Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 55

Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 55
Svalbarðsá er töfraheimur stórlaxa. Margir eru tilbúnir að leita á þau mið. Ljósmynd Rafn Hafnfjörð. Svalbarðsá í Þistilfirði var boðin út nýlega. Hæsta tilboð gerði félagið Hreggnasi sem meðal annars leigir Grímsá. Með félaginu að þessu tilboði stóð Gísli Ásgeirsson leiðsögumaður. Ekki hefur verið gefið upp hversu hátt boðið var. Gengið hefur verið til samninga milli veiðiréttarhafa og tilboðsgjafa. Stefnt er að langtímasamningi og mun nýtt veiðihús vera hluti af því samkomulagi sem handsalað hefur verið. Svalbarðsá er stórlaxaá. Meðalþyngd er með því hæsta sem gerist á Islandi eða ríflega 10 pund. Heimild er fyrir 210 stangardögum í ánni sem þýðir að hluta veiðitímans er veitt á tvær stangir. Gangi þetta allt eftir munu nýir leigutakar reka ána sumarið 2006 og til loka samningsins. Víst er að spennandi tímar eru fram undan á norðausturhorninu enda var mikið af smálaxi á ferðinni víðast hvar í fyrra og margir bíða spenntir eftir að sjá hvernig framhaldið verður næsta sumar og sumarið 2006. Meðalveiði í Svalbarðsá er rúmlega 200 laxar á sumri Halli Eiríks til liðs við SVFR Hinn reyndi leiðsögumaður Haraldur Eiríksson mun hefja störf hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur um mánaðamótin mars - apríl. Haraldur, sem er oftast kallaður Halli, er ráðinn sem markaðs- og þjónustufulltrúi en hér er um nýtt starf að ræða. Það er mikill fengur í að fá Halla í lið SVFR og mun hann móta nýtt starf í samráði við framkvæmdastjóra og stjórn félagsins. Hlutverk Halla verður að selja og markaðssetja söluvöru SVFR eins og starfsheitið gefur til kynna. Hann mun einnig sjást við árnar í sumar þar sem hann mun aðstoða og miðla veiðimönnum af sinni yfirgripsmiklu veiðiþekkingu. Halli hefur undanfarin misseri alið manninn hjá fyrirtækinu Lax-á þar sem víðtæk reynsla hans hefur komið sér vel. Einnig hefur hann getið sér afar gott orð sem leiðsögumaður meðal annars við Hítará og Laxá í Kjós. Halli opinberar einmitt leyndarmál Hítarár í þessu tölublaði. Við bjóðum Harald Eiríksson velkominn til starfa fyrir félagið. Halli prýddi forsíðu Veiðimannsins fyrir tveimur árum. Hér er hann að sleppa fallegum fiski í Kjósinni. APRÍL 2003 NR. 170 aðurim m mm mm éið VEIDDU LAXINN ER ÞJÓÐARGERSEMI SÖGUR AF STORFISKUM Heilræoi handa veiðimönnum VEIÐISAGA KRISTÍNAR HELGU HVAD ER AÐ GERAST I Apríl 2005 Veiðimaðurinn 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.