Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 20

Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 20
 WáJMí VS '/'■ ' -Jé<-Æ w w ^ 1 ÉMl. f ■■ vf ■ Bjössi með 18 punda fisk sem var tekinn í svarta myrkri á Sunray Shadow. Og það enga smáflugu eins og sjá má í kjaftinum á honum. og ganga frá. Veiðistaðurinn heitir því heillandi nafni Daisy Island. Þetta er fremur langur en grunnur strengur sem breiðir úr sér þegar neðar dregur. Við hylinn á bjórafjölskylda heimili með tilheyrandi drasli og trjágreinum. Bjórinn velur sér gjarnan bólstað þar sem dýpið er mest og á það sameiginlegt með silungnum í Rio Grande. Það þurfti að kasta alveg að útidyrunum hjá bjórnum og fjölskyldu til að egna fyrir silunginn. Gústi náði góðu kasti alveg á dyrabjölluna og "mendaði" vel svo að Peacock púpan sökk hratt enda þyngd með kúlu. Þetta var Peacock að heiman sem Gústi hafði sjálfur hnýtt. Það var þrifið í línuna og boldangsfiskur lyfti sér upp úr vatninu skömmu eftir að Gústi tók á honum. "Leiðsögumaðurinn öskraði eins og stunginn grís þegar hann áttaði sig á því hvað þetta var stór fiskur." Gústi hlær að minningunni. Svona stór fiskur beitir öllum brögðum sem finnast í bókinni og þessi hálftíma langa barátta var æði tvísýn. Ekki þurfti að forðast grjót, miklu fremur híbýli bjórsins þar sem greinar sköguðu út í ána og hefðu kubbað átta punda tauminn í sundur eins og tvinna. Þetta slapp þó og Gústi landaði fiskinum og fékk flotta mynd. "Hann var 28 pund í háfnum." Þegar þyngd háfsins hafði verið dregin frá var fiskurinn bókaður 25 pund. Gústi segir að þeir bóki bara í heilum pundum og telur sjálfur að þessi fiskur hafi verið nær 26 pundum. Steik og rauðvín, steik og ... Rio Grande er svipuð að stærð og Ytri Rangá. Gústi notaði einhendu fyrir línu átta og flotlínu. Bjössi var með margs konar útfærslur, allt frá flotlínu til sökklínu og allt þar á milli. Þeir veiddu ekki mikið andstreymis. Gústi kastaði þvert og var ýmist að strippa eða "menda" vel til tryggja að flugan sykki. Mikið var af fiski í ánni og sums staðar alveg pakkað, stöðugt var fiskur á lofti á löngum kafla. Allur aðbúnaður var til fyrirmyndar eins og Gústi lýsir honum. Maturinn var steik og rauðvín, steik og rauðvín, steik og rauðvín og svo framvegis. "Maður fær ekki leið á slíku. Dýralífið er mjög fjölskrúðugt. Við sáum ref á hverjum degi og ótal tegundir fugla." Langar þig að fara aftur? "Já!" Ætlarðu að fara aftur? "Þegar ég verð búinn að gleyma rokinu." 20 Veiöimaðurinn Apríl2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.