Arkitektúr og skipulag - 01.03.1990, Side 69
KynninG: FORM ÍSLAND
Félagið Form ísland var stofnað árið 1985 og hefur að meginmarkmiði að kynna góða hönnun, sérstaklega
íslenska hönnun. Samtímis vinnur félagið að því að koma á aukinni samvinnu milli framleiðenda og hönnuða.
Form ísland eru regnhlífasamtök og tengjast stjórnarmeðlimir öðrum samtökum og félögum s.s. Arkitektafélagi
íslands, Félagi húsgagna- og innanhússhönnuða, framleiðendum og listiðnaðarfélögunum.
Á þeim tœplega fimm árum sem félagið hefur starfað hefur verið komið upp nokkrum föstum liðum, í
marsmánuði verður haldinn 3. Hönnunardagurinn sem húsgagnaframleiðendur standa fyrir ásamt félaginu. Einnig
er það stefna félagsins að kynna íslenska hönnun erlendis. Fyrir þremur árum var skipulögð þátttaka okkar í stórri
farandsýningu í Japan og I ár verður haldin umfangsmikil hönnunar- og listiðnaðarsýning í Málmey (sjá meðf.
gögn). Auk stœrri viðburða stendur félagið fyrir „kaffifundum" um einstök málefni og sér um reglubundna
kynningu á íslenskri hönnun í fjölmiðlum.
Það hefur sýnt sig að full þörf er fyrir Form ísland og er ástceðan vafalaust aukið mikilvœgi hönnunar. íslenskum
hönnuðum fjölgar og stjórnendur fyrirtœkja hafa sannreynt þýðingu góðrar hönnunar. Þau þverfaglegu tengsl
sem hafa myndast með starfsemi félagsins eru ekki síður mikilvœg en starfsemi þess á opinberum vettvangi.
Form ísland er áhugamannafélag með einn starfsmann í hlutastarfi. Að mati stjórnar er ástœðulaust að breyta
þessu vegna þess að starfsemin er verkefnabundin. Aftur á móti er mikilvœgt að bceði fagfólk og áhugafólk um
hönnun tengist félaginu á virkan hátt. Öflug starfsemi byggir á góðri samvinnu félagsmanna. Félagið er öllum opið
og þeir sem vilja kynna sér starfsemi félagsins nánar cettu að hafa samband við Hildi Gunnarsdóttur í síma 27577.
Pétur B. Lúthersson hlaut viöurkenningu Hönnunardags 1989
fyrir „Mocca“ stól og borð. Framl. Bíró-Steinar.
NordForm
Norræn hönnunarsýning í
Malmö
Malmöborg stendur fyrir stórri norrænni hönnunarsýningu næsta
sumar og mun sýningin standa frá 1. júní - 2. september. Leitað
var eftir samstarfi við norrænu hönnunarfélögin við undirbúning
sýningarinnar og hefur félagið Form ísland tekið þátt í þessum
undirbúningi.
Sýningunni er ætlað að kynna það besta í hönnun landanna á
allra síðustu árum og tekurtil byggingarlistar, iðnhönnunar og
listiðnaðar auk þess sem tækifæri gefast til margháttaðrar kynn-
ingar á sviöi lista og menningar.
Sýningarsvæðið er á fyrrum athafnasvæði Kockums skipasmíða-
stöðvarinnar, svokallaðri Hjálmars-bryggju, sem er 400 metra löng
og liggur samsíða lægi „flugbátanna” sem fara milli Malmö og
Kaupmannahafnar. Auk mannvirkja sem nú standa á bryggjunni
og nýtt verða fyrir sýningar, verða reistir nýir skálar, byggð
útisvæði, leiksvið og garðar, margskonar útisvæöi, götur og torg.
Legukanturinn verður nýttur fyrir báta og fljótandi veitingahús svo
nokkuð sé nefnt er varðar umhverii sýningarinnar.
Norræn raðhús:
Síðastliðið sumar lauk samkeppni um hönnun raðhúss er efnt var
til í samvinnu við arkitektafélög landanna. Til samkeppninnar
67