AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 32

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 32
SKIPULAG / PLANNING Skipulag vinnubúða Kárahnjúka Björn Kristleifsson arkitekt og Sveinn Þórarinsson verkfræðingur Deiliskipulagið er unnið að beiðni Landsvirkjunar fyrir sveitarfélagið Norður-Hérað. í útboðsgögnum Landsvirkjunar vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun var gert ráð fyrir vinnubúðum á fjórum stöðum: Við Teigsbjarg (fallpípa fyrir ofan stöðvar- hús), við Axará (aðveitugöng), við Glúmsstaðadal (aðveitugöng) og við stíflustæðin hjá Kárahnjúkum, vestan megin við Jöklu. Við stíflu- stæðin eru aðalvinnubúðir vegna framkvæmdanna. Þar var gert ráð fyrir íbúðasvæði, stjórnstöð og verk- stæðisaðstöðu aðal- og undirverk- taka, einnig búðastæði eigenda (eftir- litsaðila) ásamt opinberu þjónustu- svæði og vinnubúðum fyrir Sauðár- dalsstíflu. Vegna umfangs er þetta vinnubúðasvæði deiliskipulagt að ósk skipulagsyfirvalda, önnur vinnubúða- svæði eru það ekki. Deiliskipulagið nær til 800/2500 metra svæðis, eða 200 hektara. Það er í 650 metra hæð yfir sjávarmáli, nokkru ofar fyrirhugaðri lónshæð, sem verður í 625 metrum, innan við Fremri Kárahnjúk, vestan við Jökulsá á Brú og um 2 km norðan við ármót Sauðár og Jökulsár, vestan undir Lambafellstöglum. Það er á gróðursnauðum, grjótbornum hálsinum á milli fyrirhugaðra Kára- hnjúka- og Sauðárdalsstíflna. Núver- andi vegslóð Brúardalaleiðar liggur um svæðið. Ný vegslóð, sem tengist núverandi vegslóð við austurenda á fyrirhugaðri Sauðárdalsstíflu, verður lögð vestan við vinnubúðasvæðið til þess að leiða almenna umferð ferðamanna framhjá svæðinu. Vegtenging svæðisins er um upp- byggða vegi, Fljótsdalsheiðar- og Kárahnjúkaveg, og nýja brú á Jök- ulsá. Fjarlægðin frá Egilsstöðum er um 110 km. Einnig er möguleg aðkoma uppúr Jökuldal um Brúar- dalaleið. Ríkjandi vindáttir eru norð- austur- og suð-vestlægar. Úrkomulít- ið er á svæðinu og að öllum jafnaði snjólétt. Að vetrarlagi getur þó gengið í illviðri og kafaldsbyl með tímabund- inni ófærð á aðkomuleiðum. Almennt er talið að veðurfarsskilyrði geti verið mjög mismunandi á Fljótsheiði og í Brúardölum. Endurbætt Brúardalaleið gæti því í sumum tilfellum verið greið- færari að vetrarlagi. Svæðið er við núverandi Brúardalaleið, slóðinn ligg- ur milli vinnubúðanna og athafna- svæðanna, þar verður hann ætlaður framkvæmdaaðilum á verktímanum. Nýr tvöfaldur vegur verður lagður vestan við búðirnar og endar hann við Sauðárdalsstíflu. Þessi vegur mun að verki loknu liggja yfir stífluna, en á verktíma nýtist hann gestum, sem og flutningi á efni frá námum við Kárahnjúkastíflu í Sauðárdalsstíflu. Nýr vegur yfir Jökulsá tengist Brúar- dalaleið og vinnubúðasvæðinu innan skipulagssvæðisins. Á deiliskipulagssvæðinu eru fyrirhug- aðar vinnubúðir og athafnasvæði þeirra aðila, sem starfa að fram- kvæmdum á staðnum. Sömuleiðis er reitur fyrir þjónustuaðila. Svæði þessi eru reituð upp og skarast svæði óskyldra aðila eða starfsemi hvergi. Innan hvers reits eru viðkomandi aðilum gefnar frjálsar hendur varð- andi frekara skipulag. Engar kvaðir við eru settar varðandi húsgerðir eða fyr- irkomulag, aðrar en þær sem fram koma í byggingarlögum og -reglu- gerðum. Neysluvatn kemur úr borholu í Laugavalladal, frárennsli fer í rotþrær og tilheyrandi siturlagnir. Sorp verður flokkað í gáma og fjarlægt af Sorp- samlagi Miðhéraðs. A Vinnubúðir Impregilo Gert er ráð fyrir 700 íbúum í aðal- vinnubúðasvæðinu, sem verður um 10 ha. Húsin á svæðinu verða flest af sömu gerð en misstór, öll úr verksmiðjuframleiddum einingum og klædd utan með bárustáli, bæði þök og veggir. Byggingarnar verða allar á einni hæð. íbúðirnar eru ýmist fyrir einstaklinga eða fjölskyldur. Svefn- skálar verða mest fyrir 20 manns. íbúðir verða í einbýlis-, tvíbýlis- eða fjórbýlishúsum. Gert er ráð fyrir að fjölskyldufólk geti verið með börn með sér. Ýmiss konar þjónusta fyrir íbúana er á svæðinu: mötuneyti, þvottahús, félagsmiðstöð, heilsurækt, verslun, skóli, leiksvæði og heilsu- verndarstöð. Við hana eru bílskúrar fyrir sjúkrabíla og þyrlulendingarpallur. Svæðið verður afgirt. B Vinnubúðir Landsvirkjunar Við gatnamót Brúardalaleiðar og Kárahnjúkavegar yfir Jökulsá eru búðir Landsvirkjunar fyrir 30 starfs- menn. Þar er upplýsinga- og fræðslumiðstöð á verktímanum. Fyrirhugaðri hálendismiðstöð hefur ekki enn verið valinn staður. 30 avs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.