AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 22

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Síða 22
i/ Alaskalódin. / The Alaska" building site. Þétting byggðar Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræöingur, forstm. Skipulags- og byggingarsviðs, Rvk. Þétting byggðar er dálítið tísk- uorð í skipulagsumræðu nútímans. En hvað þýðir það í raun? Þétting byggðar felst í því að hemja land- bruðl (sprawl), en helstu einkenni þess eru stórar lóðir og gisin þyggð. Þær borgir sem byggst hafa þann- ig einkennast af því að stór hluti íbúa býr í úthverfum og sækir ver- slun og þjónustu í stórar miðstöðvar þar sem gert er ráð fyrir auðveldri aðkomu bíla og nægum bílastæð- um. Þessar miðstöðvar hýsa ýmist verslanir, skrifstofur og/eða þjónustu, s.s. heilsugæslu og skóla. Til að allt gangi hratt og örugglega fyrir sig þurfa samgöngumannvirki að vera umfangsmikil til þess að geta tekið við sífellt auknum umferðarþunga. Landnýting af þessu tagi hefur verið hafin til ákveðins vegs og virðingar enda er hún að miklu leyti í samræmi við það sem lengi hefur verið talin eðlileg framþróun, þ.e. þróun sem byggist á aukinni fram- leiðslu og neyslu. Þetta er að mörgu leyti rökréttur og stefnufastur lífs- stíll, og í raun lækning á ímyndaðri eða raunverulegri firringu sem af sumum er talin fylgja nútímalifnaðar- háttum. Einstaklingurinn hefur þarna ákveðna gerð af „frelsi" vegna þess að fátt getur heft hann, svo fremi hann haldi sig innan vefs framleiðsl- ukerfisins. En því miður hefur komið í Ijós að þetta lífsmynstur er afar óvist- vænt því að landbruðl er í raun eins konar sjálfseyðingarvél. Land á stóru svæði er brotið til bygginga, aðaláherslan í samgöngumálum er á notkun einkabíls og í kjölfarið stór- aukast umferðarvandamál, jafnframt því sem félagsleg mismunun og ein- angrun eykst. Nýlegar vísbendingar benda jafnvel til þess að gisin borg- arbyggð hafi bein neikvæð áhrif á heilsu og holdafar Vesturlandabúa. Viðbrögð við þessari þróun hafa meðal annars birst í stefnu sem kennd er við „ný-borgarvæðingu“ (new urbanism) en samkvæmt henni er talið hollt að líta til fortíðar og skipulags borga fyrri alda þar sem hús standa þétt og samskipti nágranna og borgaranna almennt verða óhjákvæmilega meiri en þegar helsti vettvangur fyrir samskipti fólks eru stórmarkaðir. Samkvæmt þess- ari stefnu er ekki nauðsynlegt fyrir fólk að eiga einkabíl til að nálgast nauðþurftir eða komast á vinnustað og því verður hlutur almennings- samgangna augljóslega mikill. Þá er leitast við að blanda saman íbúða- gerðum og búsetumöguleikum, þannig að ólíkar stéttír geti búið hlið við hlið og ekki verði til félagsleg ein- angrun sem jafnan eykur á fordóma og skilningsleysi í samfélaginu. Endurlífgun miðborga hefur um langt skeið verið viðfangsefni skipu- lagsfræða. Þetta viðfangsefni er tor- leyst og verður það á meðan land- bruðl er réttlætt með því að það sé nauðsynlegur og eðlilegur hluti framþróunar. Mörgum miðborgum í hinum vestræna heimi, sem lengi voru djásn hverrar borgar, hefur hnignað á síðustu öld en miklum fjármunum er nú varið til endur- reisnar þeirra, bæði af menning- arsögulegum ástæðum og með þeim rökum sem gilda um þéttingu byggðar. Til þess að hægt sé að standa vörð um þau gæði sem felast í lifandi miðborg þarf samstöðu bæði borgara og sveitarfélaga. Verslunareigendur leitast auðvitað við að hámarka ágóða starfsemi sinnar og kjósa því gjarnan að setjast að þar sem land er ódýrt, með miklu og góðu aðgengi stór- bíleigenda. Á meðan verð- og skattlagning lands tekur ekki tillit til menningarlegra og vistfræðilegra þátta heldur skipulagsfræðín áfram erfiðri baráttu sinni við landbruðl og hnignandi miðborgir. í gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur er lögð áhersla á að þétta byggð í borginni. Hér er tekið mið af svæðisskipu- lagi höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024 en megináhersla svæðisskipu- lagsins er á þéttingu byggðar og að miðlæg svæði njóti forgangs í uppbyggingu. Eins og lesendum má vera Ijóst af umfjöllun í fjölmiðlum er þétting byggðar vandasamt verkefni því með því er verið að breyta umhverfi sem fólk hefur hugsanlega búið við árum eða áratugum saman. Athugasemdir íbúa og mótmæli við þéttingu byggðar eru nánast regla fremur en undantekning í Reykjavík. Ekki þarf að undra að íslenskir borgarbúar vilji hafa víðsýnt í kring- um sig og eiga góðan garð til að heyja ilmandi töðu á sumrin. Þjóð sem lengst af hefur lifað í dreifbýli kann að meta þessa kosti sveita- lífsins. En vandi okkar er sá að þessi gæði standa varla til boða þeim sem búa vilja í þéttbýli. Rökin fyrir því eru tilgreind hér að ofan. Skilningur á tilgangi þéttingar byggðar er því nauðsynlegur ef við virkilega viljum búa til borgarsamfélag á íslandi. ■ 22 avs
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.