Fréttablaðið - 01.02.2023, Síða 28
Hún fór
yfir á
Morgun-
blaðið
þegar
pabbi fór
þangað og
svo held ég
að hún hafi
endað
ævina á
Dagblað-
inu.
Ástþór Gíslason
Fiskverkakonan Sigga Vigga
hlýtur með réttu að geta
talist fyrsta íslenska mynda-
söguhetjan en hún kom víða
við sem slík í dagblöðum á
síðustu öld. Fimm bækur
Gísla J. Ástþórssonar um hana
hafa lengi verið ófáanlegar
en afkomendur hans vinna
nú að veglegri endurútgáfu
þeirra í tilefni þess að Gísli
hefði orðið 100 ára í apríl.
toti@frettabladid.is
Gísli J. Ástþórsson var framsækinn
blaðamaður, ritstjóri, rithöfundur
og teiknari en myndasögur hans
um ævintýri Siggu Viggu teljast til
fyrstu kynslóðar íslenskra mynda-
sagna og er fyrsta bók seríunnar
jafnframt talin fyrsta útgefna
íslenska myndasögusafnið.
„Hún birtist fyrst í Alþýðublað-
inu 1959 og var svona nokkurn veg-
inn fullsköpuð í lok þess árs,“ segir
Ástþór Gíslason, sjávarlíffræðingur
og sonur Gísla J. Ástþórssonar, höf-
undar hinna rómuðu myndasagna
um Siggu Viggu sem birtist lands-
mönnum fyrst reglulega á síðum
Alþýðublaðsins.
„Ég held reyndar að hann hafi
ekki verið þar nema fjögur eða
fimm ár og hún fór síðan yfir á
Morgunblaðið þegar pabbi fór
þangað og svo held ég að hún hafi
endað ævina á Dagblaðinu.
Sigga Vigga var sennilega fyrsta
teiknimyndapersónan sem öðlað-
ist svona sjálfstætt líf í seríu sem
birtist í mörg ár. Jafnvel áratugi
held ég ef allt er talið og þótt ég segi
sjálfur frá þá held ég að óhætt sé að
segja að hún hafi verið einstök að
því leyti að hún var spratt upp úr
íslenskum veruleika eins og hann
var þá. Sjómennsku, fiskvinnslu og
slíku.“
100 ára afmælisútgáfa
Gísli gaf einnig út fimm mynda-
sögubækur um Siggu Viggu sem
komu út á árabilinu 1978–1980.
Þær hafa lengi verið ófáanlegar
en Ástþór og börnin hans,
Sunna og Eldar, stefna á
veglega viðhafnarútgáfu á
bókunum sem þau vonast
til að geta gefið út í tengsl-
um við yfirlitssýningu
um fjölbreytilegan feril
Gísla sem verður opnuð
í Bókasafni Kópavogs
þann 16. mars.
„Hann pabbi hefði
orðið 100 ára núna í
apríl og af því tilefni
erum við að skipu-
leg g ja s ý n i ng u á
verkum hans í mars
og apríl og í tengslum
við það kom upp sú hug-
mynd að endurútgefa
my ndasög ubæk u r nar.
Það var svona rótin að
þessu,“ segir Ástþór.
Fjölskylduverkefni
Au k Su nnu og Eldars
kemur tengdasonur Ást-
þórs, Chris Petter Spilde,
að útgáfunni en hann
heldur utan um hönnun
og u mbrot þa r sem
áherslan er á að koma
öllum höfundareinkenn-
um Gísla til skila með því
að halda í upprunalegt
útlit og snið, uppsetningu
og pappír.
„Það má alveg segja að
þetta er svona fjölskyldu-
prójekt sem er að hluta fjármagnað
í gegnum Karolínu,“ heldur Ástþór
áfram en fjölskyldan stefnir að
hópfjármögnun útgáfunnar á Kar-
olinafund.com. Þegar þetta birtist
hafa um 50 prósent safnast þegar
33 dagar eru enn til stefnu.
Upplag útgáfunnar verður tak-
markað þannig að væntanlega er
rétt að benda áhugasömum á að
vera ekkert að slóra við að leggja í
púkkið?
„Jú, jú. Endilega. Við erum bara
þakklát fyrir alla sem drífa sig í
það.“
Lífið er saltfiskur
Bókaflokkurinn Sigga Vigga
og t ilveran dreg ur upp
mannlega, broslega og beitta
mynd af íslenskum sjávar-
útvegi og fiskvinnslu. Sigga
Vigga hefur unnið í saltfiski
hjá Þorski h/f síðan hún man
eftir sér, er ósérhlífin, skap-
góð og dugleg þannig að
hún lendir oftast í verstu
verkefnunum.
Henni verður þó aldrei
misdægurt en þarf grun-
samlega oft að vera við
jarðarför ömmu sinnar
þegar landsleik ber upp
á vinnudag. Bjartsýni
Blíðu, bestu vinkonu
Siggu Viggu, er óbilandi
og hún er stöðugt á eftir
kærasta sem helst þarf
að eiga trillu og forskalað
hús.
