Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 16
Vatnsmelónu á Monkeys Veitingastaðurinn Monkeys er stað- settur á Klapparstíg 28–30 í einstak- lega fallegu húsnæði. Kokkarnir á Monkeys blanda saman japanskri og perúskri matargerð á ótrúlega skemmtilegan hátt og er maturinn afar bragðgóður. Við mælum sér- staklega með vatnsmelónu carp accio sem kemur skemmtilega á óvart. Bragðarefnum Bjössa Íslendingar hafi lengi verið þekktir fyrir ísát í hvers kyns veðri en með hækkandi sól má gera ráð fyrir f leiri ferðum í ísbúðina. Bragða- refur er alltaf klassískur og sá besti að okkar mati er Bjössi í Huppu. Í Bjössa er Hockey Pulver, Daim og karamelludýfa. Í Huppu má finna fjölda ísrétta ásamt klassískum ís í brauði. Það er frjálst sætaval, þannig að tónleika- gestir ráða hvort þeir setjist í sitt stjörnu- merki eða hvort þeir vilja velja sér eitthvert annað merki. Sigrún Harðardóttir Verkið er um þetta ferli að lána líkamann í sköpun og eignast hann síðan aftur. UM HELGINA | VIÐ MÆLUM MEÐ | BJORK@FRETTABLADID.IS Minning- arnar eru nefnilega mikilvægar enda því miður fáar í slíkum tilfellum. bjork@frettabladid.is Önnur sýning á verkinu Hringrás er í kvöld, laugardagskvöld, á Litla sviði Borgarleikhússins. Hringrás er nýtt verk eftir Þyri Huld Árnadóttur unnið í samstarfi við Íslenska dansf lokkinn, Urði Hákonardóttur tónskáld, Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur, búninga- og leikmyndahönnuð, og Sögu Sigurðardóttur ljósmyndara sem sér um myndbandsinnsetningu í sviðsmynd. Anni Ólafsdóttir klippir allt efnið saman. Þyri Huld Árnadóttir hóf feril sinn hjá Íslenska dansf lokknum árið 2010 og hefur tekið þátt í fjöl- breyttum verkefnum sem dansari og danshöfundur og tvisvar hlotið Grímuverðlaun sem dansari ársins. „Ég dansaði mig í gegnum tvær meðgöngurnar en tvö ár eru á milli strákanna minna. Á seinni meðgöngunni minni var Covid og dansflokkurinn var að leitast eftir nýjum leiðum til að gera dansinn sýnilegan. Ég fékk þá tækifæri á að gera vídeóverk þegar ég var komin 27 vikur á leið sem er uppsprettan að verkinu. Þegar ég var komin 38 vikur á leið opnaðist leikhúsið og ég sýndi live-útgáfu af vídeóverk- inu. Ég tók síðan aftur upp þegar strákurinn minn var tveggja vikna og sótti um styrk í sviðslistasjóði til að gera sýninguna Hringrás. Það var svo mögnuð upplifun fyrir mig að vera ólétt, fæða barn og vera með barn á brjósti. Ég vinn með líkamann minn á hverjum degi sem dansari en að upplifa þessa breytingu á líkaman- um og hvað hann teygist og breytist og þróast með hverri barneign er magnað. Verkið er um þetta ferli að lána líkamann í sköpun og eignast hann síðan aftur.“ n Dansar til heiðurs kvenlíkamanum Þyrí Huld gerði vídeóverk á seinni meðgöngu sinni MYND/AÐSEND Á morgun, sunnudag, ættu aðdáendur kammertónlistar og áhugafólk um stjörnu- merki að leggja leið sína í Hörpu þar sem Kammerhóp- urinn Cauda Collective flytur tvö ný tónverk undir yfir- skriftinni Öld vatnsberans. bjork@frettabladid.is Okkur í Cauda Collective finnst gaman að hrista aðeins upp í þessu k lassíska tónleika- formi. Það er svo margt hægt að gera til að útvíkka upplifun áhorfandans og finna leiðir fyrir f lytjendur til að tengjast áhorf- endum betur,“ segir Sigrún Harðar- dóttir, fiðluleikari sveitarinnar, sem flytja mun verk eftir Stockhausen, Finn Karlsson og Fjólu Evans á tón- leikum með stjörnumerkjaívafi á sunnudag. Á tónleikunum verður flutt tón- verkið Dýrahringurinn eða Tier- kreis eftir Stockhausen í nýrri útsetningu meðlima Cauda Col- lective. Verkið er í tólf köflum og táknar hver kafli sitt stjörnumerki. Tónleikagestir sitja í sætum röð- uðum í stóran hring og