Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Síða 71

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Síða 71
HUGMYNDASAMKEPPNI UM SKIPULAG BESSASTAÐAHREPPS í DÓMNEFNDARÁLITI FRÁ 17. DESEMBER 1991 SEGIR EFTIRFARANDI UM AÐDRAGANDA SAMKEPPN- INNAR „Bessastaðahreppur ákvað á árinu 1990 að láta fara fram endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Núverandi aðalskipulag gildir fyrir tímabilið frá 1984-2004 og var því tímabært að velta upp nýjum sjónarmiðum, öðrum væntingum fyrir það samfélag sem hefur verið að myndast á liðnum árum. Bessastaðahreppur hefur tekið miklum breytingum frá því að aðalskipulagið var samþykkt árið 1984- Ihúafjöldi hefur vaxið frá því að vera um 600 manns í að vera annar stærsti hreppur landsins með 1200 íbúa. Til marks um uppbyggingarhraðann varð fólksfjölgunin um 14% á árinu 1990. Bessastaðahreppur hafði auk þess unnið síðustu árin að hugmyndum um uppbyggingu á miðbæjarsvæði. í lögum nr. 31/1989 um endurbætur og framtíðaruppbyggingu forseta- setursins á Bessastöðum er Bessastaðanefnd falið að gera heildar- áætlun um nýtingu lands og uppbyggingu mannvirkja á Bessa- stöðum. I greinargerð eru þessu gerð ítarleg skil og þar kemur fram meðal annars að „endurmeta þarf nýtingu allrar landareignarinnar og staðfesta þá nýtingu á aðalskipulagi Bessastaðahrepps“. Akveðið var að tengja þetta saman og ráðast í viðamikla hugmynda- samkeppni um skipulag í Bessastaða- hreppi í samvinnu við skipulags- stjóm ríkisins og Bessastaðanefnd. „Hugmyndasamkeppnin“ átti að varpa nýju ljósi á skipulag og umhverfi innan hrepps og ná yfir um 60% af landsvæði hreppsins. I dómnefnd voru valdir: Tilnefndur af Bessastaðahreppi: Sigurður Valur Ásbjarnarson, formaður dómnefndar. Tilnefndur af skipulagsstjórn ríkisins: Snæbjörn Jónasson. Tilnefndur af Bessastaðanefnd: Pétur Stefánsson. Tilnefndir af Arkitektafélagi Islands: Jóhannnes S. Kjarval og Sigurður Hallgrímsson.” í KEPPNISLÝSINGU SEM DAGSETT ER 17. MAÍ 1991, SEGIRSVO UM TILGANG SAMKEPPNINNAR „Tilgangur samkeppninnar er þríþættur: - Að koma fram með hugmyndir um landnotkun á öllu samkeppnis- svæðinu, aðkomu að byggðinni, umferðarkerfi og gönguleiðir. Þá skal höfð í huga varðveisla náttúru- og sögulegra minja og gerð útivistar- svæða. - Að koma fram með hugmyndir að skipulagi lands Bessastaða, aðkomu að forsetasetrinu og tengingu þess við miðsvæðið. - Að koma fram með hugmyndir að uppbyggingu miðsvæðis í Bessa- staðahreppi sem þjóni fyrst og fremst íbúum sveitarfélagsins en einnig stærra svæði eftir því sem aðstæður leyfa. Stefnt skal að því að sem eðlilegast samband verði á milli miðbæjarins og virðuleika forseta- setursins. Heimilt er í tillögum að víkja frá aðalskipulagi.” Skilafresti lauk hinn 15. október 1991, en þá höfðu borist 12 tillögur, sem allar töldust uppfylla sett skilyrði. Samkeppnin var í eðli sínu tvíþætt, varðar annars vegar þéttbýliskjarnann í Bessastaðahreppi og hins vegar nánasta umhverfi forsetasetursins á Bessastöðum og Bessastaðanes. Dómnefnd ákvað að tvær tillögur skyldu deila með sér 1. verðlaunum, með hliðsjón af áðumefndum þáttum. Höfundar reyndust vera annars vegar Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, landslagsarkitekt og Ogmundur Skarphéðinsson, arkitekt, og hinsvegar Batteríið - arkitektar; Jón Ólafur Ólafsson og Sigurður Einarsson arkitektar. Önnur verðlaun hlutu Aðalsteinn Snorra- son, Egill Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson arkitektar. 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.