Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 58
Það var mikið hlegið, þegar Jóhannes Kristjánsson eftirherma flutti gamanmál. Hér sitja fremst hjónin Páll Magnússon aðalmaður hjá 365 og
Hildur Hilmarsdóttir. Lengst til vinstri er Svavar Þórhallsson og Sigríður Amórsdóttir. Þá kemur Ásgeir Halldórsson eigandi Sportvömgerðarinnar
og eiginkona hans Elín Fanney Guðmundsdóttir. Við hlið hennar situr Jón Gunnarsson björgunarsveitarfrömuður og kona hans Margrét Halla
Ragnarsdóttir, Ólafur E. Jóhannsson og íris Erlingsdóttir Loks em lengst til hcegri Egill Guðjohnsen og eiginkona hans Kolbrún Hauksdóttir.
Gleði og glæsileiki
Eins og svo oft áður lukkaðist árshátíð Stangaveiðifélags
Reykjavíkur mjög vel. Gleðin var við völd og glæsileikinn,
jafnt innra sem ytra, sveif yfir Súlnasalnum á Sögu. Þarna voru
allir. Og hinir... þeir koma bara næst. Hjálmar Hjálmarsson
ekkifréttamaður var veislustjóri og fór mikinn í stjórn sinni á
góðum sal. Heiðursgestur kvöldsins var fyrrverandi Mattlock
okkar fslendinga og núverandi hæstaréttardómari, Jón
Steinar Gunnlaugsson, sem sveif með veislugesti fylktu liði
norður í Svartárdal. Kvöldið á þessu mesta balli vetrarins var
ógleymanlegt og fyrsti alvöru sólargeislinn í skammdeginu.
Gull og silfurflugan var afhent enn eitt árið - þessi höfðinglega
gjöf. Raunar var mikið af gull og silfurflugum á sveimi því
viðstaddar konur voru eins og ávallt í sínu fínasta pússi. Gott
kvöld með góðu fólki.
Frábœr samsetning. Gull og silfurflugan í ömggri geymslu
Steinunnar Sigurðardóttur, Nylonskvísu.
58 Veiðimaðurinn Apríl2005