Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Blaðsíða 19

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Blaðsíða 19
Hinn nýi og glæsilegi völlur í Mosfellsbæ sem tekin vann var formlega í notkun sl. haust. Með þessum velli gjörbreytist aðstaða bæði til keppni og æfinga í frjálsíþróttum. Gerð innanhússbrauta er tvenns konar. Annars vegar er um að ræða trépalla sem settir eru á gólfið og viðarplötur ofan á þá (sbr. mynd úr íþróttahöllinni í Kobe í Japan). Kostur við þessa gerð er aðallega að hún er ódýrari en sú tegund sem fjallað verður um hér á eftir. Gallar eru hins vegar þeir að það tekur um þrjá daga fyrir 18 manna vinnuflokk að koma aðstöðunni fyrir og að borðin og annað efni sem í útbúnaðinn fer taka feikilegt geymslupláss. Hin aðferðin kom fyrst fram hjá fyrirtækinu Mondo fyrir nokkrum árum, en hún byggist á að upphækkuðum svæðum í beygjunum er lyft upp með fjarstýrðum raf- magnsdrifnum tjökkum undir gólfinu. Allur góflflöturinn er úr sérstöku gúmmíefni sem þolir sveigju. Sérstakur málmrammi er undir beygjufletinum þannig að hann hreyfist ekki. Einn helsti kosturinn við þessa aðferð er hversu fljótlegt það er að hafa völlinn tilbúinn fyrir frjálsíþróttamót eða æfingar. Þessi gerð er talsvert dýrari, en vegna þess hversu fljótlegt og einfalt það er að koma þessum velli upp miðað við plankavöllinn, er gert ráð fyrir að sá munur sem er á innkaupsverði og uppsetningu sparist eftir þrjú skipti. Svo ekki sé minnst á allt geymsluplássið sem annars þyrfti að koma upp fyrir plankavöllinn. Þegar húsið er ekki notað fyrir frjálsíþróttamót eru hlaupabrautimar einfaldlega lækkaðar niður í venjulega góflhæð. Þá er gólfflöturinn tilbúinn undirhvaða notkun sem er, handknattleik, blak eða sýningar. NIÐURSTÖÐUR Mín skoðun er sú að íslenskir frjálsíþróttamenn haldi áfram að dragast aftur úr erlendum, þangað til aðstaðan batnar. Við vorum samkeppnishæfir á meðan aðstaðan var svipuð á fimmta og fram á sjötta áratuginn. Á þeim áttunda og síðar höfum við jafnt og þétt dregist aftur úr hvað varðar aðstöðu og getu. Island er jafnan neðarlega í C-riðli Evrópukeppninnar. Við komumst ekki þaðan fyrren aðstaðan batnar. Frjálsíþróttir verða annars flokks íþróttagrein, nema stórátak verði í uppbyggingu frjálsíþróttamannvirkja. Forysta frjálsíþróttahreyfingarinnar má ekki slá slöku við fyrr en fullkomin aðstaða er komin til keppni og æfinga frjálsíþrótta hérlendis. Sömuleiðis verða stjómvöld, bæði ríki og sveitarfélög, að skapa frjálsíþróttum eins góða aðstöðu og mögulegt er í núverandi leikfimisölum. Við eigum duglega og kraftmikla íþróttamenn sem tilbúnir eru að leggja á sig talsvert til þess að ná árangri, fái þeir aðeins tækifæri til þess. Frjálsíþróttir ná ekki að dafna fyrr en aðstaðan til æfinga verður orðin sambærileg við það sem gerist erlendis. Stefna verður að því að koma upp fjölnota íþróttahúsi þar sem hægt verður að halda löglegt frjálsíþróttamót. Hvar er þörfin meiri en í nyrstu höfuðborg heimsins? MEÐAL HEIMILDA: Iðkendaskýrslur ÍSÍ 1988; Kennsluskýrslur ÍSÍ 1988; Skýrsla Laganefndar FRI um ástand Laugardalsvallar ág. 1988; Reglur Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins 1988-89; Skýrsla formanns Utbreiðslunefndar FRI um aðstöðumál á landsbyggðinni, okt. 88. ■ JÓNAS EGILSSON 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.