Ástþór útilokar ekki að
líta megi á Siggu Viggu sem
ein hvers konar verkalýðs-
hetju og sem slík eigi hún
mögulega erindi við samtím-
ann. „Já, það má vel vera. Hún
var náttúrlega þeim megin og hún
og Blíða voru í svona eilífu stríð við
forstjórann Gvend hjá Þorski h/f.“
Sem eigandi Þorsks h/f var
Sigga Vigga
á færibandinu
þokast nær
Bækurnar um Siggu
Viggu
n Sigga Vigga og tilveran
(1978)
n Fjörutíu og sjö snúðar
(1979)
n Sigga Vigga og þingmaður-
inn (1979)
n Sigga Vigga í steininum
(1980)
n Stattu klár Sigga Vigga
(1980)
Gísli J. Ástþórsson
(1923–2012)
Gísli J. Ástþórsson fæddist í
Reykjavík 5. apríl 1923 og var
á sinni tíð þekktur sem blaða-
maður, ritstjóri, rithöfundur,
pistlahöfundur og teiknari.
Hann lærði blaðamennsku
i háskóla í Bandaríkjunum
árin 1943–45 og var senni-
lega fyrsti menntaði íslenski
blaðamaðurinn.
Gísli sló nýjan tón í blaða-
mennsku á Íslandi og lagði
áherslu á fréttaflutning óháð
flokkspólitík. Hann var einnig
fjölhæfur listamaður og eftir
hann liggja skáldsögur, smá-
sögur, barnabók og leikrit,
auk myndasögubóka um
Siggu Viggu. Einnig var hann
með þætti í útvarpi.
Fyrstu árin að loknu námi
starfaði Gísli á Morgunblað-
inu. Þaðan lágu leiðir Gísla
víða, til sjós og lands. Hann
stofnaði meðal annars og
ritstýrði blaðinu Reykvíkingi,
var ritstjóri Vikunnar og síðar
Alþýðublaðsins sem undir
stjórn Gísla efldist mjög
undir formerkjum harðrar og
óháðrar blaðamennsku sem
og vandaðs umbrots.
Á Alþýðublaðsárunum
birtust einnig fyrstu ádeilu-
teikningar Gísla, til að mynda
ævintýri Siggu Viggu. Gísli
sneri aftur til Morgunblaðsins
árið 1973, stýrði meðal ann-
ars Sunnudagsblaðinu og hélt
áfram að birta ádeilumyndir.
Ber þar kannski hæst skop-
myndaseríuna Þankastrik.
Gísli var einkar fjölhæfur og
eftir hann liggja átta bækur,
skáldsögur og smásagna-
söfn, fjögur leikrit, þar af
þrjú sjónvarpsleikrit, pistlar,
teikningar, bækurnar fimm
um Siggu Viggu auk teikni-
myndasafnsins Plokkfisks.
Gísli J. Ástþórsson kom víða
við á nær hálfrar aldar blaða-
mannsferli.
Upphafið
Þann 9. maí árið 1959 birtist
skopmynd í Alþýðublaðinu
eftir Gísla J. Ástþórsson,
blaðamann, rithöfund og
teiknara. Myndin birtist í
miðju þorskastríði og sýndi
litla stelpuskjátu í stígvélum
og með naglaspýtu; hún hafði
grætt breskan flotaforingja
með hrekkjum sínum.
Myndin vakti mikla athygli
og birtist á síðum erlendra
stórblaða, meðal annars í
London Times. Í kjölfarið óx
orðstír og ásmegin stúlkunn-
ar, og fiskverkakonan knáa
Sigga Vigga varð til.
Gvendur í sífelldum kröggum,
rembdist við að vera harður hús-
bóndi og grét á útborgunardögum.
„En það var samt eitthvað gott í
Gvendi líka. Hann var ekki alvond-
ur,“ segir Ástþór og hlær og bætir
við að auðmenn liðins tíma hafi
kannski ekki verið alveg í Excel-
örkinni.
Magnaðar sögur
Allar bækurnar fimm verða saman
í öskju í viðhafnarútgáfunni og
fjölskyldan hefur fengið Úlf hildi
Dagsdóttur, bókmenntafræðing
og myndasögusérfræðing, til þess
að rita formála.
„Okkur fannst gott að fá hana og
hún var meira en til og þetta verður
allt saman í kassanum. Bækurnar
fimm og svona formálahefti með,“
segir Ástþór. Sagnfræðingurinn
Stefán Pálsson, sá mikli mynda-
sögumaður, verður auk Úlf hildar
með erindi á opnun yfirlitssýning-
arinnar í mars en hann hefur áður
haft þetta um Siggu Viggu að segja:
„Sögurnar um Siggu Viggu eru
magnaðar. Ekki bara vegna þess
að þær tilheyra fyrstu kynslóð
íslenskra myndasagna, heldur
vegna yrkisefnisins.“
Ástþór segir sýninguna þó víð-
feðmari en svo að þar sé lífið bara
saltfiskurinn hennar Siggu Viggu.
Þar verði leitast við að gera rit-
höfundinum, blaðamanninum,
og teiknaranum skil. „Við erum
náttúrlega með ýmislegt úr búi
pabba og mömmu og þegar við
fórum svona að róta í hans dóti þá
sá maður kannski að hann var tals-
vert afkastamikill. Bæði í þessum
teiknimyndaseríum og rithöf-
undarferillinn var nokkuð langur
líka.“ n
Ástþór Gíslason segir viðhafnarútgáfu teiknimyndasagna föður síns hálfgert fjölskylduverkefni enda standa börnin
hans, Sunna og Eldar, við færibandið ásamt honum og tengdasyninum Chris Petter Spilde. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þjóðhetjan og fiskvinnslu-
konan Sigga Vigga hyggur á
löngu tímabæra endurkomu.
24 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR