Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 46
Skipt um flugu við Myrkhyl í Norðurá. Blíðviðri og hitar settu svip sinn á veiði á íslandi í fyrra.
Raunar var veður eins og svo oft áður stœrsti áhrifavaldurinn. Ljósmynd Gísli Ásgeirsson.
Atlantshafslaxinn
veiðitímabilið 2004
~ ísland. og írland með bestu veiðina ~
í viðamikilli úttekt á stangaveiði á laxi í löndum umhverfis Atlantshaf sem
danska veiðiblaðið Fiske Avisen tekur saman kemur í ljós að besta veiðin
síðasta sumar var á íslandi. Blaðið fer lofsamlegum orðum um frábært
veiðisumar og spáir áframhaldandi góðri veiði hér á komandi sumri. Greinilegt
er að úttekt þessi er vönduð og þær tölur og staðreyndir sem snúa að Islandi eru
áreiðanlegar. Því er lýst að sumarið hér hafi verið afar gjöfult þar sem smálax
var meginuppistaða í veiðinni. Sérstaklega eru teknar út nokkrar af aflahæstu
ánum, eins og Rangárnar á Suðurlandi. Gerð er grein fyrir því að Rangárnar
hafi lent í tveimur efstu sætunum þegar kemur að fjölda veiddra laxa. Bent er
á tvær staðreyndir í því samband. í fyrsta lagi að saman gefi þær um 6000 laxa
og séu saman með tvo þriðju hluta af heildarveiði í skosku ánni Tweed sem er
þó miklum mun stærri og ætti samkvæmt fræðunum að framleiða og framfleyta
mun fleiri seiðum. Jafnframt er þess getið að mikið uppbyggingarstarf hafi verið
unnið við Rangárnar og ekki þurfi að fara mörg ár aftur í tímann til að sjá að
nánast engin laxveiði var í þessum tveimur gjöfulu laxveiðiám. Blaðamaðurinn
sem vann þess úttekt hrósar Orra Vigfússyni í hástert og í umfjöllun sinni um
ísland bendir hann dönskum veiðimönnum á að nauðsynlegt sé að fylkja sér
að baki starfsemi NASF til að glæða veiði í framtíðinni. Hann segir jafnframt
ljóst að með framtaki íslendinga á þessu sviði, með Orra í broddi fylkingar,
ætli íslendingar sér að tryggja að það verði lax í íslenskum ám fram að næstu
ísöld.
Aðrar ár eru nefndar til sögunnar; Langá, Norðurá og Laxá í Dölum á
Vesturlandi, Miðfjarðará og Blanda á Norðurlandi og Hofsá í Vopnafirði. Loks
fer blaðamaðurinn mjög jákvæðum orðum um framtíð íslenskrar stangaveiði
og segir ljóst að ísland sé á mikilli uppleið og gefi ekkert eftir hinum frábæra
Kólaskaga á Rússlandi. Stór orð og sönn.
Kólaskagi með lakara ár
Veiðin í fyrra var slakari en árin á undan. Allar árnar í norðri eins og Rynda,
Kharlovka, Yokanga og Varzina þurftu að líða fyrir óvenjugott sumar sem segja
má að haldið hafi innreið sína í lok júní. Sumarið á þessum slóðum bauð upp á
ýmis veðurtilbrigði og þau í öðru veldi. Um vorið fór saman snjóbráð og mikil
rigning sem olli kröftugum flóðum. Hitabylgja sem skall á þegar leið á sumar
gerði það að verkum að vatnsleysi hrjáði margar af bestu ánum og loks var
óvenju vindasamt á þessum slóðum. Ponoi og Varzuga fengu að kenna á þessu
en skiluðu samt ágætri veiði þegar upp var staðið. Stöðugt er verið að bæta
aðstöðu veiðimanna á Kólaskaga og menn eru líka að nema ný lönd og finna
ný veiðisvæði.
Apríl 2005 Veiðimaðurinn 42