AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 48
102 Reykjavík
Borgarskipulag í Reykjavík - ný
íbúðarsvæði í góðum
tengslum við borg og náttúru.
Kirstin Fried og Carsten Trojan, arkitektar
f *■'
Vatnsmýri sem sérkenni. / Vatnsmýri as a tandmark.
Fyrsta byggð í Reykjavík var reist milli Tjarnarinnar og
norðurstrandar Seltjarnarness. Borgin óx síðan til
norðurs fram að seinni heimsstyrjöld. Eftir það þró-
aðist hún hratt til austurs. í dag er svæðið, þar sem
innanlandsflugvöllurinn er, eina opna rýmið nálægt
miðbænum. Vegna mannfjölgunar og áframhaldandi
flutninga til borgarinnar er búist við að íbúum fjölgi
um 70,000 til ársins 2027. Þess vegna var í þessu
verkefni lögð megináhersla á skipulag nýrrar íbúðar-
byggðar. Af öðrum möguleikum sem eru til staðar
má nefna aukna áherslu á rannsóknir og þróunar-
starf.
Hugmynd að borgarþróun: Þótt flugvellinum hafi ver-
ið valinn staður af breskum hernaðaryfirvöldum þá
varð hann líka mikilvægur í sögu borgarinnar vegna
þess að hann rauf einangrun Reykjavíkur. Með því
að flytja flugvöllinn úr borginni fær þetta svæði fyrra
mikilvægi og hægt er að tengja það við aðliggjandi
svæði. Þróun Vatnsmýrarinnar verður tákn fyrir frels-
un náttúrunnar á þessu svæði sem hefur verið í fjötr-
um. Flugbrautunum er breytt í opin svæði og verða
söguminjar um frelsun Reykjavíkur.
Þessi þróun borgarinnar til suðurs hefst við Tjörnina.
Tjörnin verður hluti af opnum rýmum þar sem lögð
er áhersla á að borgin er staðsett á nesi og sam-
band þanníg myndað milli vatnasvæða. Haldið er
áfram á þeirri braut að velja opinberum byggingum
eins og skólum, barnaheimilum og nýrri ráðstefnu-
miðstöð stað á þessu opna svæði svipað og var
gert með Ráðhúsið og Norræna húsið.
Á austurhluta skipulagssvæðisins fylgir vöxtur borg-
arinnar hæðarlínum. Þessi borgarhluti liggur milli
tveggja fallegra svæða: nýja landslagssvæðisins og
friðlandsins á Öskjuhlíð. Á norðurhluta þessa svæðis
er háskólinn stækkaður og tengdur Landspítalanum.
46 avs