Úrval - 01.04.1944, Blaðsíða 125
EDGAR WALLACE
123
hann til að vinna jafnan á hin-
um mestu hlaupum. Árangur-
inn má dæma nokkuð eftir
þeirri staðreynd, að næstu tíu
árin birti forlagið 46 skáldsög-
ur eftir Edgar Wallace, og nam
upplag hverrar um sig milljón-
um eintaka.
Það er út af fyrir sig erfitt
að útskýra hin tröllauknu af-
köst Edgars Wallace. Hann
samdi meir en 150 sérstæð verk
á 27 árum, enda þótt hann virt-
ist oft ráfa algerlega iðjulaus
um götur, leikhús og veð-
hlaupavelli. Deti hans var að
orðtaki höfð. Það var sagt, að
hann hefði einu sinni fengið
bíl til að fara með sig tæp-
lega hundrað metra spotta. En
hugmyndimar streymdu að
honum, fyrirhafnarlaust, að því
er virtist, og hann gat beitt
gífurlegri einbeittni við starf
sitt, enda þótt hann gerði það
sjaldnast, fyrr en í eindaga var
komið.
Eftir því, sem augljósari
urðu hin miklu afköst hans,
tóku menn að gera sér títt um
verk hans. Töluðu þá um „hinn
vikulega Wallace“ eða jafnvel
„hádegis Wallace-reyfarann.“
Ýmsir urðu til þess að halda
því fram, að hann semdi alls
ekki allar sögur sínar sjálfur,
heldur réði aðra menn til að
semja fyrir sig og gæfi síðan
út undir eigin nafni. Edgar var
alla tíð mjög gramur út í slík-
ar sögusagnir, og hann gekk
jafnvel svo langt að bjóða 12
þúsund króna verðlaun þeim,
sem gæti sannað, að annar
maður hefði skrifað svo mikið
sem eitt einasta orð, sem út
hefði komið undir sínu nafni.
En slúðrið elti hann engu að
síður og hefir jafnvel fylgt hon-
um út yfir gröf og dauða.
Það fór ekki hjá því, að ýms-
ar villur slæddust inn í handrit
hans, bæði villur um staðreynd-
ir og mál, enda las hann fyrir
með gífurlegum hraða. En
hvorki virðast höfundur né út-
gefandi hafa gert neitt að ráði
til að lagfæra slíkt. Yfirleitt er
söguefni hans svo mjög með
ólíkindum, að lesandinn hrífst
brátt með og hirðir eigi um
annað en það, sem næst skeð-
ur. Hann missir sjónar á raun-
veruleikanum og flyzt yfir í
óverulegan heim, fullan af rugl-
ingi og spenningi, þar sem
hrottalegustu glæpir reka hver
annan. En allur er þessi heimur
hreinasta hugsmíð. Þrátt fyrir
hið hryllilega útlit sitt er þetta