Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Síða 43

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Síða 43
sýnist hitt sanni nær, að við öflum okkur sér- fræði í herstjórnarmálum, svo að við þurfum ekki að sjá þau með annarra augum. Fyrsta skrefið hlýtur þess veg-na að vera það, að leggia drög að öflun þvílíkrar sérfræði. íslendingum er sízt minnkun þó að þeir taki þátt í bandalagi til að tryggja varnir lands síns, á meðan mestu stórveldi heims telja sér slíka þátttöku lífsnauðsyn. Lærdómar sögunn- ar eru og þeir, að ef vesturveldin hefðu á ár- unum frá 1918 til 1939 haft slíkt samstarf og á komst 1949, þá mundi seinni heimsstyrjöldin með öllum þeim hörmungum, sem henni fylgdu, aldrei hafa skollið á. íslendingar þurfa ekki síður en aðrir á friði að halda og þeim ber ekki síður en öðrum að gera sitt til að svo megi verða. Þjóðirnar hafa ekki einungis gengið í varn- arbandalög sjálfum sér og heimsfriðnum til öryggis, heldur og í ýmiskonar efnahagsbanda- lög til að tryggja fjárhagslegan velfarnað sinn. Norðurlandaþjóðir höfðu lengi leitastvið að koma á viðskiptabandalagi eða tollabanda- lagi sín á milli, en aldrei tekizt. Fjórar þeirra hafa hinsvegar — með mismunandi hætti þó — gerst aðilar að Fríverzlunarbandalagi Evrópu, EFTA, og ber ráðamönnum þeirra saman um, að fáar ráðstafanir hafi orðið þessum þjóðum til meiri heilla. Fyrir okkur verður erfiðara með hverju ári, sem líður, að standa utan beggja efnahagsbandalaga Evrópu, Efnahags- bandalagsins svokallaða og Fríverzlunarbanda- lagsins. Fullkomnir aðilar Efnahagsbandalags- ins getum við ekki orðið vegna þeirra skilyrða, sem þar eru sett. Aðild að Fríverzlunarbanda- laginu er raunar ekki með öllu erfiðleikalaus, en ótvírætt er samt, að þegar til lengdar læt- ur, þá verður hún okkur ekki einungis hag- kvæm heldur og brýn nauðsyn. Þess vegna ber að vinda bráðan bug að því að ná samning- um um aðild íslands, ef slíkt er unnt afar- kostalaust, svo sem ætla má, því að vitað er, að mörg aðildarríkjanna óska þátttöku okkar, ekki vegna þess að þau telji sig miklu muna um aðild okkar, heldur vegna þess að þau og þá einkum Norðurlöndin telja okkur eiga heima í sínum hóp. Þvílíkur samhugur með íslandi og söknuður yfir fjarveru þess lýsti sér glögg- lega í orðum Per Bortens, forsætisráðherra Noregs, í orðum hans á þingi Norðurlanda- ráðs nú fyrir skemmstu. Sumir hafa það á móti slíkri aðild, að fyrir- sjáanlegt sé, að Fríverzlunarbandalagið og Efnahagsbandalagið muni áður en yfir lýk- ur renna saman. Um það getur enginn sagt á þessari stundu, en víst er, að nokkrir aðilar Fríverzlunarbandalagsins, svo sem Svíþjóð og Finnland og sennilega Svissland, geta ekki fremur en við hugsað sér að gerast fullkomnir aðilar Efnahagsbandalagsins. Annað mál er, að þessi lönd telja, að það muni verða sér til styrktar í samningum um að ná nauðsynlegum tengslum við þetta bandalag, að eiga vísan stuðning félaga sinna í Fríverzlunarbandalag- inu. Alveg sama máli gegnir um ísland og hlýtur það þess vegna að verða eitt helzta úr- lausnarefni á næsta kjörtímabili að ná við- unandi samningum um aðild að Fríverzlunar- bandalaginu. En stafar ekki íslenzku þjóðerni hætta af öllum þessum samskiptum við erlendar þjóðir? Svo spyrja sumir. Hvað sem okkar eigin ósk- um líður, þá er einangrunin úr sögunni. Eng- um íslenzkum stjórnvöldum getur héðan af tekizt að loka íslenzku þjóðina inni og einangra hana frá samskiptum við aðra. Það ber og sízt að harma, því að á umliðnum öldum hefur ekkert orðið okkur skaðsamlegra en einmitt einangrunin. Blómatími íslenzku þjóðarinnar og íslenzkrar menningar hefur verið mestur, þegar við höfum haft margþætt viðskipti við aðrar þióðir. Á sama hátt og stál herðist í eldi, þá herðist hið sanna eðli Islendinga í um- gengni við aðrar þjóðir. Um þetta eru dæmin deginum Ijósari að fomu og nýju. Islenzk menning hefur verið meginstyrkur þjóðarinn- ar og án hennar hefðum við tortímst á okkar frelsislausu einangrunaröldum. Auðvitað er menning okkar nú margslungn- ari en áður og miklu meira þarf við til þess að halda velli. Eðli málsins samkvæmt eigum við ætíð erfitt með að keppa við aðra í fjölbreytni og sérhæfingu. En almenna menntun eigum við að geta veitt eins góða og aðrir. Ótal skólar á ýmsum stigum um allt land sýna einbeittan vilja stiórnvalda til að ráða við þennan vanda, enda viðurkenna jafnvel svartsýnis-mennimir, að unga fólkið hefur nú á dögum hlotið fjöl- þættari og betri menntun en fyrri kynslóðir í landinu. Útvegun ytri skilyrða til alhliða menntunar verður þó að sjálfsögðu enn örð- ugri á tímum mikillar fólksfjölgunar og byggða-tilfærzlu innanlands. Ný löggjöf um skólakostnað á að greiða fyrir nauðsynlegum 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.