Fréttablaðið - 01.02.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN & DREIFING
Torg ehf.
2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
BAKÞANKAR |
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
„Má ég færa ykkur eitthvað, svo
sem kampavín eða kakó?“ sagði
hótelþjónninn á heimilislega hótel-
inu þar sem ég gisti nýverið ásamt
góðum konum í París. Ég mundi vel
eftir þjóninum. Fyrir fjórum árum
dvaldi ég á sama hóteli ásamt vin-
konu og á kvöldin færði hann okkur
heitt kakó upp á herbergi. Þá vorum
við himinlifandi með þjónustuna.
Tilfinningin nú var önnur. Þar sem
ég sat í sófanum og horfði á mann-
inn spjalla við okkur með brosinu
sínu breiða byrjaði ég að ímynda
mér að hann væri kannski ekki allur
þar sem hann væri séður. Til að gera
söguna enn dramatískari sá ég hann
orðið fyrir mér sem hótelþjóninn
Norman Bates í sturtuatriðinu
fræga úr hrollvekjunni Psycho.
Hvernig má það vera að upplifun
mín á manninum var allt önnur
nú en fyrir fjórum árum? Skyldi
aftakaveður á internetinu eiga sinn
þátt? Það má vart opna vefmiðla
án þess að sjá dómstól götunnar
draga ný nöfn fram í dagsljósið
með skafrenningi af ásökunum um
ósmekklegt athæfi. Með þessu er ég
ekki að lýsa yfir sakleysi neins og
vissulega er eðlilegt að við vitum af
brotamönnum sem ganga lausir. En
„ég-líka“ byltingin hefur því miður
enn ekki dregið úr ofbeldi gegn
konum þótt hún hafi opnað augu
okkar fyrir misrétti og ofríki. Við
þurfum áhrifaríkari nálganir.
Með byltingunni er ég líka orðin
tortryggnari gagnvart karlmönnum
og ég velti fyrir mér hvort stundum
sé of langt gengið. Mig langar ekki
að vera sú manneskja sem dæmir
alla karlmenn fyrir fram sem níð-
inga. Það eru nefnilega flestir góðir,
mögulega líka hótelþjónninn … sem
hefði örugglega látið vaða þarna
fyrir fjórum árum síðan, þegar við
vorum bara tvær en ekki fjórar, væri
hann vondur. n
Hótelþjónninn