfir nýliðavalið í NWSL-deildinni,
áður en það yrði samið við mig. Ég
ætlaði ekki að bíða en lét þau vita að
ef þau kæmu aftur væri ég áhugasöm
um að semja og þau höfðu samband
bara um leið og nýliðavalinu lauk og
vildu ólm semja við mig,“ segir Svava
um aðdraganda félagsskiptanna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lið
í Bandaríkjunum hafa sýnt Svövu
áhuga.
„Það hefur áður verið áhugi frá
Bandaríkjunum, sennilega þrisvar
eða fjórum sinnum sem lið hafa lýst
yfir áhuga sem ég hef fram að þessu
neitað. Ég hef fengið samningsboð
og lið sem reyndu aftur og aftur en
ég neitaði því ég vildi spila lengur í
Evrópu, en það er ekkert sjálfsagt að
komast að í bandarísku deildinni og
ég var ákveðin að skoða tilboðin vel
ef þau kæmu frá Bandaríkjunum í
ár.“
Hún segist vera spennt að spreyta
sig í bandarísku deildinni sem er
með þeim sterkari í heiminum.
„Það er komin mikil spenna, þetta
er öðruvísi og nýtt tækifæri. Ég er
búin að vera í Skandinavíu, lengst af
í Noregi og í Svíþjóð, eitt ár í Frakk-
landi og langaði að fara eitthvert
utan Evrópu. Mér finnst bandaríska
deildin mjög heillandi, hún er mjög
sterk og umfangið er allt í fremstu
röð. Svo eru sterkari leikmenn sem
maður æfir með og spilar gegn svo
að það ætti að hjálpa manni að taka
framförum. Það stóð til boða að vera
áfram í Noregi en ég vildi skoða hvað
væri í boði og ég ákvað að það væri
gott skref að fara í sterkari deild,“
segir Svava sem var áður búin að
leita ráða hjá Gunnhildi og Dagnýju
Brynjarsdóttur um lífið í bandarísku
deildinni.
„Ég talaði við þær fyrir einu eða
tveimur árum þegar kom fyrirspurn.
Þá spurðist ég fyrir og ræddi talsvert
við þær, svo að mér fannst ég vera
orðin nokkuð fróð um deildina.“
Þar sem Gotham vildi í fyrstu
bíða með að semja við Svövu fór
Vildi prófa
að spila
vestanhafs
Svava kom við
sögu í öllum
leikjum Íslands
á EM síðasta
sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Svava slær á
létta strengi
með Svein-
dísi Jane fyrir
leik Íslands og
Frakklands.
landsliðsframherjinn í viðræður
við nokkur lið.
„Það var áhugi víða, meðal ann-
ars voru nokkur ensk lið sem höfðu
samband og vildu fá mig og ég fór í
einhverjar viðræður þar. Það voru
lið frá Portúgal, Spáni, Englandi,
Mexíkó og Bandaríkjunum sem
sýndu áhuga en um leið og Gotham
kom til baka kom ekkert annað til
greina.“
Á dögunum kom upp orðrómur
um að Svava hefði fallið á læknis-
skoðun hjá West Ham en hún segir
það ekki rétt.
„Við fórum út og þegar við
komum á svæðið var samningur-
inn ekki eins og búið var að semja
um áður en ég fór út. Það var búið
að breyta samningnum um það
leyti sem Gotham kom aftur inn í
myndina og þá af þakkaði ég boð
West Ham þótt samningurinn stæði
enn til boða.“
Hjá Gotham mun Svava leika
undir stjórn Juan Carlos Amorós
sem hún segir að hafi áður sýnt sér
áhuga.
„Þjálfarinn á stóran þátt í þessu,
enda hefur hann hefur reynt áður
að fá mig til sín. Ég er búin að tala
mikið við hann og er hrifin af því
hvernig hann vill spila fótbolta og
var í miklum samskiptum við hann.
Ég er mjög spennt að vinna með
honum enda gerði hann frábæra
hluti með Houston Dash seinni
hluta síðasta tímabils.“
Liðið varð meistari á fyrsta tíma-
bili sínu árið 2009 en olli vonbrigð-
um á síðasta ári þegar Gotham lenti
í neðsta sæti deildarinnar.
„Liðið er að vinna í endurnýjun.
Það er komið nýtt þjálfarateymi og
fjölmargir nýir leikmenn. Það er
verið að byggja upp liðið með háleit
markmið sem er spennandi.“ n
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall
@frettabladid.is
16 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR