AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Síða 67

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.1994, Síða 67
lyiAT A UMHVERFISAHRIFUM ýsett lög og reglugerð um mat á um- hverfisáhrifum er tilefni þessarar grein- ar. Umhverfismat eru umfangsmikil fræðigrein sem unnið hefur sér sess víða um lönd þótt misjafnt standi styrkur þess í lögum. Leitast er við að gefa innsýn í aðferðir umhverfis- mats auk þess að hefja umræðu um efni laga og reglna um mat á umhverfisáhrifum sem nú er verið að semja leiðbeiningar við. Gangur umhverfismats er settur fram í nokkrum meginstigum sem saman- standa af: afstúkun framkvæmda; umfangi umhverf- ismats; mótvægisaðgerðum; gerð matsskýrslu; rit- dómi á matsskýrslu; umsögn og þátttöku almenn- ings; ákvörðunartöku og vöktun. Niðurlag greinar- innar er að betur má ef duga skal, til að kostir um- hverfismats njóti sín til fulls. Gefin eru fyrirheit um að fullnægjanlegt geti verið að skila inn tilkynningu um fyrirhugaða framkvæmd til grundvallar ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis; að ávinningur af fram- kvæmd geti gert umhverfisáhrif ásættanleg. Æski- legra væri að þátttaka almennings og umsagnaraðila kæmi mun fyrr inn í ferli umhverfismats en gert er ráð fyrir; og betur færi á að hafa eitt matsþrep í stað tveggja (frumathugun og frekari athugun) þar sem tilkynning framkvæmdaraðila yrði notuð við formlega afstúkun framkvæmda samkvæmt viðauka II í reglugerðinni. I. UMHVERFISMAT Aðferðir umhverfismats hafa hlotið mikla viður- kenningu við stjórn umhverfismála frá því það var fyrst tekið upp í Bandaríkjunum árið 1969 (National Environmental Policy Act). Mörg lönd hafa tekið upp aðferðirnar í kjölfarið með mismiklum áhuga sem leitt hefur til þess að þróunin er komin mislangt á veg. Margar skilgreiningar eru til á umhverfismati, þar á meðal eftirfarandi frá Lee (1989): „Umhverfismat - Ferli aðferða, hannað til að ganga úr skugga um að þeir áhrifaþættir, sem kunna að valda umtalsverðri umhverfisröskun, verði metnir á fullnægjandi hátt og að tekið verði fullt tillit til þeirra við áætlunargerð, hönnun, ákvörðunartöku og aðra starfsemi.” Umhverfismat setur á oddinn þá valmöguleika sem eru heillavænlegir umhverfinu og nær bestum árangri ef umhverfisáhrif eru könnuð eins snemma á undir- búningsstigi og kostur er. Þá er hægt að taka fullt tillit til þeirra við endanlegt framkvæmdaval, staðar- val, skipulag og hönnun. Umhverfismat dregurfram verklag sem líklegt er að dragi úr umhverfisröskun og leitast við að sýna fram á lausnir sem auka hæfi framkvæmdar í fyrirhugað umhverfi. Tækni þess byggist einkum á hreyfanlegu upplýsingaflæði og er eftirtekjan mjög háð svörun (feedback), sjá flæðirit. Lög og reglur sem eiga að tryggja þetta flæði þurfa þess vegna að vera þróuð og falla vel inn í stjórn- sýslu þeirra stofnana sem sjá um umhverfismat. Niðurstöður mats eru venjulega settar í skýrslu sem ákvörðun um endanlega leyfisveitingu byggist á. Þetta má þó ekki skilja á þann veg að á einum tímapunkti, í kjölfar skýrslunnar, verði eina ákvörðunin tekin í umhverfismatsferlinu. þar er einungis um að ræða endanlegt leyfi eða/synjun til framkvæmda. Áætlunargerð og skipulag vegna framkvæmdar eða annarrar starfsemi er háð fjölda ákvarðana sem eru teknar af mörgum ólíkum aðilum á mismunandi tíma. Enda er oft þegar búið að taka ákvörðun um fram- kvæmdaþörf, staðsetningu og/eða hönnunarfor- sendur þegar eiginleg matsskýrsla er loks fullfrá- gengin. Hér á eftir er dregið upp líkan af umhverfismati og helstu aðferðir þess kynntar. Líkanið samanstendur af: afstúkun (er framkvæmd matsskyld?); umfangi (yfirgrip og nákvæmni mats); mótvægisaðgerðum (ráðstafanir til að draga úr/forðast röskun); gerð matsskýrslu; ritdómi (gæðamat á matsskýrslu); umsögn og þátttöku almennings; ákvörðunartöku auk vöktunar og endurskoðunar (eftirlit og rannsókn á árangri ferlisins). AFSTÚKUN (screening) Fyrsta stig umhverfismats er að ákvarða þörfina á að meta umhverfisáhrif tiltekinnar framkvæmdar. Fullt umhverfismat kann að vera ónauðsynlegt fyrir allar framkvæmdir eða starfsemi og er afstúkun beitt til að hvftþvo þær framkvæmdir sem samkvæmt fyrri 65 EINAR PALSSON TÆKNIFRÆÐINGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.