AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 16

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 16
Árborg - hverfi í stórborg?. Einar Njálsson, bæjarstjóri Árborgar Árborg er sveitarfélag í sókn. íbúa- fjöldi er 6.300 manns og stöðug upp- bygging. Árborg er þjónustumiðstöð fyrir allt Suðurland, verslun, þjónusta og iðnaður eru aðalatvinnugreinar sveitarfélagsins. Skólastarf er öflugt og ferðaþjónusta er mjög vaxandi. Auk grunnskólanna eru í Árborg sex leikskólar, tónlistarskóli og Fjölbrauta- skóli Suðurlands. Góð almenn þjón- usta. Menningarlífið er fjölbreytt, um- hverfið fagurt og fólkið skemmtilegt. í þessari kynningu, sem ég hef gjarn- an notað þegar auglýst er eftir starfs- fólki hjá sveitarfélaginu, er bent á styrk Árborgar. Þó sóknarfæri liggi í styrkleika eru sóknarfæri ekki síður fólgin í veikleikum, þ.e. að takast á við þá og snúa þróuninni við. Ýmsir telja að helsti veikleiki sveitarfélaga í landinu um þessar mundir séu aukin verkefni og skyldur sem löggjafinn og framkvæmdavaldið hafa lagt á sveit- arfélögin án þess að tryggja tekju- stofna til úrlausnar þeirra. Ég tek undir þetta og legg áherslu á, að það er forgangsmál að hefja af krafti vinnu við að endurskipuleggja tekjustofna sveitarfélaga og skapa þeim grund- völl til að sinna lögboðnum verkefn- um. Þarna liggja veruleg sóknarfæri fyrir þjóðina í heild. Styrkleikar Árborgar verða þó einkum til umfjöllunar hér. Sérstaklega tveir þættir. Annars vegar er sá þáttur sem felst í óvenju háu þjónustustigi sveitarfélagsins. Verslun er fjölbreytt og öflug og stenst samanburð við höfuðborgarsvæðið í dagvörum og byggingarvörum. Skólamál og opin- ber þjónusta sveitarfélags og ríkis er góð. Iðnaðarframleiðsla og verktaka- starfsemi er sterk og mörg smá en öflug einkarekin þjónustufyrirtæki starfa m.a. í iðnaði og fjölbreyttri ráð- gjöf. Hluti af þessu er sá styrkleiki sveitarfélagsins sem felst í fjölbreyttu byggðarmynstri í þremur byggða- kjörnum og sveit með hefðbundnum landbúnaði. Sá grunnur sem hér er lýst er lykillinn að því að við getum nýtt okkur þá sérstöðu sem felst í nálægð Árborgar við höfuðborgarsvæðið. Ég er í hópi þeirra sem telja að sú sérstaða sé einn helsti styrkleiki sveitarfélagsins og til þess fallin að skapa mikil sókn- arfæri. Nýjar áherslur og kröfur fólks um nútímalega, jafnvel „öðruvísi" lífs- hætti skapa sóknarfæri fyrir sveitarfé- lagið Árborg. Ungt fólk leggur í vax- andí mæli áherslu á mikilvægi fjöl- skyldunnar og vill auka veg hennar og búa í fjölskylduvænu umhverfi. Þar eru tækifæri fyrir sveitarfélagið Ár- borg. Samgöngulega séð er Árborg og höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og menningarsvæði og góður kostur að búa í Árborg og vinna í höfuð- borginni og öfugt. Ég vitna í Greinargerð um íbúaþing í Árborg. Hraður vöxtur Árborgar á undanförnum árum sýnir að sveitarfé- lagið er eftirsóknarverður kostur fyrir fólk sem vill flytja úr erli höfuðborgar- svæðisins, en þó vera í nálægð við það. Hluti af þessum hópi sækist ekkert síður eftir þeim lífsgæðum sem þorpin við ströndina bjóða upp á. Meðal annars með tilvísun til þessa samþykkti bæjarstjórn Árborgar á síðasta ári stefnumótun um þjónustu- uppbyggingu til næstu 5 ára. Þar er lögð áhersla á að Árborg sé fram- sækið og nútímalegt sveitarfélag sem nýti sér þau tækifæri sem staðsetn- ing þess gefur og að Árborg sé sterkt sveitarfélag sem standi við skuldbind- ingar sínar. Einnig er lögð áhersla á að sveitarfélagið verði til fyrirmyndar sem vinnuveitandi og ástundi opna stjórnsýslu. í stefnuyfirlýsingunni seg- ir: * Fjölskyldan er hornsteinn samfé- lagsins. Sveitarfélagið Árborg leggur áherslu á að gæta velferðar hennar með því að móta samræmda fjöl- skyldustefnu og skapa fjölskylduvænt samfélag. Nú er unnið að gerð nýs aðalskipu- lags fyrir Sveitarfélagið Árborg, sem varð til árið 1998 við sameiningu fjög- urra sveitarfélaga - Eyrarbakka, Sandvíkurhrepps, Selfoss og Stokks- 14 avs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.