AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Side 46
RUNAR GUNNARSSON
Stefna ,
REYKJAVIKURBORGAR
Þaö er stefna Reykjavíkurborgar að þær
byggingar sem reistar eru þjóni vel þeirri
starfsemi sem þær eru byggðar fyrir.
Einnig er tekið tillit til þess umhverfis sem
þær eru reistar í og leitast við að sem víðtækust sátt
sé um bygginguna. Hús eru byggð eftir staðfestu
skipulagi. Leitast er við að byggingartæknilega séu
byggingarnar vel leystar. Þær séu blanda af vönd-
uðum hefðbundnum lausnum, sem góð reynsla er
af, og nýjungum. Má þar nefna einangrun utanhúss,
með breytilegum veðrunarkápum, sem bygginga-
deild borgarverkfræðings hefur stuðlað að í nýjustu
byggingum borgarinnar með ágætum árangri. Á
seinni árum hefur rekstur byggingarinnar og viðhald
orðið mikilvægari þáttur í hönnun mannvirkjanna.
Á vegum byggingadeildar borgarverkfræðings
Reykjavíkurborgar verða reist ný mannvirki á árinu
1994 fyrir um 1.500 milljónir króna og um 500 milljónir
fara í viðhald á fasteignum borgarinnar.
Þau mannvirki, sem reist eru á vegum borgarinnar,
eiga að þjóna fyrirfram ákveðinni starfsemi sem koma
á í húsið. Þeir málaflokkar er varða nýbyggingar á
vegum Reykjavíkurborgar og deildin sér um eru
eftirfarandi:
Menningarmál - Dagvistunarmál - Skólamál
íþrótta- og tómstundamál - Öldrunarmál
Bílageymsluhús - Ýmsar fasteignir
Eins og sést á þessari upptalningu eru málaflokkarnir
margir, byggingarnar mismunandi og starfsemin sem
fer fram í þeim afar fjölbreytt. Því er öll undir-
búningsvinna afar mikilvæg. Á vegum deildarinnar
er unnin forsögn að mannvirkinu í náinni samvinnu
við viðkomandi stofnun borgarinnar, sem mun nýta
mannvirkið, arkitekta byggingarinnar og aðra sér-
hönnuði eftir því sem við á. Frumkostnaðaráætlun er
gerð á þessu stigi. Að lokinni hönnun hefjast fram-
kvæmdir. Á byggingadeild er leitast við að fagmenn
vinni að öllum stigum byggingaframkvæmdanna, á
sama hátt og unnið er að hönnuninni. Að lokinni
framkvæmd er mannvirkið afhent viðkomandi borgar-
stofnun, sem tekur við rekstri byggingarinnar, en
viðhaldsþátturinn er á vegum byggingadeildar. ■
44