Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 60

Veiðimaðurinn - 01.04.2005, Blaðsíða 60
Stjóm Stangaveiðifélags Reykjavíkur að loknurn aðalfundi 2004. Fremri röð frá vinstri Þorsteinn Ólafs ritari, Bjami Júlíusson formaður, Gylfi Gautur Pétursson varaformaður. Aftari röð frá vinstri Eiríkur St. Eiríksson meðstjómandi, Loftur Atli Eiríksson meðstjómandi, Guðmundur Stefán Maríasson meðstjómandi og Marinó Marinósson gjaldkeri. Ljósmynd Siggi Jóns. Fjölmennasti aðalfundur í sögu félagsins Aðalfundur SVFR í nóvember sl. var sá fjölmennasti í sögu félagsins þegar 422 félagsmenn mættu. Mest höfðu áður mætt á milli 270 og 280 manns á aðalfund. Bjarni Júlíusson var kjörinn formaður stjórnar SVFR á aðalfundinum. Bjarni fékk 271 atkvæði í formannskjörinu (64,2%) en mótframbjóðandi hans, Ari Þórðarson, fékk 144 atkvæði (34,1%). Auðir seðlar voru 3. Alls tóku 422 félagsmenn þátt í kosningu formanns. í kosningu um þrjú laus sæti í stjórn SVFR til næstu tveggja ára var kosið á milli fimm frambjóðenda. Atkvæði féllu þannig að Þorsteinn Ólafs fékk 294 atkvæði, Gylfi Gautur Pétursson fékk 272 atkvæði, Marinó Marinósson fékk 238 atkvæði, Kristín Helga Gunnarsdóttir fékk 178 atkvæði og Valtýr Guðmundsson fékk 125 atkvæði. Alls tóku 369 félagsmenn þátt í kosningu til stjórnar. Fyrir voru í stjórn SVFR þeir Eiríkur St. Eiríksson, Guðmundur Stefán Maríasson og Loftur Atli Eiríksson en þeir voru kosnir til 2 ára á aðalfundi árið áður. í umræðum eftir kosningar á aðalfundinum bar það helst til tíðinda að Einar H. Guðmundsson, félagi nr. 298, lagði fram tillögu um breytingar á verðskrá SVFR fyrir árið 2005. Annars vegar um að afnumdar verði þær 2.000 króna aukagreiðslur sem getið er um í verðskrá SVFR og lagðar eru á félagsmenn sem veiða um helgar í Stóru-Laxá og Soginu og hins vegar um að aflagt sé 1.000 kr. aukagjald fyrir hádegi í Elliðaánum. Tillaga Einars var samþykkt með naumum meirihluta atkvæða eftir að þorri fundargesta hafði yfirgefið salinn eða með 23 atkvæðum gegn 19. Þeir Jón G. Baldvinsson og Ólafur H. Ólafsson lögðu einnig fram tillögu um að aðalfundur SVFR samþykki að óska eftir því við stjórn SVFR að loka umræðum á spjallvef félagsins nema fyrir þá sem koma fram undir nafni. Loftur Atli Eiríksson lagði fram breytingartillögu við tillögu Jóns og Ólafs um að tillögu þeirra félaga um lokun á spjalli verði vísað til stjórnar. Breytingartillaga Lofts Atla var samþykkt og þar af leiðandi voru ekki greidd atkvæði um fyrri tillöguna. 60 Fréttapunktar SVFR - samantekt Þorsteinn Ólafs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.