Fréttablaðið - 01.02.2023, Side 27
Leiklistarskóli SÁL var
rekinn af nemendum
sem stunduðu nám við
skólann og var starf-
ræktur í þrjú ár, frá
1972 til 1975.
tsh@frettabladid.is
Næstkomandi fimmtudag, 2. febrú-
ar, fer fram málþing um Leiklistar-
skóla SÁL í Landsbókasafni Íslands
undir yfirskriftinni Kyndilberar á
kyndilmessu – Samtal um sögu og
tilurð Leiklistarskóla SÁL.
Um þessar mundir er því fagnað
að 50 ár eru liðin frá því að Leik-
listarskóli SÁL hóf göngu sína en
skólinn var settur á stofn í kjöl-
far þess að samtök áhugafólks um
leiklistarnám (SÁL) voru stofnuð
til þess að þrýsta á ríkisvaldið að
stofna leiklistarskóla. Leiklistar-
skóli SÁL var rekinn af nemendum
sem stunduðu nám við skólann og
þótti merkilegt framtak á sínum
tíma. Skólinn var starfræktur í þrjú
ár, frá 1972 til 1975, og var lagður
niður þegar Leiklistarskóli Íslands
var stofnaður 1975.
Tímamótanna hefur verið minnst
með margvíslegum hætti og síðasta
haust var til að mynda opnuð sýn-
ing í Landsbókasafni Íslands sem
samanstendur af ýmsum gögnum og
munum frá sögu SÁL. Sýningin var
opnuð í október 2022 og hefur verið
framlengd til 26. mars 2023.
Málþingið fer fram fimmtudag-
inn 2. febrúar á milli 16.00 og 18.00
í Landsbókasafni/Þjóðarbókhlöðu.
Fundarstjóri er Lísa Pálsdóttir,
leikari og dagskrárgerðarmaður,
en meðal þeirra sem koma fram
eru Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menn-
ingar- og viðskiptaráðherra, Viðar
Eggertsson, leikari og fyrrverandi
leikhússtjóri, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri
Málþing um Leiklistarskóla SÁL í Landsbókasafni
SÁL skólinn var
stofnaður 1972
og starfræktur
til 1975 þegar
Leiklistarskóli
Íslands var
stofnaður.
Myndin hér var
tekin í tilefni
jarðarfarar Sálar.
MYND/JÓN HÓLM
LEIKHÚS
Ex
eftir Marius von Mayenburg
Þýðing: Bjarni Jónsson
Leikstjóri: Benedict Andrews
Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir,
Gísli Örn Garðarsson, Kristín Þóra
Haraldsdóttir og Sesselja Katrín
Árnadóttir
Leikmynd og búningar: Nina
Wetzel
Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Hljóðhönnun: Gísli Galdur
Þorgeirsson og Aron Þór Arnarsson
Sigríður Jónsdóttir
Ex, annar hluti þríleiksins eftir
Marius von Mayenburg, ratar nú
á Stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu ríf-
lega mánuði eftir frumsýningu
fyrsta hluta. Leikhús Reykjavíkur
og víða bjóða upp á sviðslistahlað-
borð um þessar mundir. En í frum-
sýningarveislu síðastliðinna vikna
geymdi Þjóðleikhúsið besta réttinn
þar til síðast.
Sama stofan, sami sófinn, þrjár
nýjar manneskjur. Við erum stödd
á borgaralegu heimili hjónanna
Daníels og Sylvíu sem njóta þess að
grafa undan hvort öðru og sviðsetja
valdabaráttu með öráreiti. Óvænt
heimsókn setur hjónaband þeirra
undir smásjána. Persónurnar spóla
svolítið í sama hjólfarinu en afhjúp-
unin ristir djúpt. Leiktextinn er afar
snjall, samræður fara í spírölum
kringum umræðuefnið, taka óvænta
sveiga og svo allt í einu smellhittir
setning beint í mark. Slíkan texta
geta fáir ráðið við, hvað þá í tvo
klukkutíma samfleytt, en leikhópur
Ex er í úrvalsgæðaflokki.
Angist miðaldra manns
Daníel kemur heim eftir venju-
legan vinnudag, uppgefinn og vill
helst láta sjá um sig, elda fyrir sig og
þjónusta. Gísli Örn tekur sér tíma
til að ganga inn í hlutverkið en nær
svo heljartaki. Hann hlustar vel en er
samtímis fjarlægur. Hápunkturinn
er tilvistarkreppueinræða Daníels,
angist hins miðaldra manns, sem
er þjakaður af lamandi fortíðarþrá
um samband sem átti sér líklega
enga framtíð. Eins og hann sé fórnar-
lamb aðstæðna eða samfélagsins en
ekki fullorðinn maður með ábyrgð
og val. Ástin er auðveld þegar skuld-
bindingarnar eru engar. Samband
tekur þrjú ár að verða raunverulegt,
á meðan er það rómantísk gaman-
mynd, til að umorða brandara úr
franskri sjónvarpsþáttaröð.
