Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Síða 83

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1967, Síða 83
ríkissjóðs hafi dregið mjög verulega úr fram- lögum ríkisins til verklegra framkvæmda. Út- gjaldahækkun ríkissjóðs undanfarin ár stafar fyrst og fremst af auknum tilkostnaði vegna hækkunar verðlags og kaupgjalds auk ýmissa annarra útgjaldaliða, sem óhj ákvæmilega hækka stórlega ár frá ári vegna fólksfjölgun- ar í landinu. Gefur því auga leið, að ekki er hægt að ætlazt til að framlög ríkisins til verk- legra framkvæmda og allra útgjaldaliða hækki hlutfallslega jafnmikið, því að þá hefðu útgjöld ríkissjóðs orðið gersamlega óviðráðanleg. Þá er þess og að gæta, að undanfarin ár hefur, vegna stórvaxandi framkvæmda einstaklinga og félagasamtaka, skapazt slíkt þensluástand í þjóðfélaginu, að það hefur ógnað mjög efna- hagslegu jafnvægi og beinlínis gert það nauð- synlegt, að opinberir aðilar drægju nokkuð við sig framkvæmdir til þess að keppa ekki óeðli- lega við atvinnuvegina um vinnuafl. Er hér um sjálfsögð búhyggindi að ræða, því að eðli- legt er að auka heldur framkvæmdir á vegum opinberra aðila, þegar samdráttur verður í atvinnulífinu á öðrum sviðum. Engu að síður fer því víðs fjarri, að samdráttur hafi orðið í framlögum ríkisins til verklegra framkvæmda á undanförnum árum, þótt almennur niður- skurður fjárveitinga til þeirra væri fram- kvæmdur á árinu 1965 vegna slæmrar fjár- hagsafkomu ríkissjóðs það ár og nú í ár hafi orðið að afturkalla þá hækkun, sem fyrirhuguð var í fjárlögum ársins. Framlög til verklegra framkvæmda hafa vaxið á öllum sviðum und- anfarin ár, að vísu mismunandi mikið en með- alhækkun fjárframlaga ríkisins til allra greina verklegra framkvæmda frá framlögum árs- ins 1958 er um 128%. Fer því þess vegna víðs- fjarri að um stöðnun hafi verið að ræða á þessu sviði, þótt efnahagsþróunin hafi af eðli- legum ástæðum gert aðhald nauðsynlegt. Fjármál sveitarfélaga. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð lagt á- herzlu á nauðsyn þess að efla sveitarfélögin og tryggja fjárhag þeirra. Breyttir tímar sýn- ast gera nauðsynlegt að endurskoða núverandi skipan sveitarfélaganna í því skyni að fá stærri og traustari fjárhagsheildir. Þetta er vandamál, sem ekki verður leyst nema með samkomulagi sveitarfélaganna sjálfra. Þá hníga mörg rök að því að endurskoða verka- skiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Á undanförnum árum hafa margar ráðstaf- anir verið gerðar sveitarfélögunum til hags- bóta. Mikilvægasta aðgerðin til að treysta fjár- hag þeirra var tvímælalaust sú að gefa sveit- arfélögunum vissa hlutdeild í tolltekjum og söluskatti, sem eru aðaltekjustofnar ríkissjóðs. Er áætlað að sá tekjustofn gefi sveitarfélög- unum um 200 millj. kr. í ár. Þegar þess er minnzt, að Eysteinn Jónsson hótaði á sínum tima að segja af sér f j ármálaráðherraembætti ef sveitarfélögin fengju hluta af söluskatti, þá verða næsta kátbrosleg hneykslunaryrði Fram- sóknarmanna yfir því, að vegna verðstöðvun- arútgjalda hafi menn jafnhliða lækkun á fjár- festingarútgjöldum ríkissjóðs neyðzt til að skerða í þetta sinn umframtekjur jöfnunar- sjóðs á síðastliðnu ári. Þá hafa hin nýju vega- lög létt mjög undir með sveitarfélögunum bæði í sambandi við sýsluvegasjóðina og gatnagerð í kaupstöðum og kauptúnum, en á því sviði var ekki áður um neina aðstoð að ræða. Þá hefur verið lögð mikil rækt við að koma í fast horf greiðslum ríkissjóðs vegna sam- eiginlegra framkvæmda ríkis og sveitarfélaga. Síðasta átakið í því efni er hin nýja skólakostn- aðarlöggjöf, sem bætir mjög aðstöðu strjálbýl- isins til að sameinast um heimavistarskóla, þar eð ríkissjóður greiðir hér eftir allan kostn- að við byggingu heimavista. Jafnframt ákveða lögin miklu hraðari greiðslu kostnaðarhluta ríkissjóðs í skólabyggingum almennt, þar eð skylt er að greiða framlagið jafnóðum og bygg- ingu miðar áfram. Á þetta í senn að geta gert byggingarnar ódýrari og verið sveitarfélögun- um til mikilla þæginda. Sett hafa verið lög er skylda ríkið til að greiða kostnaðarhluta sinn í sjúkrahúsabyggingum á tilteknu árabili, en líklegt er, að þau ákvæði þurfi að taka til frekari endurskoðunar. Þá má loks geta lög- gjafarinnar um lánasjóð sveitarfélaga, sem nú er að hefja starfsemi sína og er þegar á fyrsta ári ætlað nokkurt fé til þess sjóðs úr fram- kvæmdasjóði. Hafnargerðirnar eru meðal erfiðustu við- fangsefna margra sveitarfélaga. Til þeirra framkvæmda á ríkissjóður vangoldnar veru- legar fjárhæðir, en engu að síður hefur ríkis- valdið einnig á þessu sviði veitt sveitarfélög- unum síðustu árin mjög aukna aðstoð, þar eð hafnargerðirnar hafa verið teknar inn í fram- kvæmdaáætlun ríkisins sjálfs og fjár til þeirra aflað innan ramma fjáröflunaráætlunar ríkis- 81
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.