Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 50

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 50
og mundi það hvarvetna talinn álitlegur meiri- hluti. Hann er að vísu minni en meirihlutinn 1963, þremur árum áður, en engan veginn er víst, og jafnvel ekki líklegt, að sú breyting hefði orðið til þess að fækka þingmönnum flokkanna beggja samanlagt. Allt eru slíkt samt lítilsverðar getgátur þangað til sjálf úrslitin birtast. Engir útreikn- ingar um hverjir geti unnið þingsæti eða tapað ráða úrslitum. Það eru ekki reiknimeistarar, heldur kjósendur, sem fella fullnaðardóminn. Öruggasta ráðið til að hann verði hagstæður, er að vinna til trausts kjósenda og missýnist meirihluta þeirra þó á stundum. Menn vinna sigur, en reikna sér hann ekki út. Okkur Sjálfstæðismönnum er síður en svo feimnismál að rifja upp, að í þessum sveitar- stjórnarkosningum vorið 1966 mættum við nokkrum andblæstri, meiri en flestir bjuggust við. Við héldum að vísu velli þar sem mestu máli skipti, við borgarstjórnarkosningar hér í Reykjavík, þó að við hefðum að sjálfsögðu kos- ið, að sigur okkar hér yrði enn meiri en hann varð, og hefur þó oftar en einu sinni áður munur ekki orðið meiri, og flokksmenn engu að síður fagnað góðum sigri. Allir vitum við, sem einhverja stjómmálareynslu höfum, aðúr- slit kosninga eru ófyrirsjáanleg. Nútíma skoð- anakannanir hafa í þeim efnum oft ekki síður reynst villandi en spár hinna kunnustu manna. Um getgátur almennings í þeim efnum er það oft svo, að svipaðast er því, sem sagt er um herforingja, að í upphafi hvers nýs stríðs, þá séu þeir að berjast í næsta stríði á undan. Eins eru það margir, sem sýnast telja, að straumar í nýjum kosningum séu ætíð hinir sömu og þeir voru næst áður. Reynslan er hins vegar oft þveröfug, enda eru kjósendur sjálfráðir um að gera upp sinn hug án tillits til þess, sem áður var, og án tillits til þess, sem aðrir segja, enda eru það ætíð nýir og nýir kjósendur, sem greiða atkvæði, aldrei þó jafnmargir og nú. Og kemur þó ekki að þessu sinni til framkvæmda sú réttarbót, að kosn- ingaaldur lækki um eitt ár, eins og Alþingi samþykkti nú að tillögu ríkisstjórnarinnar. Hvert sem litið er, þá verður vart ókyrrðar og víðast hvar eru það þeir, sem við völdin eru, sem ókyrrðin bitnar á. Viðfangsefni okkar er að virkja þessa ókyrrð; sannfæra æskulýðinn um, að okkur hefur lánast betur en öðrum af því, að við höfum fylgst með tímanum og ætíð gengið hiklaust að lausn hvers vandamáls, þegar það bar að höndum. Við höfum verið vandanum viðbúnir og reynst honum vaxnir. Með þessu er ekki sagt, að við eigum að vera sjálfsánægðir; þvert á móti. Við megum aldrei fyllast ofmetnaði, eða halda, að ekki sé betur hægt að gera. Sigurvissa hefur orðið mörgum stríðsmanni að falli. Við lifum á breytingartímum, hinum mestu, er yfir heiminn hafa gengið. Að okkur sækja ýms hin sömu vandamál, sem menn hafa haft við að etja frá örófi vetra og aldrei unnið til hlítar bug á. Það er engin skömm að því fyrir okkur að viðurkenna, að við kunnum ekki fremur en okkar forverar ráð við öllum vanda og höfum ekki svör við öllum spurningum. Engu að síður höldum við óhikað áfram og gefumst ekki upp. En það eru ekki einungis gömul vandamál, sem menn enn glíma hvar- vetna við. Aldrei hafa bætzt við fleiri ný úr- lausnarefni, sem menn ekki þekktu áður. Auð- vitað vildum við oft geta umflúið þau, en ef þau skapa hættu fyrir land okkar og þjóð, þá verðum við að leggja fram okkar litlu krafta til að leysa þau. Menn tala um kröfuhörku. Auðvitað væri ekkert þægilegra fyrir valdhafana, en ef til þeirra væru ekki gerðar kröfur. En menn eru einmitt settir til valda, af því að borið er til þeirra það traust að þeir geti leyst vandamál, sem aðrir fá ekki við ráðið. Þess vegna tjáir valdhöfum ekki að kveinka sér undan, að til þeirra séu gerðar kröfur. Og eiga ekki kröfur um að látlaust sé unnið að því að draga úr mannanna meinum, verulegan þátt í öllu því, sem áunnist hefur síðustu áratugi? Enn er allt of mikið ógert af því, sem gera þarf. Við skulum, hvert og eitt, gera kröfu til sjálfra okkar um að láta ekkert undir höfuð leggjast af því, sem við getum, til þess að á því verði ráðin bót. Við skulum fúslega játa, að fáum er gefið að leggja sig alla fram og slaka ekki á, nema til þeirra sé gerð sú harða krafa, að þeir verði að standa sig eða hafa verra af. Sjálfir aðhyllumst við samkeppni og teljum, að með henni náist helzt almenningheill, af því að með henni séu menn nauðugir viljugir knúnir til að gera sitt bezta. Mér kemur ekki til hugar að neita því, að í þjóðfélagi okkar sé mörgu ábótavant. En ég þvemeita því kerlingahjali að við búum í ger- 48

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.