AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 33
ir Impregilo
Vinnubúðir B
Landsvirkjunar
Lónshaaö
KÁRAHNJÚf
A'árahnjúkavirkjun - vinnubúðir Deiliskipulag 1:10 000 Maí 2003 Björn Kristleifsson arkitekt
C Vinnubúðir undirverktaka
Vinnubúðir með mötuneyti fyrir 100
manns ásamt verkstæðisaðstöðu.
Núverandi undirverktaki er Arnarfell
ehf.
D Vinnubúðir verktaka við Sauðár
dalsstíflu
Sauðárdalsstífla hefur ekki verið boð-
in út ennþá og er því ekki vitað
um áform væntanlegs verktaka.
E Skrifstofubyggingar Impregilo
Skrifstofurnar verða í um 1000 m2
skálum, svipuðum að gerð og
vinnubúðir.
F Athafnasvæði Impregilo
Verkstæðisbyggingar og lager eru
nyrst á svæðinu, 3 ha afrétt og
upphækkað svæði með malarfyllingu.
Lagnir tengjast safnþróm fyrir olíu og
skólp, eftir því sem við á. Efnisaf-
gangar og sorp verður flokkað í
gáma. Þarna verða olíubirgðatankar
til áfyllingar og dreifingar á svæðinu.
Á svæðinu verða stálgrindaskemmur
með 6-14 m vegghæð. Svæðið verð-
ur afgirt.Utan deiliskipulagsins, innan
lónstæðis, verður sett upp ýmíss
konar athafnastarfsemi, svo sem efn-
isvinnsla og steypustöðvar.
G Verslun og þjónusta
Gegnt búðum Landsvirkjunar á
gatnamótunum er fyrirhugað
svæði fyrir verslun og þjónustu. Þar
er sveitarfélaginu heimilt að úthluta
lóðum til þjónustuaðila við ferða-
menn.
Við verklok skulu verktakar ganga
óaðfinnanlega frá vínnusvæðum.
Öll sýnileg mannvirki skal fjarlægja.
Lagnir grynnra en 60 cm í jörð
skal fjarlægja, en sveitarstjórn áskilur
sér rétt til þess að gefa út nánari fyrir-
mæli í verklok. Allt jarðrask skal jafna
og skila yfirborði jarðvegs í sömu
hæð og hann var áður en fram-
kvæmdir hófust. Undantekning frá
þessu er vegur í gegnum vinnubúða-
svæðið á svipuðum slóðum og nú-
verandi Brúardalaleið. ■