Úrval - 01.10.1944, Side 26

Úrval - 01.10.1944, Side 26
24: ÚKVAL þessa leið: Mér græðist aldrei nægilegt fé til að sjá fyrir fjöl- skyldu minni eins og mér ber. Hún mun ætíð vænta meira, en ég get veitt henni. Ef ég héldi samt áfram að vinna baki brotnu án þess að tekjurnar hækkuðu, hlýtur hverjum og einum að vera ljóst — þar með minni eigin vitund — að eina ástæðan fyrir því, að ég kemst ekki betur áfram er sú, að mig skortir getu. Það yrði of auð- mýkjandi. Hvernig á að komast hjá þessari niðurstöðu? Ein leiðin er sú, að verða svo langþreyttur, að hver maður geti séð, að mér tjáir ekki að leggja svona að mér við vinnuna. Ég kæri mig samt ekki um að kannast við, að ég sé þreyttur — þá er engu uppljóstrað. Þannig gæti ég bjargað sæmd minni — bjargað mér frá að viðurkenna, að ódugnaður valdi því, hve illa gengur. Dulvitundin tekur til óspilltra málanna að vekja þessa æskilegu þreytutilfinn- ingu. Hún byrjar á því að leggja til, að maður neiti að gera eitt- hvað sem honum er sönn ánægja að fást við, svo að þreytan verki til fullnustu sannfærandi. Hann hættir því að iðka íþrótt, sem hann hafði miklar mætur á. Vitaskuld getur hver maður séð, að þetta myndi hann ekki gera, nema hann væri svo slit- uppgefinn, að hann gæti alls ekki gefið sig við henni. Hann trúir því sjálfur—allir trúa því. í fyrstu er hann aðeins dálítið þreyttur — þyngslalegur í göngulagi, lotinn í herðum og þungur í höfðinu. Það dregur athyglina að þeim hluta líkamans. Áður en langt líður fer hann að gera ráð fyrir þessari þreytu. Og vitan- lega gerir hún þá vart við sig. Hann tekur að vænta höfuð- þyngsla og sljóleika í augum að loknu dagsverki. Og hann sór, að það kemur heim. Brátt fara einkennin að verða alvarlegri, tíðari — og krefjast lengri hvíldar. Eftir nokkurn tíma dreif- ast þau yfir stærri líkamssvæði. Loks svarar allur líkaminn þessari tilhugsun — það mætti næstum segja von — um þrey tu. Fyrr eða síðar er hann gjör- samlega yfirbugaður af þreytu, sem gagntekur hann, og hann fær ekki hrundið af sér. Áhyggjur, sem eru oss með- vitaðar, eru ekki vandraktar til róta. En séu þær dulvitaðar,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.