Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 42

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 42
Island er eyland, sem liggur svo langt frá öll- um öðrum löndum, að engin hætta er á landa- mæradeilum. 1 þeirra stað kemur ákvörðun um, hversu lögsaga ríkisins skuli ná langt á haf út og er þá stærð fiskveiðilögsögu umdeildust. Þar hljótum við ætíð að sækja eins langt út og alþjóðalög ýtrast heimila. En ef við viljum ekki skipa okkur í flokk ofbeldis- og árásarríkja, þá förum við ekki lengra en alþjóðalög heimila. Ef við teljum þau sníða okkur of þröngan stakk, þá reynum við að fá alþjóðareglum breytt með frambærileg- um rökum af okkar eigin hálfu og samstarfi við aðra, sem svipaðra hagsmuna hafa að gæta. Svo kann að standa á, að í þessum efnum sé aðgerðarleysi okkur skaðsamlegt, en þó duga aldrei aðrar aðgerðir en þær, sem ávinningur er að. Það er Islandi mikill ávinningur, að fyrirfram skuli tryggt, að ágreiningur um réttmæti aðgerða okkar skuli borinn undir al- þjóðadómstól. Lítil þjóð hlýtur ætíð fremur að treysta á réttmæti málsstaðar síns en vald, sem hún ekki á. Þó að við séum máttarlitlir, tjáir okkur ekki að láta eins og vald sé ekki til og þýðing þess engin. Eitt höfuðeinkenni ríkis er einmitt lög- bundið vald. í þessu felst m.a., að hvert ríki verður að gæta þess, að land þess verði ekki valdatómrúm, heldur ber því að ábyrgjast sín- ar eigin varnir, svo að landssvæði þess verði öðrum ekki að hættu sem fleygur eða stökk- pallur til árása. Vamarleysi og valdatómrúm er hægt að forðast á fleiri en einn veg. M.a. með hlutleysisyfirlýsingu, sem þá verður að vera samþykkt af þeim ríkjum, sem valdamest eru á þeim slóðum, þar sem hið hlutlausa ríki er. Og sjálft verður hið hlutlausa ríki eftir ýtrasta mætti að tryggja sitt eigið hlutleysi með valdi. Þetta eru staðreyndir, sem óvé- fengdar eru jafnt í þjóðarétti sem daglegum samskiptum ríkjanna. Við Islendingar héldum í fyrstu, að við gætum sloppið með orðin ein, hlutleysisyfirl'singu, sem enginn tók ábyrgð á og ekkert vald stóð á bak við. Strax við fyrstu raun reyndist sú yfirlýsing gersamlega hald- laus. Nú höfum við verið full 18 ár aðilar að vamarbandalagi, Atlantshafsbandalaginu, og er ekki um það að villast, að yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hefur hvað eftir annað lýst stuðningi sínum við þá aðild íslands svo og vamarsamninginn við Bandaríkin. Sumir segja nú, að ný viðhorf hafi skapast eða séu að skapast. Annarsvegar sé mun friðvænlegar í þessum hluta heims en áður var, og hins- vegar öðlist hvert einstakt ríki einhliða rétt til úrsagnar úr Atlantshafsbandalaginu, þegar það er orðið 20 ára, að tveimur árum liðnum. Hvorttveggja er þetta rétt. En getur nokkrum blandast hugur um, að ástæðan til þess, að friðvænlegar horfir nú en áður, er einmitt sú, að Atlantshafsbandalagið hefur skapað nauð- synlegt valdajafnvægi? Og ef við lítum á hags- muni íslands eins, er þá ekki augljóst, að Is- land mundi lenda í miklu meiri hættu fyrir ófriði, ef Atlantshafsbandalagið leystist upp? Þá mundi ísland verða á mörkum tveggja varnarkerfa, eða í algeru valdatómrúmi, en ekki eins og nú staðsett í miðju vamarkerfi. Nú kemur ekki til greina, að frá íslandi verði gerð árás á neitt annað land, alveg gagnstætt því, sem verða mundi, ef það lenti upp á milli tveggja stríðandi aðila. Þegar af þessu er ótvírætt, að Islendingar hafa af því ríka hags- muni, að Atlantshafsbandalagið haldist, og ber okkur sannarlega að stuðla að því eftir föng- um, að svo megi verða og leggja okkar skerf af mörkum í því skyni. Annað mál er hvernig vömum íslands skuli háttað hverju sinni. Það verður stöðugt að meta eftir atvikum, og einmitt þess vegna var vamarsamningurinn við Bandaríkin bundinn því höfuðskilyrði af hálfu Islendinga, að við gætum sjálfir einhliða með tilteknum fresti sagt honum upp. Yið höfum þetta því á valdi okkar og getum metið eftir eigin þekkingu á aðstæðum hvað gera skuli. En spurning er: Höfum við þá þekkingu, sem á þarf að halda? Við eram svo fjarhuga hemaði, að enginn eiginlegur íslenzkur hernaðarsérfræðingur er til, svo að um sé vitað. Talað er um, að við eigum að láta íslenzka sérfræðinga taka að sér rekstur vamarmannvirkjanna. Þetta kann að láta vel í eyrum, og verða menn þó þá að gera sér grein fyrir, hvort eigi sé um orða- leik að ræða, þannig að slíkir svokallaðir sér- fræðingar séu í raun og vera hermenn. Úr- lausnarefnið er þá í raun og veru, hvort Is- lendingar eigi að taka upp eigin hermennsku eða ekki. Slíkt þarf ekki að vera nein fjar- stæða, en ef menn vilja það, þá er nauðsyn- legt að segja það berum orðum, svo að allir geti áttað sig á um hvað sé að ræða. En áður en við tökum slík sérfræðingastörf að okkur, 40

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.