AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Side 74

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.09.2004, Side 74
SKOÐUN / OPINION Stjórnmál og skipulags- ákvarðanir Björn Bjarnason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og dóms- og kirkjumálaráöherra. Stjórnmálastarf hefur mismunandi yfirbragð eftir þeim viðfangsefnum, sem við er fengist á hverjum tíma. Það er til dæmis rmikill munur á því að bjóða sig fram til sveit- arstjórnar eða alþingis, þótt á sama stað sé. í sveitar- stjórnarmálum eru frambjóðendur í Reykjavík mun nær umbjóðendum sínum en þegar tekist er á um þjóðmál í þingkosningunum. Málefni til úrlausnar snerta einnig að jafnaði persónu- legan hag borgara meira, þegar tekið er á þeim í bor- garstjórn og nefndum hennar, en þegar um þau er fjallað á alþingi. Þetta á ekki síst við, þegar fjaliað er um skipu- lagsmál. Ákvarðanir í þeim málaflokki vekja einnig oft hörð viðbrögð, þegar með þeim er gengið nærri skýrum og augljósum hagsmunum borgaranna. í lögum og starfsreglum sveitarstjórna hefur verið leit- ast við að setja ákvörðunum um skipulagsmál þau skil- yrði, að allir, sem telja sig hafa hagsmuna að gæta, eigi þess kost að segja álit sitt og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þetta útilokar að sjálfsögðu ekki ágreining en markmið reglnanna er hins vegar, að ferlið stuðli að sáttum eftir því sem kostur er. Mér hefur á hinn bóginn oft komið á óvart, hve mál eru langt á veg komin, þegar ágreiningur kemur upp á yfirborðið. Á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur eru skipu- lagsmál að sjálfsögðu mikið rædd og umræðurnar mótast oft af ólíkum grundvallarsjónarmiðum. Má þar nefna, að af hálfu sjálfstæðismanna er því haldið fram, að viðhorf andstæðínga þeirra mótist meira af eigin óskhyggju en því, sem borgararnir sjálfir vilji. í hugsjón vinstrsinna felist forræðishyggja, sem aldrei sé góð - og síst í skipulagsmálum. Þar eigi að leggja sig sérstaklega fram um að koma til móts við óskir borgaranna. Þessi grundvallarágreiningur er oft kjarni umræðna í bor- garstjórn en kemst ekki alltaf til skila vegna næsta inni- haldslítilla deilna um það, hvort minnihluti hafi samþykkt skipulagsákvörðun á undirbúningsstigi hennar eða ekki. Til að forðast slíkt orðaskak hafa sjálfstæðísmenn í borgarstjórn mótað sér þá stefnu, að hafa almennan fyrirvara í skipulagsmálum, þar til frestur í auglýsingu er á enda runninn og unnt að taka afstöðu til málsins með hliðsjón af öllum sjónarmiðum, sem fram eru komin eftir hann. Styrkleika samstarfs í sveitarstjórn má ráða af því, hve auðvelt henni er að taka ákvarðanir (skipulagsmálum. Sé meirihluti sundurleitur er líklegt, að hann treysti sér ekki til að taka umdeildar ákvarðanir í skipulagsmálum og kjósi oft heldur að gera ekki neitt en að láta reyna á samstöðu innan meirihlutans. í Reykjavík er auðvelt að benda á nýleg dæmi um slík mál. Um mitt sumar 2002, skömmu eftir borgarstjórn- arkosningar, boðaði borgarstjóri til blaðamannafundar og tilkynnti að þá um haustið yrði hafist handa við að gera bílastæði undir Tjörninni, þetta væri einstaklega hagkvæm og brýn framkvæmd. Síðan hefur ekkert gerst í þessu máli annað en að það hefur velkst á milli nefnda og sérfræðinga innan borgarkerfisins. Haustið 2003 sagði varaborgarfulltrúi R-listans af sér, vegna þess að sagt var, að ákveðið hefði verið, að Austurbæjarbíó skyl- di víkja fyrir íbúðabyggð þvert á vilja varaborgarfulltrúans, sem bannað var að viðra skoðun sína í borgarstjórninni. Hinn 11. ágúst 2004 var hins vegar skýrt frá því, að R-listinn hefði sameinast um, að Austurbæjarbíó skyldi standa áfram. Þessi tvö nærtæku dæm, en unnt er að nefna mörg fleiri, sýna, að skortur á pólitískri samstöðu leiðir til van- dræða og stefnuleysis í skipulagsmálum. Eitt er svo, að ákvarðanir sveiflist á þennan hátt, annað að engar ákvarðanir séu teknar og áhugasamir framkvæmdamenn þurfi að bíða í óvissu. Mörg dæmi eru einnig um það í Reykjavík. í öllum tilvikum er þó verst, að vita ekki, hvar maður stendur. Betra er að fá neikvætt svar en hvorki já né nei. Niðurstaðan er sem sagt sú, að ekki sé unnt að skjóta sér undír stjórnmálaábyrgð á ákvörðunum í skipu- lagsmálum, ákvarðanir verður að taka og þeim þarf að fylgja fram af einurð og með skýrum rökum, um leið og eins ríkt tillit er tekið til þeirra, sem hafa hagsmuna að gæta, og frekast er unnt. ■ 74 avs

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.