Úrval - 01.10.1944, Qupperneq 47
UM BLÓÐÞRÝSTING
45
að gefa meðöl beinlínis við hon-
um einum. Lyf koma yfirleitt
að litlu gagni í því skyni nema
rétt í svip.
Ef hann hyggur að nýrna-
sjúkdómur eða offita sé orsök-
in, þá hagar hann aðgerðum
sínum eftir því. Smitandi sjúk-
dómar, ígerðir og eitranir út frá
tönnum eða kjálkaholum, háls-
kirtlum, gallblöðru, botnlanga
eða öðrum stöðum í líkamanum
geta verið orsökin. Nýjustu
rannsóknir hafa gefið ástæðu
til að ætla að einhverjar eitur-
verkanir séu mjög oft orsakir
hækkaðs blóðþrýstings.
I nýrnasjúkdómum er það
kunnugt að orsökin til hins
hækkaða blóðþrýstings er efni
í blóðinu, sem nefnist angioto-
nin. I blóði heilbrigðra manna
er annað efni, framleitt í nýr-
unum, sem kemur í veg fyrir
verkanir angiotonins.
Þegar ekki finnast aðrar or-
sakir til hækkunarinnar, en strit
og stríð hins daglega lífs, þá er
ekki annað við því að gera en
haga störfum sínum og striti
eftir því sem bezt á við.
Sé um ættarfylgju að ræða
þá er öllu lakara við að eiga.
Þegar báðir foreldrar hafa
fengið að vöggugjöf hækkaðan
blóðþrýsting þá getur blóð-
þrýstingur afkvæmisins orðið
allt að 45% hærri en eðlilegt
er.
Lækningin, eða réttara sagt
hjálpin, er æfaforn og enn í fullu
gildi. En hún er h v í 1 d og
kyrrð og ró.
Öll áreynsla, hvort heldur
er andleg eða líkamleg, er hættu-
leg slíkum mönnum. Snöggar
hreyfingar, einkum ef menn eru
álútir, eru mjög viðsjárverðar,
því að þá leitar blóðið til höf-
uðsins. Sama er að segja um
hægðatregðu, og allskonar geðs-
hræringar.
Mataræði má haldast óbreytt.
að mestu. Fuglaket, fiskur,
grænmeti, ávextir og egg eru
allt hollar fæðutegundir fyrir
menn með háan blóðþrýsting.
Kjöt og mjólk eru talin fremur
óholl og mega gjarnan hverfa
úr fæði sjúklingsins. Sterkju
og fitu ætti að takmarka. Það
er góð regla að taka sér dálitla
hvíld eftir máltíðir.
Sé um nýrnasjúkdóm að ræða,
þá er bezt að forðast seyði,
sósur og súpur. Borðið ekki
salt með matnum, en látið
nægja að salta hann eins og
vant er í suðunni.
Oftast er bezt að láta ógert