AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Síða 34

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.08.1997, Síða 34
Verk eftir Gest Þorgrímsson og Runu. Verölaunatillaga Sigrúnar Eldjárn. áhorfendur, alla í sætum. Þaö er talið nægjanlegt meö tilliti til þess aö flestum stórleikjum er nú sjón- varpað beint. Nýja stúkan er byggö úr forsteyptum einingum. Léttur bogi er á stúkunni en hún fylgir lögun vallarins. Léttleiki þaksins myndar andstæöu viö steypta hluta stúkunnar. Þakið er úr aluzinki, boriö uppi af bláum stálrömmum sem teygja sig í átt aö eldri stúku. Stálrammarnir eru klæddir glæru plexigleri sem hleypir birtu inn í stúkuna. LISTIR OG MANNVIRKI Allt frá íþróttaleikvöllum Forn-Grikkja hafa kapp- leikir og útivera í borgum veriö nátengd listum, þó einkum höggmyndalistinni. Það var því ákveðið þegar fyrsta stúkan var byggö aö hafa vesturhlið hennar gluggalausa, við þaö myndaöist stór, fall- egur og áberandi flötur. Hugmyndin var sú aö fara síðar meir í samstarf viö listamann um listaverk á hliðina. Mörgum sem standa fyrir byggingum þykja þær svo dýrar aö ekki sé listaverkum ábætandi. En „þolinmæðin þrautir vinnur allar“. Tuttugu árum eftir aö byggingunni var lokið, samþykktu borgaryf- irvöldin aö láta setja upp hiö ágæta og listræna verk Gests Þorgrímssonar og Rúnu (Sigrúnar Guöjónsdóttur). Listaverkið er tákn úr íþróttalífinu og hefur listamönnunum tekist afbragðsvel aö sýna aö íþróttir eru listrænar í eðli sínu. íþróttir, listir og útivera eiga eins og áöur segir vel saman, þess vegna þurfum viö að sjá fleiri lista- verk í dalnum. Fyrir nokkrum árum var samkeppni um listaverk er skyldi standa viö innganginn í dal- inn, sem er viö Engjaveg. Aö henni stóöu Reykja- víkurborg, menntamáiaráöherra, íþróttasamband- iö og Ólympíunefnd. Dómnefnd var skipuð af of- angreindum aðilum og tveimur fulltrúum frá Sam- bandi ísl. Myndlistarmanna. Allmargar tillögur bár- ust. Dómnefndin var sammála um eina tillögu en höfundurinn aö henni er Sigrún Eldjárn. í þessari tillögu er leitast viö aö tengja saman forn-gríska list og nútímalist. Færi vel á því aö áðurgreindir aöilar tækju nú aftur saman höndum og hrintu þessu máli í framkvæmd. LAUGARDALSHÖLL Laugardalshöllin varbyggöáárunum 1961 til 1965 en vígsla fór fram meö landsleik íslands og USSR í handbolta. Höllin er frá upphafi fjölnota hús er leyst gæti vanda íþrótta, vörusýninga og annarra margháttaöra menningarviöburöa. Húsið er um 2915 m2, þar af er salurinn 2280 m2. Engin súla mátti vera í salnum, svo ákveðið var aö setja stein- steypt hvolfþak yfir salinn. Þegar húsiö var reist var um aö ræöa eitt stærsta hvolfþak í Norður-Evr- ópu. Þetta var því verkfræðilegt afrek. í kantbitum eru eftirstrengdir stálkaplar sem í raun bera þakiö. Steypan í þaki viö útveggi er um 30 cm, en í toppn- um að eins 12 cm. Steypa varö þakið í einni lotu, en þaö tók tvo sólarhringa. Verkfræöstofa: Braga og Ey- vindar. Húsiö var í upphafi byggt af Reykjavíkurborg, sýn- ingarsamtökum atvinnuveganna, Í.B.R. og B./E.R. En nú er Reykjavíkurborg búin aö kaupa alla eign- arhlutana. Höllin er langstærsta samkomuhús borgarinnar. Þar hafa verið haldnar svo til allar vörusýningar síöari ára, heimsmeistarakeppni í skák og handbolta svo eitthvað mætti nefna. Þá hefur húsiö veriö notaö til tónleikahalds af ýmsum toga, svo og fyrir hverskonar íþróttaæfingar og keppni allt áriö um kring. Hér á landi getur ekkert 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.