Fréttablaðið - 01.02.2023, Side 30
Það er nú líklegt að
Þórhildur Þorleifs hafi
farið hærra með Stellu í
orlofi.
Miklar og mjög svo almennar
vinsældir íslensku kvikmynd
arinnar Villibráðarinnar urðu
til þess að Elsa María Jakobs
dóttir er orðin fyrsta leik
stýran til þess að rjúfa 30.000
áhorfenda múrinn frá því
mælingar hófust 1995.
toti@frettabladid.is
Heildarfjöldi þeirra sem hafa séð
bíómyndina Villibráðina í leik
stjórn Elsu Maríu Jakobsdóttur er
kominn í 32.334 eftir fjórar sýn
ingarhelgar en í liðinni viku dró
myndin 8.140 manns í kvikmynda
hús.
„Ég er bara rífandi ánægð og
gaman einhvern veginn að fólk
skuli vera að fíla þetta og hafa jafn
gaman af þessu og við erum búin að
gera síðastliðin þrjú ár,“ segir Elsa
María sem fagnar því að vera fyrsta
konan sem leikstýrir íslenskri kvik
mynd sem kemst yfir 30.000 áhorf
enda markið.
„Síðan mælingar hófust,“ áréttar
hún og bendir á að hún viti ekki
hverjar óformlegar aðsóknartölur
hinnar fádæma vinsælu Stellu í
orlofi frá 1986 séu.
„Það er nú lík
legt að Þórhildur
Þorleifs hafi farið
hærra með Stellu
í orlofi,“ bætir Elsa
María við en form
legar aðsók nar
mælingar hófust
1995, fyrir 28 árum.
Stella Löve hefur
enda verið frek
til f jörsins f y r r
og síðar þar sem
hingað til hefur
Guðný Halldórs
dóttir komist næst
því að rjúfa þakið
með Stellu í fram
boði sem skilaði 29.496 áhorfendum
í bíó 2002.
Fylgist með tölunum
„Já, já. Maður fylgist með tölunum
og sérstaklega eftir helgina,“ segir
Elsa María þegar hún er spurð hvort
hún fylgist spennt með nýjustu
tölum frá kvikmyndahúsunum en
flest bendir til þess að Villibráðin
eigi enn töluvert inni.
„Myndin er ekkert farin að dala
enn þá og komin á fimmtu viku
heldur hún einhvern veginn enn
velli og það er mjög spennandi að
sjá,“ segir leikstýran sem veit til þess
að eitthvað sé um að fólk sé búið að
sjá myndina oftar en einu sinni.
„Ég bara frétti af fólki á níræðis
aldri og ellefu ára börnum að lauma
sér á myndina. Ég veit
af einum sem er búinn
að fara þrisvar og fólki
sem er búið að fara
aftur til þess að læra
brandarana.
Það er líka svolítið
f lókin f létta í gangi
þannig að það getur
verið gaman að sjá
myndina aftur með
öðrum augum þann
ig að maður veit ekki hversu margt
af þessu er fólk sem er að drífa sig
aftur.“
Eitthvað fyrir alla
Elsa María viðrar síðan þá kenn
ingu sína um að myndin höfði til
jafn breiðs hóps og aðsóknartölur
bera vitni vegna þess að í henni sé
eitthvað fyrir alla. „Það eru sam
bandserjur, myndlist, rauðvín og
typpabrandarar. Eitthvað fyrir alla.“
Elsa María segir allt vinnsluferli
myndarinnar hafa verið ótrúlega
skemmtilegt. „Við erum öll búin að
hafa óskaplega gaman af þessu og
það er einmitt svo skemmtilegt og
gaman að mæta áhorfendum í svip
uðum fíling.“
Hún segist aðspurð alveg frá
handritsvinnunni vissulega hafa
talið sig vera með gott efni í hönd
unum en hafa þó ekki getað séð
þessar miklu vinsældir fyrir. Hún
kunni hins vegar mögulega skýr
ingu á þessu.
„En ég held það sé kannski þetta
extra frelsi sem felst í því að vita að
maður er bara að skrifa fyrir íslenska
áhorfendur þannig að það er hægt
að gefa sérstaklega í og vera með alls
konar vísanir og brandara sem skilj
ast bara í okkar samhengi og er held
ég alveg sérlega þakklátt í salnum.
Þetta spilast alveg rosalega vel og
maður upplifir bara svo mikið þakk
læti fyrir að fólki finnst þetta vera
svo mikið um okkur, hér og nú. Og
það er bara hægt að ganga alla leið
í því.“ n
Elsa María sprengir þrjátíu
þúsund áhorfenda þakið
Elsa María fylgist spennt með nýjustu tölum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
toti@frettabladid.is
„Þetta er klárlega afrek, myndi ég
segja, og kannski líka til marks um
hversu fersk hver og ein sýning er í
rauninni,“ segir Ólafur Ásgeirsson,
listrænn stjórnandi spunahópsins
Improv Ísland sem fagnar sjö ára
sýningarafmæli með sinni 163.
sýningu í Þjóðleikhússkjallaranum
klukkan 20 í kvöld.
Ólafur bendir á að engar tvær
sýningar hópsins séu eins. „Það er
aldrei sama fólkið eða sama efnið og
sýningin aðlagast þannig og breytist
bara með tíðarandanum.“
Ólafur segir hópinn síferskan og í
stöðugri endurnýjun þar sem hæfi
leikafólk streymi þar í gegn. Fortíð,
nútíð og framtíð séu þannig þema
sýningarinnar í kvöld þegar þrír
hópar mætast. Þar á meðal nýliðar
og fólk sem er hætt og komið í önnur
og jafnvel launuð verkefni.
„Þetta er svolítið rekið á ástríð
unni. Þetta er líka bara rosa góður
skóli og við viljum jafnvel meina að
þetta sé ákveðin menningarstofnun
sem er búin að skila af sér mjög
skemmtilegu fólki,“ segir Ólafur og
nefnir sérstaklega síðasta áramóta
skaup en Dóra Jóhannsdóttir, leik
stjóri þess og einn höfunda, var
meðal stofnenda hópsins og fyrsti
listræni stjórnandi hans.
Fyrrverandi meðlimirnir sem
koma fram í kvöld eru Vala Kristín
Eiríksdóttir, Jóhann Kristófer Stef
ánsson, Oddur Júlíusson, Katrín
Halldóra Sigurðardóttir og Búi
Bjarmar Aðalsteinsson.
Ólafur er sjálfur einn stofnmeð
lima Improv Ísland og var á sviðinu
á frumsýningunni í febrúar 2016.
„Vonandi verður lifir þetta bara
góðu lífi þá,“ segir Ólafur þegar
hann er spurður hvort hann sjái
fyrir sér önnur sjö ár en bindur
jafnframt vonir við að þá verði ein
hver annar tekinn við stöðu listræns
stjórnanda. n
Stöðugur spuni í sjö ár
Ólafur Ásgeirs-
son, listrænn
stjórnandi
Improv Ísland
26 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR