Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 75

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 75
reikna fargjöld tii og frá landínu, sem flug- félögin og Eimskipafélag íslands hafa tekið á móti. Talið er að brezkir ferðamenn muni leggja leið sína til Islands á komandi sumri í ríkara mæli en áður, vegna þess að Island er á sterling-svæðinu, en fsland og írland eru einu Evrópulöndin innan þess og Bretar skammta naumt gjaldeyri til ferðamanna, er þeir fara út fyrir þetta svæði. Það kemur sér vel að flugflotinn hefur auk- izt vegna ferðamanna innlendra og erlendra. Fjármunamyndun í flugvélum var 0,7 millj. kr. 1958 en 363 millj. kr. 1966 og mikil verður fjármunamyndunin á þessu ári, ekki sízt vegna þotukaupanna. í flugvallamálum er rétt að geta þess, vegna þess að oft er talað um að litlu fé sé varið til flugvallagerða og annarra flugmála, að í valdatíð Framsóknar 1958 var varið til flugvalla aðeins 6.7 millj. kr. en á sl. ári 55 millj. króna og á yfirstandandi ári verður varið til þessara mála svipaðri upphæð. Þáttaskil í vegamálum. Vegamálin eru oft til umræðu og talað er um lélega vegi. Vegalögin frá 1963 marka þáttaskil í vegamálum. Þá var ákveðið að vinna skipulega að framkvæmd þessara mála um leið og fjármagn til vegamála var stóraukið. Á þessu ári mun verða varið til vegamála 480 millj. kr. en á síðasta valdaári Framsóknar- manna aðeins 83 millj. kr. Hækkunin er næst- um 600% en vegagerðarkostnaður er talinn hafa hækkað á þessu tímabili um allt að 90% en þá er ekki reiknað með auknum afköstum stórvirkari og betri véla en áður voru notaðar. Það vakti athygli í umræðum á Alþingi þeg- ar endurskoðun vegaáætlunar var rædd, að Sigurvin Einarsson sagði, að það hefði fyrst fyrir fimm árum farið að rofa til í vegamál- um Vestfjarða. Þetta er nú ekki rétt hvað snertir Barðastrandasýslu og Norður-ísafjarð- arsýslu, því að það er kunnugt, að Gísli Jónsson og Sigurður Bjarnason unnu ötullega að bætt- um vegasamgöngum í þessum sýslum í langan tíma. En þá var engin Vestfjarðaáætlun, og þá voru framkvæmdirnar ekki eins stórstígar og nú gerist á Vestfjörðum og annars staðar. Sigurvin fullyrti að framkvæmdirnar á Vest- fjörðum nú hefðu hafizt vegna hins mikla þunga, sem Hermann Jónasson og hann hefðu lagt á þessi mál og ríkisstjórnin þorði ekki annað, sagði þingmaðurinn, en að láta undan og gera ýmsa hluti til þess að koma í veg fyrír frekari fólksflutninga að vestan. Það er ekki aðeins í vegamálum Vestfjarða, sem Fram- sóknarmenn urðu valdamiklir eftir að þeir fóru úr ráðherrastólunum. Framsóknarmenn halda því alltaf fram að allt sem ríkisstjórnin gerir vel, hafi verið framkvæmt vegna þess, að stjórnarandstaðan píndi stjórnarflokkana til þess að lögfesta og framkvæma málin. Mað- ur skyldi ætla að við þessar aðstæður gætu Framsóknarmenn unað því bezt að verða áfram utan stjórnar. Vegaáætlunin var endurskoðuð nú fyrir þinglokin fyrir árin 1967 og 1968. Aukning vegafjár hefur orðið 163 millj. kr. hjá Vegasjóði frá því sem áætlað var 1964. Vegasjóður hefur staðið við þær skuldbind- ingar, sem hann tók á sig þá og síðan. Fram- kvæmd hafa verið öll þau verk, sem tekin voru á áætlun. Það er því fjarstæða, sem sumir Framsóknarmenn héldu fram í vetur, en hættu því eftir að tillaga um endurskoðun vegaáætl- unar var lögð fram, að vegasjóður væri gjald- þrota. Áróður Framsóknarmanna út af vega- málunum hefur verið taumlaus, þrátt fyrir stórauknar fjárveitingar og stórauknar fram- kvæmdir. Það þarf engan að undra, þótt víða séu lélegir vegir í okkar strjálbýla landi. Varanlegt slitlag á fjölförnustu vegi. En það verður haldið áfram að bæta vegina eftir því sem efni standa til. Stór átök hafa verið gerð víðs vegar um landið, og tel ég ekki ástæðu til að rifja það upp hér. Það hefur svo oft verið gert og er öllum kunnugt. Rétt þykir þó að minna á að undirbúningur er haf- inn til þess að gera varanlegt slitlag á hrað- brautir, það eru vegirnir út frá Eeykjavík, Austurvegur og Vesturlandsvegur ásamt veg- arkafla út frá Akureyri. Hraðbrautir eru nú taldar vera um 350 km. að lengd, það eru vegir, sem hafa þúsund bifreiða umferð á dag eða meira. Talið er að það muni kosta 1500 millj. að undirbyggja og gera varanlegt slitlag á fjölförnustu vegina, sem eru 230 km. Gera þarf heildaráætlun á þessu ári og næsta ári svo að útboðslýsingar geti legið fyrir ekki seinna en í árslok 1968. Útboðið þarf að fara fram á alþjóðavettvangi líkt og virkjunarframkvæmd- irnar við Búrfell. Er öruggt, að verkið verður miklu ódýrara með því að bjóða það út í einu lagi heldur en ef teknir væru smáspottar í einu. Gert er ráð fyrir, að möguleiki sé á 73

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.