hver og einn tónleikagestur sest í stól merktan sínu stjörnumerki. Flytjendur eru svo staðsettir í miðjum hringnum og snúa að viðkomandi stjörnu- merkjahóp í hverjum kafla fyrir sig. „Það er frjálst sætaval, þannig að tónleikagestir ráða hvort þeir setjist í sitt stjörnumerki eða hvort þeir vilji velja sér eitthvert annað merki,“ segir Sigrún. „Það er svo fyndið hvað hópurinn er allur orðinn áhugasamur um stjörnuspeki eftir að við byrjuðum að æfa fyrir þessa tónleika. Núna erum við öll að pæla í stjörnu- merkjunum. Við erum auðvitað mis-skeptísk á þetta allt saman, en það er eitthvað við þessa dulúð sem kitlar,“ segir hún. Við þennan nýfundna áhuga kom í ljós að meirihluti hópsins er fæddur í sporðdrekamerkinu. „Ég sjálf er vatnsberi og tónleik- arnir eru meira að segja 5. febrúar, á afmælisdaginn minn. Finnur Karls- son sem skrifar verkið Aquarius sem við frumflytjum á tónleikunum, er líka vatnsberi þannig að við erum aldeilis ánægð að öld vatnsberans sé gengin í garð. Svo erum við með hrút, naut, tvíbura, meyju og ljón. Ég held að þetta sé nokkuð góð sam- setning, enda erum við fjölbreyttur hópur með mismunandi styrkleika. Okkur vantar þó fiska, krabba, vog, bogamann og steingeit, þannig að við auglýsum eftir samstarfsaðilum í þeim merkjum fyrir næstu tón- leika,“ segir hún í léttum tón. Samkvæmt stjörnuspekingum hefur nú gengið í garð öld vatns- berans, tímabil sem á að einkenn- ast af mikilli endurskipulagningu á heimsmynd mannanna; fyrst með niðurbroti og svo með endurupp- byggingu, en einnig af vaxandi víð- sýni mannshugans. Valdi hópurinn því þessa yfirskrift yfir tónleikana á sunnudaginn. „Á öld vatnsberans munu menn í auknum mæli vilja vaxa og vinna saman að friði og þess vegna er talið að tímabilið muni fyrst ein- kennast af umróti og óstöðugleika, sem síðan færir mannkynið í átt að jákvæðum breytingum. Þá munu fylgja vatnsberanum tækninýjung- ar og byltingarkenndar uppgötvanir í vísindum. Upphaf tímabilsins markast af því að Júpíter og Satúrnus mætast í vatnsbera og er það í fyrsta skipti í um 200 ár sem pláneturnar hittast ekki í jarðmerki, heldur í loftmerki. Þegar þetta gerist á mannkynið eftir að upplifa von og nýsköpun í auknum mæli en loftmerki himin- geimsins tákna samvinnu og tækni- nýjungar.“ n Fagna öld vatnsberans Kammersveitin Cauda Collective fagnar öld vatnsberans í Hörpu á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARIÞórunn Pálsdóttir, einn stofnenda Gleym mér ei, styrktarfélags til stuðnings við for- eldra sem missa barn á meðgöngu og í eða eftir fæðingu, segir í viðtali hér í blaðinu frá starfi sínu fyrir félagið en einnig eigin reynslu af því að missa barn á meðgöngu. Í ár fagnar félagið 10 ára afmæli og þó að heilmikið hafi færst til betri vegar á þeim tíma er þó stutt síðan foreldrar báru slíkan harm í hljóði. Þórunn sem starfar sem ljósmóðir og brjóstagjafar- ráðgjafi þekkir bæði gleðina og sorgina úr starfi sínu og á eigin skinni og hefur í gegnum störf sín ásamt fleirum breytt miklu þegar kemur að viðbrögðunum við því þegar gleðin og eftirvæntingin breytist í ólýsanlega sorg. Í dag eiga foreldrar þess kost að hafa andvana fætt barn hjá sér í tvo til þrjá daga fyrir til- stuðlan sérstakra kælivagga sem félagið festi kaup á, auk þess sem þau fá fallegan minningakassa. Minningarnar eru nefnilega mikilvægar enda því miður fáar í slíkum tilfellum. Það hefur sýnt sig að slíkt skiptir miklu enda segir Þórunn frá því hvernig eldra fólk sem aldrei fékk að vinna úr sinni sorg, jafn- vel ekki að sjá barn sitt, glímir enn við afleiðingar þess komið á efri ár. n Gleði verður sorg 14 HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.