Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 26

Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 26
Einar Guðmann tekst á uið bleikju í Héðinsfjarðará. Hún tók púpu alveg niðri við botn og var á réttum hraða. Komdu pupunni til hans a / i » 1 X rettum hraða ~ Valli í Veiðibúðinni við Lœkinn skrifar um andstreymisveiði ~ Vinur minn sagði mér eitt sinn að til að ná sem mestum árangri í urriðaveiði í straumvatni væri áhrifamesta leiðin að nota púpur og veiða andstreymis. Líf urriðans helgast af því að ná sér í sem mesta orku án þess að þurfa að eyða of mikilli orku sjálfur og þess vegna er púpuveiðin svona öflug veiðiaðferð. Það eru þrjú atriði sem skipta mestu máli þegar á að veiða með púpum. Fyrst þarf að lesa vatnið. í öðru lagi þarf agnið að berast fyrir urriðan eins náttúrlega og eins nálægt honum og mögulegt er. Þetta þarf að gerast á hraða straumsins. I þriðja lagi þarf maður að átta sig á því hvenær fiskurinn tekur. Að lesa vatnið getur oft verið erfitt og það er alltaf mjög gott að fá sem mestar upplýsingar frá mönnum sem þekkja svæðin og vita um legustaði fiska. Ef maður er einn á báti þá eru líklegir staðir í kringum steina og í straummótum þar sem hraður og hægur straumur mætast því þar myndast svokallaðar fæðurásir. Slíkar aðstæður eru kjörnar fyrir fiskinn. Þar berst fæðan í átt að fiskinum og hann þarf aðeins að færa sig til hliðar og grípa matinn. Við steina myndast misstreymi og þar er ákjósanlegur staður fyrir fiska. Það eru náttúrulega miklu fleiri legustaðir hagkvæmir fyrir urriðann en taldir eru upp hér og það lærist með tímanum að finna þá. Til að ná góðum árangri þarf púpan að vera eins nálægt botninum og hægt er. Púpan má alls ekki fara hraðar eða hægar en straumurinn því þá hættir hún að veiða. Það eru til ýmsar aðferðir til að koma púpunni niður. T.d. er hægt að þyngja hana með kúlum, blývír eða blýhöglum en það sem hefur reynst best eru tungstenhausar og -filmur. Tungsten er mikið þyngri en blý og þess vegna þarf ekki að kasta eins langt til þess að flugan fari að veiða. Hluti af aðferðinni er að sökkva púpunni eins hratt niður í vatnið og hægt er og fá hana til að reka með hraða straumsins eins lengi og mögulegt er. Einnig þarf að gæta vel að línunni ef kastað er upp í strauminn. Allan slaka þarf að taka jafn óðum þegar línan rennur í átt að veiðimanninum. Línan á helst ekki að fara niður fyrir veiðimanninn og það á heldur ekki að toga í hana þannig að línan fari hraðar en straumurinn. Það mikilvægasta í þessu öllu er að verða var við þegar fiskurinn tekur og til þess er notaður tökuvari. Hann er eins konar flotholt sem fest er á tauminn um það bil tíu J 26 Veiðimaðurinn April 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.