Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 5

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 5
LANDSFUNDUItmN 1967 Dr. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstaeðisflokksins, flytur yfirlitsræðu sína á fundirtum. 1. Fundarsetning Sautjándi Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur í Háskólabíói í Reykjavík fimmtudaginn 20. apríl 1967 kl. 20.30. Formaður Sjálfstæðisflokksins, dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráð- herra, setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna. A þessum fyrsta fundi var varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Jó- hann Hafstein, dómsmálaráðherra, fundarstjóri, en fundarritarar Jón H. Jónsson, forstjóri, Keflavík og Jörundur Gestsson, bóndi, Hellu, Strandasýslu. Formaður flokksins, dr. Bjarni Benediktsson, flutti á þessum fundi yfirlitsræðu. I upphafi ræðu sinnar gat hann þess, að af stofnendum Sjálf- stæðisflokksins hinn 25. maí 1929 væru nú aðeins þrír menn á lífi, þeir Pétur Ottesen, Jón Sigurðsson og Hákon Kristófersson, en sá síðasttaldi væri elztur þeirra þremenninganna og ætti níræðisafmæli þennan sama dag. Gerði formaður að tillögu sinni, að landsfundurinn sendi Hákoni Kristóferssyni heilla- og hamingjuóskir af þessu tilefni og samþykkti fundurinn það með dynjandi lófataki. Síðan gerði formaður ýtarlega grein fyrir stöðu og þróun stjórnmálanna frá síðasta landsfundi og skýrði viðhorf í þjóðmálunum almennt. Er ræðan prentuð aftar í skýrslunni. 3

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.