Fréttablaðið - 01.02.2023, Blaðsíða 29
Leikfélag Akureyrar frum-
sýndi margverðlaunaða söng-
leikinn Chicago um helgina
og leikhús- og leikstjórinn
Marta Nordal segir viðtök-
urnar hafa verið rosalegar og
þótt hún hafi komið víða við
og séð margt hafi hún aldrei
upplifað aðra eins stemningu.
toti@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
Marta Nordal, leikstjóri Chicago,
segist aldrei hafa upplifað aðra eins
stemningu og sveif yfir Akureyri og
leikhúsinu þar um helgina þegar
söngleikurinn var loksins frum-
sýndur fyrir norðan.
„Viðtökurnar voru rosalegar.
Þetta var geðveikt, miðarnir eru
bara rifnir út enda er þetta gríðar-
lega mikið „show“. Sýningin er
of boðslega skemmtileg og fyndin
og hefur magnaða dansa og frá-
bæra dansara og danshreyfingar
og eiginlega bara allt saman.“
Marta viðurkennir að mikið
spennufall hafi fylgt í kjölfar frum-
sýningarinnar. „Svona er leikhúsið,
þetta er náttúrulega ótrúlega mikil
vinna og svo allt í einu fyrirvara-
laust er komið að þessu,“ segir hún
og hlær.
„Þetta var rosalegt spennufall
og skrítnar tilfinningar. Þannig er
lífið í leikhúsinu, enda biluð vinna
að baki og svo er maður bara búinn
á því.“
Marta segist því eðli málsins
samkvæmt gleðjast mikið yfir
aðsókninni á sýninguna. „Ég hef
ekki séð svona aðsókn síðan ég
byrjaði og ég hef nú verið í
kringum margar sýningar
en eftirvæntingin núna er
rosaleg. Það þurfa bara
allir að skella sé norð-
ur, á skíði, út að borða
og á sýningu!“ n
Magnaðir dansar
í Chicago norðursins
Það er heldur
betur handa-
gangur í
öskjunni í
villtum, trylltum
stórborgar-
fílíng Chicago á
Akureyri.
MYNDIR/LA
Dans-
inn dunar í
geðveikri stemn-
ingu fyrir norðan þar
sem söngleikurinn fær
slíkar viðtökur að leik-
stjórinn hefur aldrei
séð annað eins.
Það
gustar af
Jóhönnu Guðrúnu
í öðru aðalhlutverk-
anna sem sjálf Cath-
erine-Zeta Jones gerði
skil í kvikmynda-
útgáfunni.
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 251. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR