Víkurfréttir - 01.01.2023, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 01.01.2023, Blaðsíða 9
Eigendaskipti verða hjá Bústoð nú um mánaðamótin þegar Björgvin Árnason, sem hefur verið versl­ unarstjóri Bústoðar síðastliðin níu ár, kaupir rekstur verslunar innar ásamt Elmari Geir Jónssyni og meðfjárfestum. Seljendur eru Róbert Svavarsson, Hafdís Gunn­ laugsdóttir og fjölskylda en þau hjónin stofnuðu Bústoð fyrir 48 árum síðan eða árið 1975. Húsgagnaverslunin Bústoð hefur allt frá upphafi haft það að mark- miði að bjóða upp á gæðavörur á góðu verði, meðal annars frá Calia Italia, Furnhouse og Skovby. Auk þess nýtur gjafavörudeild Bústoðar töluverðra vinsælda, með vörum frá Iittala, Bitz, Zone, KARE, Spa of Iceland, Vorhús og fleirum. Bústoð hefur ávallt verið staðsett í Reykja- nesbæ og er til húsa að Tjarnargötu 2, þar sem verslunin verður áfram í rúmgóðum 1200 fm sýningarsal. Áfram verður byggt á gömlum grunni þó ákveðnar áherslubreyt- ingar fylgi nýjum eigendum. „Ég er með frábært teymi með mér og saman viljum við sækja enn frekar fram, bæði í heimabyggð, á höfuðborgarsvæðinu og á lands- byggðinni. Bústoð er rótgróið fyrir- tæki á íslenskum húsgagnamarkaði og til viðbótar því að vera með góð vörumerki, þar sem við höfum getað boðið upp á gæðavörur á góðu verði, höfum við lagt mikla áherslu á að sinna viðskiptavinum okkar vel. Það er lykillinn að árangri undanfarinna ára og við munum halda því áfram, ásamt því sem við ætlum okkur að breikka vöruúrvalið og vera enn sýnilegri,“ segir Björgvin Árnason. Róbert Svavarsson segir að þau hjón séu stolt af því að hafa byggt upp þetta fyrirtæki í þessi 48 ár. „Svona gerist ekki nema að hafa frá- bært starfsfólk sér við hlið, sem við höfum alltaf haft og viljum við þakka þeim fyrir samstarfið í gegnum árin. Við þökkum viðskiptavinum okkar um land allt fyrir viðskiptin í þessi 48 ár. Jafnframt er það mikið ánægjuefni að vita til þess að fyrir- tækið verður í góðum höndum hjá Björgvini og félögum. Fyrir þeim vakir að hlúa áfram að Bústoð, vöru- merkjum og starfsfólki þess, sem veita viðskiptavinum okkar áfram framúrskarandi þjónustu. Við Hafdís göngum því sátt frá borði, full þakk- lætis eftir tæplega hálfa öld í rekstri.“ Í tilefni tímamótanna var haldið tímamótapartý í versluninni síð- asta laugardag. Þar afhentu Róbert og Hafdís tveimur samtökum eina milljóna króna styrk hvoru; Parkin- sonsamtökunum og Alzheimersam- tökunum og tóku fulltrúar þeirra við gjöfunum og þökkuðu fyrir hlýhug Bústoðar hjónanna. Styrkir til sam- takanna voru í minningu Magnúsar Sædals, bróður Róberts. Nýir eigendur að Bústoð Ungir heimamenn taka við af Róberti og Hafdísi sem hætta eftir 48 ár. Ætla að breikka vöruúrvalið og vera enn sýnilegri. „Bústoð er rótgróið fyrirtæki á íslenskum húsgagnamarkaði og til viðbótar því að vera með góð vörumerki, þar sem við höfum geta boðið upp á gæðavörur á góðu verði höfum við lagt áherslu á að sinna viðskipatvinum okkar vel“ Tvær milljónir í styrki Í tilefni tímamótanna afhentu Róbert og Hafdís tveimur samtökum eina milljón króna styrk, Parkinsonsam­ tökunum og Alzheimersamtökunum og tóku fulltrúar þeirra við gjöfunum og þökkuðu fyrir hlýhug Bústoðar­ hjónanna. Styrkir til samtakanna voru í minningu Magnúsar Sædals, bróður Róberts. Á myndinni eru þrjár Vilborgar. Við hlið Hafdísar er Vilborg Gestsdóttir, ekkja Magnúsar Sædals, því næst Vilborg Jónsdóttir, for­ maður Parkinsonsamtakanna, Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna, og Róbert. Fjölmargir vinir og ættingjar samfögnuðu með fráfarandi og nýjum eigendum Bústoðar í „tímamótapartýi“ sem efnt var til í versluninni. Bústoðarhjónin Hafdís og Róbert hafa komið lyklunum í hendur á Björgvini Árnasyni t.v. og Elmari Geir Jónssyni. VF-myndir/pket Páll Ketilsson pket@vf.is vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 9

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.