AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Qupperneq 43
mest úr óheppilegum umhverfisáhrifum
varnarvirkjanna og nýta kosti þeirra til um-
hverfisbóta eftir því sem kostur er.
FORSENDUR
Viö undirbúning snjóflóðavarna á Dranga-
gilssvæöinu var sett fram þaö markmið af
hálfu Umhverfisráðuneytisins að ásættanleg
áhætta fyrir íbúa vegna snjóflóða væri einn
á móti 20.000 á ári og tekur hönnun, gerð og
staðsetning mannvirkisins mið af því. Til
samanburðar má geta þess að áhætta
vegna umferðarslysa er u.þ.b. helmingi meiri
eða einn á móti 10.000 á ári, en eðlilegt er
Fyrirhugaður varnargarður og keilur - Ásýnd séð aö byggð. Þessi
að krafa um öryggi sé meira inni á heimilum mVndatexti á líka vjö neöri mynd.
og vinnustöðum en úti í umferðinni. Heimilið er
það skjól eða sá staður þar sem einstaklingurinn
getur gert hvað mestar kröfur til öryggis.
Til þess að ná þessu markmiði fyrir Drangagils-
svæðið þurfa varnir að miðast við að stöðva
snjóflóð sem annars næði alla leið út í sjó, þ.e.
flóð sem er talsvert stærra en þekkt flóð á svæð-
inu. Áætlað er að flóð af þessari stærð geti fallið
að meðaltali einu sinni á hverjum þúsund árum.
Aðstæður til byggingar snjóflóðavarna eru erfiðar
á Drangagilssvæðinu. Efstu hús eru staðsett til-
tölulega nálægt fjallsrótinni og rými til byggingar
varnavirkja ofan þeirra er frekar lítið. Landhalli á
svæðinu er 1:10 - 1:6, og eykst brattinn eftir því
sem ofar dregur í hlíðina. Byggðin í Neskaupstað
er samfelld þannig að ekkert pláss er til að leiða
snjóflóð frá henni, nema hugsanlega til endanna
og ekki er raunhæft að setja fram tillögur um að
flytja byggðina annað, þar sem svo stór hluti bæj-
arins er á hættusvæði vegna snjóflóða.
Niðurstaða frumathugunar VST og snjó-
flóðasérfræðinga Cemagref var að leggja
til tvær tillögur að snjóflóðavörnum fyrir
Drangagil, þar sem öryggi varna er sam-
bærilegt.
1. Vörn sem samanstendur af stoðvirkjum
á hluta upptakasvæðis snjóflóða til að tak-
marka stærð flóðs, 10 m háum keilum ,
alls 13 stk. til að hægja á flóðinu og 15 m
háum og 400 m löngum bröttum þvergarði
til að stöðva það.
2. 3. Vörn sem samanstendur af keilum
og 19 m háum og 400 m löngum þvergarði
án samverkunar stoðvirkja.
4. Við útfærslu á tillögu að skipulagi
umhverfis snjóvarnarmannvirkja var unnið
út frá tillögu A.
Þess má jafnframt geta að bæjarstjórn Neskaup-
staðar hefur fyrir sitt leyti samþykkt tillögu A.
Tillagan gerir ráð fyrir 400m löngum garði norðan
húsagatnanna Blómsturvalla og Víðimýrar. Garð-
urinn verður um 15 m hár með mjög bratta hlið
sem snýr mót fjallshlíðinni. Innan við garðinn er
snjósöfnunarsvæði, þar er gert ráð fyrir að land
verði lækkað um 1-2 metra miðað við núverandi
landhæð. Þetta er gert til að minnka hæð garðsins
og þar af leiðandi ásýnd hans frá byggðinni. Gert
er ráð fyrir að nýta uppgrafið efni af svæðinu að
mestu í mannvirkið. Neðsti hluti garðsins er í 55-
70 m hæð yfir sjávarmáli og er neðri hluti garðsins
í 50m fjarlægð frá næstu húsum við Blómsturvelli.
Varnarhlið garðsins er minnst í 100 m fjarlægð frá
næstu húsum.
Garðurinn er 23 m á hæð þar sem hann er hæst-
ur séð frá aðalstíg, þ.e. þar sem varnargarðurinn
mætir núverandi landi neðan garðsins. Á svæðinu
a«« -
41