Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 40

Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 40
Fossinn Búði í Þjórsá er 7 m hár og ófiskgengur. Þar var gerður fiskstigi árið 1991. Fiskar og veiði í Þjórsá ~ Magnús Jóhannsson fiskifrœðingur, Veiðimálastofnun Suðurlandsdeild ~ Margir hafa ekið yfir Þjórsá á hringveginum og séð hana streyma kolmórauða um gljúfrin ofan við Urriðafoss. Ekki árennilegt vatn. Hér getur ekki verið mikið líf að finna og varla fisk svo nokkru nemi hugsa sjálfsagt margir, því kemur sú staðreynd hinum sömu á óvart að Þjórsá er í hópi mestu laxveiðiáa landsins. í þessari grein er fjallað stuttlega um lífríki og fiskveiðar í Þjórsá og þverám hennar. Umhverfi Langtíma meðalrennsli Þjórsár við Urriðafoss er um 358 m3 sem gerir hana næst vatnsmestu á landsins á eftir Ölfusá. Nálægt helmingur rennslisins er lindarvatn en um fjórðungur er jökulvatn. Fimm vatnsaflsvirkjanir eru á vatnasvæði Þjórsár. Vegna þeirra hafa orðið miklar rennslisbreytingar í Þjórsá, rennslissveiflur hafa minnkað og rennsli yfir vetrarmánuðina hefur aukist um allt að þriðjung en sumarrennsli minnkað vegna söfnunar vatns í miðlunarlón. Aurburður Þjórsár hefur minnkað vegna viðstöðu vatns í miðlunarlónum. Þjórsá er fiskgeng frá náttúrunnar hendi að fossunum Búða, 47 km frá ósi og Hestafossi. Árið 1991 var gerður stigi við Búða og nú kemst lax að Búrfellsvirkjun og í gljúfrin neðan við Þjófafoss, sem er um 74 km frá ósi. Til Þjórsár, ofan við Búða og að Búrfelli, falla nokkrar ár og lækir. í Þjórsárdal eru Fossá, Sandá og Þverá nokkru neðar. Minnivallalækur fellur til Þjórsár að austan, úr Landsveit. Minnivallalækur er lindá en hinar árnar eru dragár. Um fjórum kílómetrum neðan við Búða fellur dragáin Kálfá til Þjórsár. Fiskgengi hluti Kálfár og þverár hennar, Tungá, er um 19 km. Kálfá er eina þverá Þjórsár neðan Búða sem eitthvað kveður að sem veiðiá. Við Búðafoss tekur Þjórsá að renna í tveimur kvíslum sem umlykja eyjuna Árnes. Búði er efst í vestari kvíslinni en Hestafoss neðst í þeirri eystri. Þjórsá er víða straumhörð með grýttum botni en einnig eru í henni lygn svæði með möl og sandbotni. Áin fellur straumþung um gljúfur á um fimm kílómetra kafla ofan við Urriðafoss sem er um tuttugu kílómetra frá sjávarósi. Fossinn er um sex metra hár og fiskgengur en hann og straumurinn í gljúfrunum tefja fiskgöngur upp ána. Lífríkið og búsvæði laxfiska Á síðastliðnum þrettán árum hefur Veiðimálastofnun unnið að lífríkisrannsóknum á vatnasvæði Þjórsár. Rannsóknir 40 Veiðimaðurinn Apríl 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.