Ský - 01.02.2001, Side 46

Ský - 01.02.2001, Side 46
„Aðgerðin gekk að óskum, vina mín. Þetta var illkynja æxli en ég er vongóður um að hafa náð að skera það allt i burtu," sagði skurðlæknirinn blíðlega og hélt í hönd mína þar sem ég var að komast til meðvitundar á vöknunardeild Landspítalans. Hjartalínu- ritið sveiflaðist fyrir augum mér og unaðs- legur morfínskammtur hríslaðist um æða- kerfi líkamans þegar doktorinn færði mér þessar blendnu fréttir. Við kvöddumst um sinn og ég dormaði undir ómennskum stunum og óhljóðum þeirra sem voru að losa svefn í rúmunum allt í kringum mig. „Þórdís mín, það er síminn til þín. Treyst- irðu þér til þess að tala í hann?“ hvíslaði skolhærð hjúkrunarkona með þráðlaust slmtæki í hendinni. Ég kinkaði kolli. Mamma var í símanum. Hún vildi heyra hvernig frumburðinum liði og færði ótal kveðjur frá vinum og ættingjum. „Ég er sannfærð um að þetta fer allt saman vel,“ sagði mamma mildum rómi. „Það er mikið af góðu fólki að biðja fyrir þér í bænahringj- um og læknamiðlar að störfum til að þér batni. Hún amma þín er búin að koma því öllu í kring.“ Ég brosti með sjálfri mér þeg- ar símtólið lá sambandslaust ofan á hvítri sænginni, fullviss um að læknar allra að- ferða væru mér hliðhollir og hjálplegir. „Sjálfur trúi ég nú ekki á framliðna lækna, en andalækningar eru hluti af þjóðarsálinni og læknar verða bara að taka það með í reikninginn," segir Matthlas Halldórsson aðstoðarlandlæknir. „Mérfinnst ástæðu- laust að fetta fingur út í starfsemi lækna- miðla og virði trú fólks á þá, enda getur maður hreinlega ekki bannað dauðvona fólki að leita sér þeirra lækninga sem það trúir á að lengi líf sitt eða stuðli að bata. Þó ber alltaf aö hafa samvinnu við lækna sé um krabbamein og alvarlega sjúkdóma að ræða." Kraftaverkalækningar Að sögn Magnúsar H. Skarphéðinssonar, formanns Sálarrannsóknarfélags Reykjavík- ur, sækir mikill fjöldi íslendinga til lækna- miðla enda er árangurinn I sumum tilfellum ótrúlega góður og oft um hrein kraftaverk að ræða. „Fólk leitar jafnt til læknamiðla með alvarleg sem minni háttar veikindi," segir Magnús. „Sannanir liggja ekki fyrir um starfsemi læknamiðla, en dæmi eru um að krabbamein hafi horfið, skurðaðgerðum ver- ið frestað og fólk orðið albata á eftir." Daginn sem heimilislæknirinn tilkynnti mér stamandi að hugsanlega væri krabba- mein aö hrjá mig fór ég að gráta. Góður Hafþór Gestsson rolfari segir aö besti mælikvarðinn á gagnsemi og gæöi óhefðbundinna lækninga sé fólkið sem í flestum tilvikum sé ánægt og komi aftur til síns „læknis”. Hómópatía Hómópatía, öðru nafni smáskammtalækningar, byggist á þeirri grundvallarkenningu að líkt lækni líkt. Upphafsmaður hómópatíunn- ar, þýski læknirinn og lyfjafræðingurinn Hahnemann, komst að því að efnið kínín sem þá var notað til að lækna malariu, veldur malar- íueinkennum hjá heilbrigðri manneskju. Uppgötvun Hahnemanns leiddi I Ijós að eins var háttað um önnur efni. Eftir hans rannsókn- um eru gefnar svokallaðar remedíur, sem eru útþynntir, örsmáir skammtar af efnum úr jurta-, dýra- eða steinaríkinu. Hómópati hefur meðferð á því að skrá sögu einstaklingsins, hvaða mann hann hefur að geyma, hvers konar líkami hýsir hann og vandamáliö sem um ræðir er sundurliðað. Síöan er gefin rem- edía út frá þessum upplýsingum. I remedíum kennir ýmissa grasa og margar þeirra búa yfir sérkennilegum efniviði, svo sem hunda- mjólk, kaffi, snákum, skordýrum, smokkfiski og blýi. Hómópatía hentar fólki á öllum aldri. Algengir kvillar sem fólk leitar til hómópata með eru eyrnabólgur barna, astmi og lungna- vandamál, blöðrubólga og ýmiss konar sýkingar, meögönguógleði, magakvillar, þunglyndi, höfuðverkir og alls kyns verkir svo eitthvað sé nefnt. Starfandi hómópatar á Islandi eru um fimmtán. Fyrsti tíminn hjá hómópata tekur um einn til einn og hálfan tíma, kostar frá 4-5000 krónum og er þá tekin ítarleg skýrsla. Hver framhaldstími tekur um hálftíma og kostar á bilinu 2-2500 krónur. Algengt er að fólk komi um einu sinni I mánuði til hómópata I ákveðinn tíma eftir því sem þörf krefur. Kínverskar nálastungur Kínverskar nálastungur eru mjög flókin læknismeðferð þar sem leitast er við að ná jafnvægi á yin og yang. Yin er tákn jarðarinnar og yang himnanna en oft er talað um kvenlega og karllega orku. Sjúkdómar og ójafnvægi koma upp þegar stöðugleika eða hlutföli- um yin og yang er raskað og því er markmiðið að endurheimta hið náttúrulega jafnvægi og þar með heilsuna. Ójafnvægi yin og yang leiðir nánar tiltekið til hindrunar á flæði lífsorkunnar, ch'i. Aðal- orkurásir líkamans samanstanda af tuttugu og fjórum pörum auk sextán aukarása, en samtals eru 668 orkupunktar á líkamanum. Aukarásirnar eru oft notaðar við erfiðari sjúkdómum, þegar engin önnur meðferö gagnast eða þegar þörf er á snöggum og miklum breytingum. I upphafi meðferðar er púlsinn tekinn við úlnlið þar sem hægt er að finna tólf mismunandi meginpúlsa sem greina frá veikleika I orkurásum, líffærum og blóði, einn fyrir hvert líffæri og aðal- orkurás þess líffæris. Að auki er tungan skoðuð og líkamshiti mældur. Út frá sjúkrasögu einstaklingsins er meðferðin svo ákveð- in. Með nálastungum má hafa bein áhrif á líkamsorkuna og auka eða minnka flæði til ákveöinna líffæra. I hverri meðferö eru notað- ar á bilinu tvær til níu nálar og oftast eru þær staðsettar fjarri þeim stöðum á líkamanum sem eitthvað amar að. Á líkamanum eru ákveðnir orkupunktar sem stinga má I til að vekja fólk til lífs- ins. í gamla daga þegar algengt var að fólk væri kviksett bitu útfar- arherrarnir hina látnu I litlaputta, en við það rumskaði hinn látni úr dáinu væri hann ekki örugglega dauður. Sá punktur sem sjaldnast er stungið I er á milli endaþarms og þvagrásarops, en sá vekur fólk upp úr dái eftir drukknun. Kínverskar nálastungur henta fólki á öllum aldri. Hvertlmi I nálastungum kostar 3500 krónur. 44 ský ÓOPINBERA HEILBRIGÐISKERFIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1812

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.