Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 63

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Side 63
þjónustu, og að íiver einstakur prestur ög prófastur þjóðkirkjunnar hafi nægilegt starfs- svið í samræmi við menntun og starfsorku að svo miklu leyti sem aðstæður leyfa á hverjum stað.“ Að þessu var unnið í samráði við biskup, en nefndin lauk störfum í marzmánuði 1966. Til- lögur nefndarinnar, sem fólu í sér verulegar breytingar á skipan þessara mála, voru lagðar fyrir prestastefnu á sl. vori. Kirkjuráð fékk málið til meðferðar og að lokum Kirkjuþing á sl. hausti. í framhaldi alls þessa var lagt fyrir Alþingi í haust frumvarp til laga um skipan prestakalla og prófastsdæma og um Kristnisjóð. Kafli frumvarpsins um Kristni- sjóð var í samræmi við ályktun fjórða kirkju- þings, sem háð var í Reykjavík 25. október til 6. nóvember 1964, en ályktun þessi var lögð fyrir kirkjuþing af biskupi. Tilgangurinn með stofnun Kristnisjóðs er sá að veita kirkjunni nokkurt sjálfstætt svigrúm til starfa. Hann yrði vísir að nokkrum stjálfstæðum fjárráð- um, er kirkjan fengi í hendur og hefði ráð- stöfunarrétt yfir og gæti notað til þess að örva og styrkja átök í kirkjulegri starfsemi, svo og til þess að launa menn til nauðsyn- legra starfa í þágu þjóðkirkjunnar, án þess að eiga um það undir löggjafarvaldið að sækja hverju sinni. Ekki reyndist fært að fá þetta mál afgreitt á Alþingi að svo stöddu, þrátt fyrir þann sér- staka undirbúning, sem það hafði hlotið. Vill oft svo verða, þegar breyta á gamalli og úr- eltri skipan, sem þó er rótgróin, að til þess þarf nokkurn tíma, áður en samstaða fæst. Kristnisjóður mundi styrkja þjóðkirkjuna. Að mínum dómi yrði í aðalatriðum fengur að því að lögfesta þær umbætur, sem í þessu frumvarpi felast, en auðvitað má deila um einstök atriði, enda gefst nú tóm til að vinna að nánari athugun málsins. Augljóst er að það er skaði fyrir kirkjuna að fá ekki lögfest ákvæðin um Kristnisjóð, sem gæfu henni til eigin ráðstöfunar árlegar tekjur, sem ætlað var að mundu nema 4 til 5 millj. króna. Og eini tilgangur og meginstefna frumvarpsins var að styrkja og efla hina íslenzku þjóð- kirkju. Aukin kristindómskennsla. Nokkuð hefir verið gert að því á sl. vetri, að efia kristindómskennsluna í skólum lands- ins. Hefi ég álitið, að þess væri full þörf, cn föst skipan hefur ekki enn komizt á þessa til- raun. Það varð að samkomulagi milli mín og menntamálaráðherra að sr. Helgi Tryggvason starfaði á þessum vetri sem eins konar náms- stjóri í sambandi við kristindómskennsluna. Hefur hann haft ríkan áhuga á þessu starfi og tel ég fullvíst, að það hafi gefið góða raun og mun beita mér fyrir því, að framhald geti orðið á því. Almannatryggingar. Efling almannatrygginganna hefir verið einn þýðingarmesti þáttur þeirrar stjórnar- stefnu, sem fylgt hefir verið hér á landi frá árinu 1960 og kennd er við viðreisn. Höfuð- áherzlan hefir verið lögð á að bæta hag þeirra þegna þjóðfélagsins, sem við lakasta lífsað- stöðu búa, einkum aldraðs fólks og öryrkja, einstæðra mæðra og barnamargra fjölskyldna. Margháttuð nýmæli. Helztu nýmæli í löggjöf um almannatrygg- ingar hafa á undanförnum árum verið eftir- farandi: 1. Allar bætur almannatrygginga hafa verið stórhækkaðar og miklum mun meir en nem- ur verðhækkunum og hækkun vísitölu framfærzlukostnaðar. 2. Afnumin hefur verið skiptingin í 1. og 2. verðlagssvæði. Allar bætur almannatrygg- inga eru nú hinar sömu, hvar sem er á landinu, en áður voru þær fjórðungi lægri á öðru verðlagssvæði, sem náði yfir allt landið utan kaupstaða og kauptúna með 2000 íbúum eða fleiri. 3. Fjölskyldubætur eru nú greiddar með öll- um börnum yngri en 16 ára. 4. Nú njóta ellilífeyris- og örorkulífeyrisþeg- ar fulls lífeyris, þó að þeir jafnframt hafi aðrar tekjur.Áður en hin svokölluðu skerð- ingarákvæði voru afnumin, voru slíkar tekjur dregnar frá lífeyrisgreiðslum eftir vissum reglum. 5. Með almannatryggingarlögunum frá 1963 var heimilað að sérstakir lífeyrissjóðir verði viðbótarsjóðir við almannatrygging- ar, en til þess eru þó nauðsynlegar vissar breytingar á reglum lífeyrissjóðanna. Áður áttu þeir, sem höfðu rétt til bóta frá líf- 61

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.