Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 14

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Síða 14
á árinu 1988 yrði keypt vatnsrennibraut við Laugardalslaug. Við lokaafgreiðslu borgarstjómar á fjárhagsáætlun 1988 var þetta samþykkt. Forsögn að hönnun og byggingu var lokið í byrjun febrúar og var þá auglýst lþjóðlegt útboð. Gengið var til samninga um hönnun og byggingu vatnsrennibrautar við lægstbjóðanda Hydro Sport A/B frá Svíþjóð. Til aðstoðar við gerð forsagnar voru fengnar Verkfræðistofan Hönnun hf. og Jes Einar Þorsteinsson, arkitekt og Rafhönnun hf. Verkfræðistofan Hönnun hf. sá um burðarþolshönnun. Umsjón með hönnun, gerð útboðsgagna og byggingastjóm hafði byggingadeild borgarverkfræðings. Eftir að samið hafði verið við lægstbjóðanda hófst hönnun á undirstöðum og hófust framkvæmdir við þær 2. maí 1988 og var Ármannsfelli hf. falið að reisa þær. Hydro Sport sá um uppsetningu vatnsrennibrautar og hófst hún 9. júni og lauk 21. júní sl. ogbrautin var síðan opnuð 24. júní 1988. Samtímis uppsetningu rennibrautar voru gerðar endurbætur á lóð sundlaugarsvæðisins og sá Garðyrkja Reykjavíkurborgar um þá framkvæmd. Vatnsrennibrautin er 81 m á lengd og er hún úr lituðu trefjaplasti. Fyrstu 30 metrar brautarinnar em undir gegnsæju pexigleri. Dælt er um 2000 lítrum af vatni á mínútu beint úr lauginni í brautina. Það tekur um 20 sek. fyrir meðalmann að renna sér eina ferð í brautinni. Meðalhraðinn er um 15 km/klst. Stigahúsið sjálft er um 10 m á hæð en byrjunar hæðin á vatnsrennibrautinni er um 8 m. Veggur í sjálfri lauginni er til þess að aðskilja vatnsrennibrautargesti frá öðrum gestum og til þess að hafa enda laugar í minnst eins metra dýpi. Samtímis er sett upp ein 5 metra löng vatnsrennibraut fyrir yngstu bömin. GERVIGRASVÖLLUR Árið 1984 var opnaður fyrsti gervigrasvöllurinn á Islandi. Upphaflega var gert ráð fyrir því, að grasið yrði lagt árið 1983, en vegna hættu á missigi var horfið frá því og ákveðið að skipta framkvæmdinni á tvö ár. Tilboð í gervigras, útlagt og fullfrágengið, voru opnuð 18. janúar 1984. Alls bárust 18 tilboð og komu 12 þeirra til umfjöllunar. Hinn 10. apríl 1984 samþykkti borgarráð að ganga til samninga um kaup á gervigrasi frá fyrirtækinu Balsam í Vestur-Þýskalandi. Undir gervigrasinu era tvö gegndræp malbikslög og hitalagnir með 20 sentimetra millibili í neðra laginu, og á efra malbikslagið kemur sérstakt undirlag, 10 mm þykkt, sem grasdúkurinn er límdur á, en stráin em 9.5 mm há en völlurinn er alls um 8.000 m2. Þá var komið fyrir eininga- húsi fyrir búningsaðstöðu fyrir leikmenn. Árið 1985 vom ljóskastarar settir upp við völlinn og voru þeir fluttir frá Melavellinum. Síðan hefur völlurinn verið girtur af, koinið fyrir miðasöluskúrum, salemisaðstöðu fyrir áhorfendur og áhorfendastúka byggð Notkun á gervigrasvellinum: Nýttir tímar Iðkendur 1984 139 1795 1985 2398 41540 1986 3074 49670 1987 2743 56339 1988 2541 64151 1989 2822 62597 ÍÞRÓTTAHÚS VIÐ FJÖLBRAUTASKÓLANN í BREIÐHOLTI Nú standa yfir lokaframkvæmdir við íþróttahús við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Húsið, sem er 2140 m2 ,er tengt við sundlaugina sem áður var byggð. I íþróttahúsinu, sem rúmar 1500 áhorfendur, er gert ráð fyrir að fari fram kennsla á vegum skólanna í hverfinu og æfingar og keppnir á vegum íþróttahreyfingarinnar. Arkitekt hússins er Guðmundur Þór Pálsson. ANNAÐ Reykjavíkurborg stendur að ýmsum öðmm framkvæmdum á sviði íþróttamála, bæði ein sér og í sam- starfi við aðra, svo sem íþróttafélögin, nágranna- sveitarfélögin vegna framkvæmda í Bláfjöllum svo eitthvað sé nefnt. Þær framkvæmdir, sem í þessari grein er sérstaklega lýst eru þær nýstárlegustu hver á sínu sviði og breyta mestu um bætta aðstöðu til íþróttaiðkunar. ■ JÚLÍUS HAFSTEIN 12 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.