Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 21

Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 21
■ i iii Árni Baldursson er án efa sá íslenski veiðimaður sem veitt hefur í flestum ám utan íslands. í vetur fór hann til veiða í ánni Cauvery rétt við Bangalore á Indlandi. Þessi á og raunar þetta svæði Indlands er fræg fyrir fisk af tegundinni masheer sem er talinn stærsti og sterkasti ferskvatnsfiskur sem hægt er að draga á stöng. Stærðin er á bilinu 5 til 120 pund. Þeir þykja mjög sjaldgæfir yfir 80 pund. Árni gerði sér lítið fyrir og setti í sannkallað ferlíki, eða 89 punda masheer, sem hann landaði með aðstoð leiðsögumanns eftir langa og afar stranga viðureign. Notaðar eru flugustangir fyrir línu 10 og 11 og flugurnar eru með sérstaklega hertum önglum til að þola átökin. Þetta eru stórar flugur og feitar, með löngum hölum sem eiga að vekja veiðieðlið hjá þessum miklu risum. Öllum fiski er sleppt í Cauvery og fékk þessi beljaki að synda burt eftir að myndatöku var lokið. Þetta er stærsti fiskur á þessu ári úr Cauvery. Apríl 2005 Veiðimaðurinn 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.