Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 77

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Page 77
enginn viti um úrslitin fyrirfram. Við Sjálf- stæðismenn göngum til þessara kosninga æðru- laust og erum reiðubúnir að hlíta þeim dómi, sem þjóðin fellir yfir verkum okkar. Það, sem við viljum leggja áherzlu á er það að þjóðin geri sér grein fyrir um hvað er kosið. Geri sér ljóst að kosningaréttinum fylgir mikil ábyrgð og að heill og hamingja Islands getur verið undir kosningaúrslitunum komin. Það er mikils um vert ekki aðeins að viðhalda því sem áunnizt hefur í framkvæmdum og bætt- um lífskjörum, heldur einnig að merkið sé dregið að hún og ný sókn hafin á framfara- braut þjóðarinnar, menningarlega og efnalega. Til þess að tryggja velferð þjóðarinnar í nú- tíð og framtíð verður að byggja á traustri undirstöðu og læra af reynslunni. Það er trú mín að Sjálfstæðisflokkurinn sigri við þessar kosningar ef þjóðin byggir á fenginni reynslu. Þeir sem þekkja vinstri stjórnar ævintýrið af reynslu eða lestri, kjósa ekki þá flokka, sem gætu haft hug á því að endurtaka vinstri- stjórnar tilraun. Sjálfstæðismenn munu gera sér grein fyrir þeim skyldum, sem þeir hafa við þjóðina. Stærsti flokkur þjóðarinnar, flokkur allra stétta hefur að kjörorði „stétt með stétt“. Stefnan er að vinna í anda heilbrigðs sam- starfs og útiloka sundrung og stéttastríð. Þessi landsfundur er mjög fjölmennur. Hér er sam- an kominn samstilltur hópur áhugamanna með þá hugsjón að vinna þjóðinni gagn. Við vitum að við vinnum þjóðinni bezt gagn með því að efia Sjálfstæðisflokkinn. Við vitum að Sjálf- stæðisflokkurinn er brjóstvörn gegn upplausn og sundrung, vörn gegn öllu, sem er óþjóðlegt og hindrar farsæla uppbyggingu þjóðfélags- ins. Við munum því við þessar kosningar leggja okkur fram og stuðla að því að sem flestir Islendingar kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Sjálf- stæðismenn, konur og karlar, fram til sóknar. Gerum skyldu okkar við fósturjörðina, vinn- um öll það sem við getum að sigri Sjálfstæðis- flokksins við í hönd farandi kosningar. 75

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.