Fáir eru betri en Kristín Þóra
Haraldsdóttir þegar kemur að því
að leika konur sem eru vonsviknar,
sífellt leitandi að hinu fullkomna lífi
sem í þeirra huga er ekki bundið við
starfsferil eða stétt heldur ást. Á ein-
hverjum tímapunkti staðnaði Frans-
iska í lífinu og þroska sem Kristín
Þóra kemur til skila með saklausu
augnatilliti og almennu skilnings-
leysi, sem er bráðfyndið og harm-
rænt. Augnablikið þegar raunveru-
leikinn rennur upp fyrir Fransisku
er átakanlegt, gert í þunnu hljóði,
eins og allt loft leki úr henni.
Sviðin jörð
Af og til koma hlutverk til leikara
á hárréttum tíma, eins og þau séu
sköpuð fyrir þeirra hæfileika. Nína
Dögg Filippusdóttir fékk Sylvíu
og átti líklega eitt besta kvöld ævi
sinnar á leiksviði þetta frumsýn-
ingarkvöld. Sylvía er kona sem veit
nákvæmlega hvað hún vill og tekur
það sem hún telur sér ætlað. Nína
Dögg er köld og funheit til skiptis,
klámfengin og settleg, nístandi
fyndin og tragísk. Stundum gustaði
hreinlega af henni og nánast nauð-
synlegt að ríghalda í sætin til að
fjúka ekki út úr salnum. Slíkur var
krafturinn, áhrifin og berskjöldun-
in. Lokaræða Sylvíu er nákvæmlega
eins og persónan lýsir sjálf, slátrun.
Eftir stóð sviðin jörð.
Listræna teymið er hið sama og
í fyrri sýningunni, saman sett af
fagfólki sem skilur að leikrit á borð
við Ex þarf ekki skraut heldur list-
rænan og lágstemmdan stuðning.
Leikmynd Ninu Wetzel og búningar
standa fyrir sínu, silki tekst á við illa
sniðinn útsölufatnað. Tónlist Gísla
Galdurs kraumar undir yfirborðinu
eins og fljótandi hraun sem þrýstist
upp á yfirborðið, hljóðmyndin sem
hann vinnur með Aroni Þór hefur
sömu áhrif. Lýsing Björns Bergsteins
leiftrar í takt við framvinduna og
síðasti rammi Ex er listaverk.
Baneitrað og bráðfyndið
Benedict Andrews nálgast Ex með
sömu aðferðum og Ellen B. Hann
leyfir textanum að njóta sín og setur
fókusinn á persónur leikverksins en
finnur rétt augnablik til að brjóta
upp stofudramað, splundra fjórða
veggnum og minna áhorfendur
hressilega á að þeir eru staddir í
leikhúsi. Augnablikið þegar Nína
birtist úti í sal undir lok leiks er ein-
staklega vel útfært, áhorfendur vita
ekki hversu lengi hún hefur verið að
hlusta á eiginmann sinn argast út í
ímyndað óréttlæti heimsins. Sömu-
leiðis eru atriðin með Betu, dóttur
hjónanna, áferðarfögur og áhrifa-
mikil áminning um bæði sakleysi
barna og ábyrgð foreldra.
Ex er svo sannarlega ekki róman-
tísk gamanmynd eða frönsk kvik-
mynd þar sem konurnar taka að
lokum höndum saman, segja feðra-
veldinu stríði á hendur og kvöld-
stundin leysist upp í lesbíska orgíu,
eins og ein persónan segir. Hér er á
ferðinni baneitruð og bráðfyndin
aðför að menntuðu millistéttinni,
miðaldrakrísu og fortíðarþrá. Nína
Dögg, Gísli Örn og Kristín Þóra grípa
leikverk Meyenburg með báðum
höndum, smjatta á textanum og
snúa áhorfendur niður með aðstoð
frábærrar leikstjórnar. n
NIÐURSTAÐA: Ekki missa af.
Kaupið miða. Strax.
Viðbrennt lasagna og sviðin jörð
Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson leika hjónin Daníel og Sylvíu sem fá óvænta heimsókn frá Fransisku leikinni af Kristínu Þóru Haraldsdóttur.
MYND/JORRI
Nína Dögg, Gísli Örn
og Kristín Þóra grípa
leikverk Meyenburg
með báðum höndum,
smjatta á textanum og
snúa áhorfendur niður
með aðstoð frábærrar
leikstjórnar.
og ráðherra, og Ása Helga Proppé
Ragnarsdóttir, aðjúnkt emeritus við
Háskóla Íslands. Öllum er boðið að
koma, hlusta og njóta en að lokinni
dagskrá verður móttaka í Þjóðar-
bókhlöðu. n
FRÉTTABLAÐIÐ MENNING 231. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR