AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 49

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.03.2004, Blaðsíða 49
Þessu næst er þétt borgarbyggð sem síðan breytist í einbýlishús og tengist landinu í ríkara mæli. Hæðir bygginga lækka úr fjórum hæðum við mörk Öskju- hlíðar í tvær hæðir við nýja landslagssvæðið. í þéttu byggðinni er bæði þjónustustarfsemi og íbúðir, og sérstakar leiguíbúðir fyrir alþjóðlega vísindamenn. Aðliggjandi íbúðarbyggð myndar línur sem tengjast þessum tveimur opnu svæðum. Sérstök rými, útsýni og leikur með liti leggja áherslu á sambandið við náttúruna. Úr stakstæðum byggingum er stórkost- legt útsýni yfir aðliggjandi umhverfi. Á vestari hluta svæðisins er gert ráð fyrir þéttingu á núverandi íbúð- arsvæði. Þarna er gert ráð fyrir blöndu af íbúðum og skrifstofum. Háskólasvæðið verður líflegra með auk- inni þjónustu eins og fjölritun og bókabúðum. Rýmið milli núverandi íbúðarsvæða er fyllt af lóðum fyrir fjöl- skylduhús. Flugbrautirnar skerast inn í nýja byggða- formið. Á endum þeirra er gert ráð fyrir verslunar- hverfum. Þeirri stefnu er fylgt að velja félagslegri og opinberri starfsemi stað við þetta opna rými sem flugbrautirnar mynda. Hugmyndin að hönnun landslags er grundvölluð á þremur sögulegum lögum. Fyrsta lagið er dularfullar sögur um álfa og tröll sem eitt sinn byggðu þetta svæði. í öðru lagi er er vistfræðilegt vatnakerfi svæð- isins sem fæðir Vatnsmýrina og Tjörnina og í síðasta lagi er það saga flugvallarins. Landslagsgarðurinn breytir um svip frá norðri til suðurs. í miðborginni er lagt til að „Lækurinn" verði opnaður. Hellulagðir bakkar Tjarnarinnar breytast í Tjarnargarð sem verð- ur vísindagarður. Vatnsmýrin verður engi og verður síðan að grýttri strönd. Þegar norður/suður flug- brautinni verður breytt í náttúrulegt horf breytist þetta svæði úr norðri og verður smám saman að mýri. Á suðurhluta brautarinnar er hægt að nota steypt yfir- borðið til að skauta á eða hjóla. Þar sem flugbraut- irnar þrjár skerast er gert ráð fyrir sérstöku svæði: Byggingu, neðanjarðar þar sem gengt er í heim álfa og trölla og sagnamanna. ■ Líkan afsvæðinu. / Photo of model. avs 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.