AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Page 11
gestur ólafsson
FRÍTÍMAMANNVIRKI
Aþessari öld sem nú er aö líða hafa
flestir íslendingar komist af nauðþurft-
arstiginu. Þær langanir og draumar
sem síðasta aldamótakynslóð bar í
brjósti um meiri frístundir og betri aðstöðu til þess
að njóta frítímans hafa orðið að veruleika fyrr en
nokkurn varði. Með minni vinnu barna, unglinga og
skólafólks, styttingu vinnuvikunnar, lægri eftir-
launaaldri og hærri meðalaldri hafa þarfirnar fyrir
hvers konar frítímamannvirki fyrir fólk á öllum aldri
aukist stöðugt. Langt er frá að séð sé fyrir endann
á þessari þróun enda bendir margt til þess að í
upplýsingaþjóðfélagi framtíðarinnar muni ekki
nema um fjórðungur manna stunda það sem við
köllum atvinnu í dag.
Heimurinn og kröfurnar breytast líka hratt. Það er
ekki liðin öld síðan forfeður okkar lærðu sund í
torflaugum, gengu sjálfir upp skíðabrekkurnar og
byggðu sér „sæluhús" fyrir ferðamenn á hálendinu.
Áður en varir verða langanir gærdagsins að þörf-
um dagsins í dag og kröfurnar vaxa sífellt um betri
og betri aðstöðu. Sú aðstaða sem öllum þótti vel
boðleg fyrir nokkrum áratugum eða árum fullnæg-
ir ekki lengur kröfum samtíðarinnar, enda berum
við okkur í æ ríkari mæli saman við það besta sem
gerist erlendis. Fátt bendir líka til annars en að við
viljum leggja hart að okkur til þess að koma upp
góðri frítímaaðstöðu.
Ekki er við því að búast að nokkurn tíma náist al-
ger sátt um það hvernig rétt sé að verja opinberu
fé til þessara mála. Þó er rétt að taka undir þá sjálf-
sögðu kröfu að þeir sem bera ábyrgð á því hvern-
ig almannafé er varið til frítímamannvirkja taki fullt
tillit til þarfa fólks á öllum aldri og ekki síst fullorð-
ins fólks, aldraðra og minnihlutahópa með sérþarf-
ir. Þótt eflaust megi finna gild rök fyrir auknum
sparnaði á mörgum sviðum þá eru það samt þau
frítímamannvirki sem erlendir ferðamenn nota hér
á landi sem að umtalsverðu leyti móta ímynd ís-
lands útávið. íslenskir íþróttamenn sem bera hróð-
ur landsins um víða veröld þurfa líka sömu að-
stöðu og þeir menn sem þeir eru að keppa við.
Fáar atvinnugreinar hafa verið í jafnörum vexti á
undanförnum árum og þær sem snúa að hvers
kyns frítímastarfsemi fólks. í hinum svokallaða
vestræna heimi eru útgjöld fólks til þessara mála
nú um þriðjungur af öllum útgjöldum og hafa farið
ört vaxandi.
Undanfarna áratugi hafa íslendingar leitað mikið í
hvers konar frítímamannvirki erlendis, enda er að-
staða hér enn mun fábreyttari en gerist í nálægum
löndum. Fáir aðilar hafa ennþá mótað heildstæða
stefnu um það hvernig þeir vilja bregðast við vax-
andi þörf á þessu sviði. Hér á landi er því mikið
starf enn óunnið í þessum efnum bæði af hálfu
einkageirans og hins opinbera. ■
Pýramídarnir - yfirbyggöur baöstaöur fyrir fólk á öllum aldri
í Southsea á Englandi.
9