Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Qupperneq 78

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Qupperneq 78
Ræða Magnúsar Jónssonar, fjármálaráðherra Traustur grundvöllur lagður að nýrri framfarasókn Óhjákvæmileg forsenda allra framfara er traust efnahagskerfi. Sú þjóð, sem ekki held- ur skynsamlega á stjórn fjármála sinna og efnahagsmála, hlýtur einnig fyrr eða síðar að glata sjálfstæði sínu. Orugg stjórn þessara mála verður því mikilvægari, sem þjóðfélag- ið er fullkomnara, þannig að í hinum háþró- uðu iðnaðarþjóðfélögum nútímans er skipulag og þróun efnahags- og fjármálakerfisins jafn- an hin mikilvægustu viðfangsefni, sem þjóð- þing og ríkisstjórnir eiga við að glíma. Stefn- an í efnahags- og fjármálum hefur víðtæk áhrif á líf og afkomu hvers einasta þjóðfélags- borgara, og gildir það eigi síður hér á landi en annars staðar. Þótt þróun síðustu áratuga hafi neytt þjóðir heims til að samræma meir en áður stefnuna í efnahags- og peningamálum, þá eru það þó fyrst og fremst mismunandi viðhorf einmitt á þessum sviðum, sem skipa mönnum í flokka. Sósíalískir flokkar halda því fram, að ríkið eigi að hafa veigamikla þætti atvinnulífs og viðskipta í eigin höndum og víðtæk afskipti af öllum fjárráðstöfunum borgaranna. Vegna slæmrar reynslu og vaxandi andstöðu almenn- ings, sökum batnandi lífskjara, hafa jafnaðar- menn að vísu horfið frá þjóðnýtingarstefnu sinni, en engu að síður er hún þó eitt helzta grundvallaratriði sósíalismans. Borgaralegir flokkar telja farsælla fyrir heilbrigða þróun og framfarir, að atvinnurekstur og viðskipti séu sem mest í höndum einstaklinga og frjálsra félagasamtaka, en hafa að öðru leyti nokkuð mismunandi sjónarmið varðandi afskipti rík- isins af borgurunum, einkum á vettvangi fé- lagsmála og trygginga. Festa í efnahagsmálum og gætileg fjármála- stjórn hefur ætíð verið eitt höfuðatriði í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn telur lífshamingju og þroskun einstaklingsins það markmið, sem öll heilbrigð stjórnmálastarf- semi eigi að beinast að. Ekkert þjóðfélag fái til lengdar staðizt, ef ekki sé lögð höfuðá- herzla á að rækta manngildi, framtak og sköp- unarvilja einstaklinganna og á þessum eigin- leikum og réttri hagnýtingu þeirra hljóti fram- farasókn þjóðarinnar að byggjast. Farsælast sé því, að atvinnurekstur sé að sem mestu leyti í höndum einstaklinga og frjálsra félagasam- taka, og því aðeins á vegum ríkis eða opin- berra aðila, að fjárhagslegt bolmagn einstakl- inga bresti, ef um fyrirtæki sé að ræða, þar sem samkeppni sé ekki til staðar eða þjónustu- stofnanir, sem samkvæmt eðli nútíma þjóð- félags sé hlutverk ríkis eða sveitarfélaga að annast um. Þessi grundvallarviðhorf hafa ætíð sett mark sitt á stefnu Sjálfstæðisflokksins í fjármálum og efnahagsmálum, þótt flokkurinn 76
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.