AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 43

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 43
Verksmiðjan úr suð-vestri. / The smeiter from south-west Hliðarbyggingar Móti firðinum og aðalinnganginum eru ýmsar hliðarbyggingar við kerskálana. Á ytra yfirborði eru þetta kantaðar byggingar þar sem áhersla er á lárétta lagskiptingu efna og lita. Lægri byggingarnar eru allar klæddar með dökkgráum álplötum auk þess sem þær eru með 3m (9ft) háum grunni sem ver þær fyrir sliti. Hærri byggingarnar verða klæddar með ólituðu áli niður á þennan steypta grunn. Þetta gefur byggingunum ákveðið samræmi þar sem dökkur grunnurinn myndar láréttan flöt sem Ijós form bygginganna rísa á. Þessi stefna veitir ákveðinn sveigjanleika og frelsi viðvíkjandi stærð og staðsetn- ingu á hliðarbyggingunum og hag- kvæmni í efnisnotkun sem skiptir ekki aðeins máli hvað kostnað varðar heldur skiptir þetta líka máli fyrir umhverfið. Gróður Gróður mun verða notaður á skipu- legan hátt til þess að hafa áhrif á veður og til þess að skapa hlýja og manneskjulega tengingu við bygging- arsvæði Fjarðaáls. Mesta áherslan verður lögð á þjónustubygginguna þar sem markmiðið er að mynda áhrifamikla viðbót við bygginguna. Allur gróður mun verða íslenskur og verður hann valinn m.t.t. þess að hann þrífist vel á þessum stað og þurfi lítið viðhald. Staðbundinn gróður mun verða fluttur á það svæði sem verður raskað til að styrkja þann gróður sem fyrir er á svæðinu. Við þjónustubygginguna verða gróður- settir blómstrandi runnar og lág lim- gerði til þess að gera aðkomuna aðlaðandi. Vindur Við álverið hafa byggingarnar sjálfar mest áhrif á vind í beinu samræmi við það hvað þær eru háar. Vegna loft- ræstingar í álverinu er engin ástæða til þess að reyna að draga úr vindi. Fyrir gangandi fólk er vindur hins vegar til ama og á íslandi getur líka stafað af honum talsverð hætta. Samkvæmt öryggisstefnu fyrirtækis- ins er gert ráð fyrir að umferð á lóð- inni verði aðallega á fæti og það er því mikilvægt að skýla gangandi fólki fyrir roki og rigningu. Við höfum þess vegna lagt til að ákveðnar ráðstafanir verði gerðar til þess að hægja á vindi og skapa þægilegt umhverfi fyrir gangandi fólk og gesti. Jarðveggir Aðskildum jarðveggjum er komið fyrir milli Fjarðaáls og þjóðvegarinst til Eskifjarðar til þess að draga úr áhrif- um þessara meira en 1 km löngu bygginga og minnka áhrif þeirra á umhverfið. Form þessara jarðveggja tekur mið af basaltlögum fjallanna í kring. Klettar verða lagðir í hallandi röðum í samræmi við fjöllin hinum megin fjarðarins. Milli jarðveggjanna verða engi með eðlilegum gróðri og óreglulega gróðursettum þyrpingum af birki. Settjarnir Auk umhverfisgildis hafa settjarnir umhverfisáhrif sem munu aukast með gróðri og hönnun á bökkum. Þetta á sérstaklega við um þær tjarnir sem liggja nálægt aðkomu að álverinu. Þar sem því verður komið við verður reynt að nota eðlilega bakka, t.d. þar sem vatn verður leitt úr settjörnum til sjávar. ■ avs 4 l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.