AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 64

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1998, Page 64
DR. BJARKI JÓHANNESSON, FORST.MAÐUR ÞRÓUNARSVIÐS BYGGÐASTOFNUNAR byggðastefna nýrra tíma Forsendur og hlutverk BYGGÐAR. Oft er spurt hvort eitt- hvert vit sé í byggðastefnunni. Miðað við reynslu undanfarinna ára freistast maður til að svara þeirri spurningu neit- andi. Ef betur er að gáð er málið kann- ski ekki svo einfalt. Forsendur búsetu breytast, gamlar lausnir á byggðamálum duga ekki lengur, heldur kalla nýir tímar á nýjar leiðir. Þegar ég hóf mastersnám í skipulagsfræði í Bandaríkjunum var sagan af bænum Caliente eitt það fyrsta sem ég las. Þegar járnbrautirnar voru lagðar í Bandaríkjunum voru notaðar eimreiðar, sem þurftu að stoppa með stuttu millibili til að taka vatn og eldsneyti. Þá urðu til bæir eins og Cali- ente, sem byggðu tilvist sína á þjónustu við járn- brautirnar. Þegar dísil- og rafknúnar jarnbrautir komu til sögunnar hættu lestarnar að stoppa í Caliente og bærinn dó ásamt fjölda svipaðra bæja. Bæir verða til af einhverri orsök. Þeir gegna ein- hverju þjóðfélagslegu hlutverki, sem er forsendan fyrir tilveru þeirra. Okkur hættir oft til að líta á bæi sem eilíf fyrirbæri, en sagan af Caliente sýnir að það er alls ekki svo. Meðal fyrstu bæja á Norður- löndunum voru Birka í Svíþjóð og Kaupangur í Noregi, hvort tveggja verslunarstaðir af nokkurri stærð og mikilli þýðingu. Ævilengd hvors um sig var um 150 ár, en báðir bæirnir dóu vegna breytt- rar sjávarstöðu og siglingahátta. íslenskir bæir eiga sér einnig sínar orsakir og for- sendur. Bæir á íslandi eru nokkuð nýtt fyrirbæri, aðallega frá þessari öld. Þeir urðu til svo til sam- tímis, og það byggðamynstur, sem við búum við í dag, mótaðist af þeim aðstæðum, sem ríktu á þessu stutta tímabili. Byggðaþróunin fylgdi lögmáli þeirra tíma að fyrirtæki leituðu staðsetningar nálægt hráefni og mörkuðum til að minnka flut- ningskostnað og stytta flutningstíma á viðkvæmu hráefni. Fólkið sótti svo þangað sem atvinnu var að hafa. Hérlendis voru það fiskurinn og fjarlægð á miðin sem réðu staðsetningunni. Þessar forsendur hafa breyst á síðari árum og þar með forsendurnar fyrir byggðamynstrinu. Með breyttum atvinnuháttum og siglingaháttum geta nú skipin siglt lengri leið og unnið hráefnið um borð. Með þessu minnkar atvinna og fólk flyst burt. Úr þessu verður vítahringur, fólkinu fækkar, undirlag fyrir verslun og þjónustu minnkar, vegna þess flyt- ur enn fleira fólk í burtu og þannig gengur sagan. Við þekkjum öll örlög gömlu síldarbæjanna, og bæir og þorp, sem byggðu tilvist sína á fiskveiðum og landbúnaði, virðast stefna á sömu leið. BYGGÐAVANDINN Fólksflutningur frá landsbyggðinni er reyndar ekki nýtt fyrirbæri. Hann var mikill um miðbik aldarinnar, en síðan dró úr honum um sinn og á áttunda áratugnum virtist jafnvægi vera náð. Þetta jafnvægi hélst um nokkurt skeið, en á síðasta áratug hafa flutningar til höfuðborgarsvæðisins aukist á ný. íbúum hefur fækkað víðast hvar á landsbyggðinni og störfum hefur einn- ig fækkað, einkum í landbúnaði og fiskveiðum. Hvað er þá til ráða? Eigum við bara að láta markaðinn ráða því hvað verður um bæi, sem ekki hafa sama atvinnu- grundvöll og áður? Ýmis rök mæla með því að svara þessu neitandi. í þessum bæjum liggja oft miklar fjár- festingar í húsnæði og þjónustukerfi, Mynd 1. Mannfjöldi 1. desember 1997 eftir svæöum og breyting 1987- 1997. 5.766 -12% -Í4% \ ' *“ ,„K, ■70/ >, . 0% ____10% Fækkun iÉBl 20% 62

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.